Prófíll

  • Nafn: Frú Megabeib
  • Staður: On the Kleik

Auglýsing

Prófíll

  • Nafn: Frú Megabeib
  • Staður: On the Kleik

Prófíll

  • Nafn: Frú Megabeib
  • Staður: On the Kleik

Ég

Með fulla fimm???

09. janúar 2012 klukkan 18:03
Skil ekki hvernig fólk getur verið með hreina samvisku þegar það keyrir af stað án þess að fjarlægja snjó eða frost af bílnum hjá sér ..... þá er ég kannski ekki að tala um ÖLL snjókorn sem á bifreiðinni hafa lent á meðan hún er kyrrstæð ....... heldur bara þetta sem ég tel vera óhjákvæmilegt þegar haldið er út í umferðina!!! Fjarlægja snjó af framrúðu, hliðarrúðu, afturrúðu og hliðarspeglum ....... og jafnvel fjarlægja snjó af framljósum sé þess þörf!!! Fæ það bara ekki inn í minn þykka haus að einhver skuli keyra af stað án þess að sjá útum framrúðuna!!! ...... hvað þá hliðarrúður eða afturrúðu!!!! Hvernig getur manneskja með fulla fimm (gerum ráð fyrir að allir sem hafa bílpróf séu nokkurnveginn með fulla fimm..... þar sem það er erfitt að fá bílpróf nema það sé ljós á öllum hæðum ..... meira að segja máttu ekki vera litblindur!!!) ...... hvar var ég ..... já ..... með fulla fimm bara keyrt af stað út í umferðina með ekkert útsýni .... enga yfirsýn yfir hvað er að gerast í kringum hana!!! Hvers eigum við hin í umferðinni að gjalda??? Hvernig getur það verið að hin fulla fimm manneskja setji bara rúðuþurrkurnar á ..... og telji það bara nóg komið af snjómokstri dagsins??? ...... og jafnvel rúðuþurrkurnar ómaka sig ekki alltaf til að fjarlægja allt það sem liggur á milli þeirra og bílrúðunnar, þannig að oft er lítið sem ekkert skyggni út um framrúðuna!!!! Er mér í fersku minni gömul (ekki að hún sé neitt öldruð ..... heldur bara frá því í "gamla daga") skólasystir mín fór í skólann á fína Skoda Rappidinum sínum ...... hún var sein fyrir þessi elllllska og alls ekki klædd fyrir að standa úti og moka snjóinn af bílnum. Hún nældi sér í kassettuhulstur (jú jú við erum að tala um í gamla daga!!!) og teygði sig aðeins inná framrúðuna og fjarlægði sem svarar tveimur kassettum á hæð og breidd ..... taldi það yfirdryfið nóg komið af snjómokstri ..... enda var ofankoma og hárgreiðslan lá undir skemmdum!!! Í stuttu máli þá náði þessi skólasystir mín ekki í skólann á réttum tíma!!! ..... jú passar ...... það var einhver svo óforskammaður (nánast hennar eigin orð) að keyra beint inn í hliðina á henni!!!! Skólastúlkuna sakaði ekki ...... en bifreiðin þurfti að fara á bílaspítala ...... var óökufær í nokkurn tíma ..... bara vegna þess að vinkonan hafði ekið í veg fyrir bíl ...... sem hún sá ekki ..... því það var SNJÓR á hliðarrúðunni!!!! Geri ég ráð fyrir að þetta hljóti að vera það sem hrjái þetta fólk sem ekki fjarlægir snjóinn ....... ........ hárgreiðslan gæti farið úr skorðum!!!!
Frú Megabeib

Mugison

12. desember 2011 klukkan 20:28
Mér finnst nýja platan hans Mugisons alveg frábær ..... er rétt að verða búin að spila á hana gat!!! ..... eða þannig sko ..... sko ef þetta væri í alvörunni plata þá væri ég örugglega búin að spila á hana gat ..... svo mikið er ég búin að hlusta á hana síðan ég keypti hana um daginn!!! Keypti hana meira að segja á netinu ..... og fékk dávnlódið strax, og svo plötuna inn um lúguna nokkrum dögum síðar ..... áritaða og voða fína meira að segja!!! ..... verður eflaust mikils virði einhverntíman í framtíðinni!!!!!

........ nema hvað .............

Eins og mér finnst platan skemmtileg þá er ég ekki að fíla þetta nýja lúkk sem annar hver (eða í það minnsta þriðji hver) karlmaður virðist vera búinn að næla sér í ..... til að vera eins og Mugison!!!!

Skegg eins og hinn ábyggilegasti Amish gæi!!!! ........ er ekki að fíledda!!!! ........ það vantar nákvæmlega bara hattinn og axlabönin og þá er lúkkið fullkomnað!!!

Amish lúkkð

..........ætli maður verði þá að fara að fá sér svona hatt svo maður hafi einhvern séns í þessa gæja???

Amish gordjöss gella


Þá verður maður svo svakalega ábyggilegt par sko:

Ábyggilegt Amish par
 

........ ekki það að ég hnaut um þessa síðu þegar ég var að leita að myndum ..... fannst hún alveg bráðfyndin ..... hélt að Amish fólk væri ekki einusinni með rafmagn ..... hvað þá tölvur!!! ..... en ef íslensku Amish/Mugison drengjunum vantar deit ...... þá geta þeir fundið það hérna.

...... og ekki lengra en síðan í ágúst .... þá vissi ég ekki einusinni hver Mugison var!!!!

...... og nú er ég að drukkna í lúkkalækum vinstri hægri!!!!

Frú Megabeib

Hva ......

07. desember 2011 klukkan 19:51
...... bara allir hættir að blogga!!!

Enda er það ekki svo mikið "inn" núna ...... enda ekki hægt að vera með svo mikið af fríum auglýsingum á blogginu ...... eins og t.d. Karen Millen, Iphone 743, uppáhalds molinn og hvað þetta allt saman nú heitir!!!

Hrmpf ..... enda kannski hefur maður ekki svo mikinn tíma í dagsins önn að lesa heilu og hálfu ævisögurnar!!!

Láttu þér líða vel ...... tökum Pollýönnu á þetta!!!

Kv ...... ég!
Frú Megabeib

Vangaveltur

20. september 2011 klukkan 22:35
Velti því fyrir mér afhverju enginn hefur sagt neitt yfir hraðahindruninni sem er búið að setja á eina af stofnæðum Reykjavíkurborgar.
Ég hef allavega ekki heyrt neitt!!!! ....... og hámarkshraðinn er settur niður í 30 km á klukkustund .... á einni af stofnæðum Reykjavíkurborgar!!! ..... svo ætlaði allt um koll að keyra þegar það var talað um að lækka hámarkshraðann á Miklubrautinni úr 60 niður í 50 ..... það mátti ekki heyra á það minnst ..... en það er í góðu lagi að minnka hámarkshraðann úr 60 niður í 30 og skella inn hraðahindrun og ekki nóg með það heldur veður fólk út á þessa hraðahindrun í tíma og ótíma ....... að ónefndum ljósunum sem sett voru rétt við hraðahindrunina ... ljós sem eru í engum takti við ljósin fyrir framan eða aftan!!! ..... ég minnist þess að hafa heyrt umræðu um að það þótti algerlega ótækt að setja upp ljós við Álverið í Straumsvík sem væru aðeins virk á háanna tíma ..... það var alveg út í hött ..... og þar er hámarkshraðinn þó 90 km á klukkustund!!!

Ég velti því fyrir mér hvort fólk geri sér hreinlega ekki grein fyrir því að þetta er ekkert vinnusvæði lengur ..... þessi hraðatakmörkun er komin til þess að vera!!!

Ég hélt alltaf að stofnæðarnar væru til þess að fólk kæmist greiðlega leiðar sinnar og inni í hverfunum væru svo sett 30 kílómetra hámarkshraði til þess að minnka umferð og/eða beina henni á stofnæðarnar ...... þannig að einungis þeir sem ættu erindi inn í hverfin færu þangað sökum hraðatakmarkananna!!!

En ég hef greinilega alveg misst af því þegar umræðan fór fram um að það væri í lagi að setja hraðahindranir og lækka hámarkshraðann og skella inn ljósum á stofnæð í þágu listar og menningar!!!

Ég meina er þetta ekki full langt gengið????

Þó húsið heiti HARPA og það sé hið ofur merkilega ráðstefnu og tónlistarhús ....... er þá ekki farið að bera í bakkafullan lækinn að hafa eitt stk. hraðahindrun, hraðatakmörkun OG ljós fyrir eitt og sama húsið!!!???

......... maður spyr sig!!!!
Frú Megabeib

Hið óútreiknanlega internet!!!

19. ágúst 2011 klukkan 19:10
Oft verður mér meira úr verki ef ég sleppi því algerlega að kveikja á tölvunni ...... það er alveg ótrúlegt aðdráttaraflið sem þetta kvikindi hefur ...... ekki að ég þurfi nauðsynlega að skoðaneitt merkilegt í tölvunni ..... og það er kannski ekki beint í sjálfri tölvunni en á hinu margslungna interneti!!!

Þar finnst mér Facebook vera versti tímaþjófurinn ....... ég hef oft staðið sjálfa mig að því að vera búin að skoða síðuna aftur og aftur, smelli hér og smelli þar ....... og svo skyndilega er ég komin inn í eitthvað myndaalbúm sem er úr einhverju myndaalbúmi hjá einhverju fólki sem ég þekki akkúrat ekki neitt!!!! .... og hef ekki hugmynd um hvernig í ósköpunum ég endaði þar!!!!

Á það til að detta inná Flick My Life ..... það finnst mér skemmtilegt ........ en bara heim að þar sem ég las síðast ..... nenni ekki að lesa oft sama brandarann!!!

Stundum les ég blöðin ....... það er ekki oft ....... og þá les ég bara skemmtilegar fréttir og helst þá bara af fræga fólkinu!!!! ..... hinar fréttirnar eru nú flest allar frekar niðurdrepandi ..... svo ég eyði ekki tíma mínum eða orku í að lesa það ...... skoða frekar myndir af gæludýrum hjá fólki sem ég þekki ekki neitt á Facebook!!!!

Ég á það til að detta í Bubbles ...... þori ekki að byrja á Angry Bird ...... mér skilst að það sé ávanabindandi!!!

Svo á ég það til .... bar örsjaldan til í að detta inná einhverjar spjallsíður og detta inní einhverjar umræður sem skipta mig engu máli og ég hefði ekkert verið neitt verri manneskja án þess að vita þessa hluti ...... reyndar ekki betri heldur!!! ......

....... svo var það klikk,klikk, smell, smell (svona eins og þegar maður er kominn inní sp´narferðina hjá vinkonu, vinar, frænda, systur einnar sem ég þekki og er vinur á Facebook) ..... og ég datt inn í einhverjar umræður .......

......... en hingað og ekki lengra!!!! ...... þegar ég er farin að lesa af miklum áhuga um taubleyjur .... hampbleyjur ...... nánar tiltekið um tilsniðnar hampbleiur með vasa .........


...... þá er nú fokið í flest skjól ekki satt???

p.s. fyrir áhugasama þá eru frkar upplýsingar um Happy Hempys hampbleyjurnar að finna á internetinu ....... þú getur bara gúgglað það og svo klikkað og klikkað og smellt og smellt ....... og þá endar þú örugglega á sama stað og ég!!!!
Frú Megabeib

Svindl, svik og prettir

15. ágúst 2011 klukkan 19:30
Afhverju getur Ási minn ekki bara verið einn af þessum hermönnum í Afghanistan og er að koma heim eftir næstum því fjögurra ára fjarveru? Komið heim og hundurinn fagnað honum alveg ógurlega, börnin vaðið upp um hálsinn á honum og ég hefði aldrei sleppt honum frá mér aftur ..... það hefði hentað mér alveg einstaklega vel!!!!

En þetta hentar mér einstaklega illa.


Sakna hans mikið þessa dagana ..... vildi að hann væri hérna til að vera skynsemisröddin mín ...... svo ég gæti rökrætt lífið og tilveruna við ..... fundið rétta flötinn á lífinu ...... hjálpað mér að sjá lausnir þegar ég sé þær alveg ómögulega ..... verið hjá mér svo ég gæti talað eindalaust um það sem er að pirra mig ....... og jafnframt að hann gæti verið hérna til að dáðst að börnunum okkar með mér!!!

Hann sagði SVO OFT við mig:"þegar fíflunum í kringum þig er farið að fjölga, þá er kominn tími til að líta í eigin barm" ...... svo var hann til staðar til að finna út með mér hvort það væri í rauninni fíflin sem sæktu að mér eins og mý á mykjuskán, eða hvort það var einfaldlega ég sem þurfti að taka sjálfa mig í naflaskoðun!!!

Ef hann væri hermaðurinn í Afghanistan ....... gæti ég allavega sent honum e-mail.
Ef við værum bara skilin ..... gæti ég örugglega rætt þetta við hann (ekki að ég sjái það fyrir mér að við hefðum nokkru sinni skilið ..... en ég veit að við hefðum pottþétt verið allra bestu vinir hefðum við farið út í það að skilja)

Andsk ..... "#$%&/%$"$%$#&/$#$%

..... endalaust svindl, svik og prettir!!!!
Frú Megabeib

IC/PBS = sjúkdómur

11. ágúst 2011 klukkan 17:25
Jamms ..... ég er með sjúkdóm!!!

Held að ég hafi aldrei verið jafn glöð þegar ég labbaði út frá lækninum og hún var búin að sjúkdómsgreina mig: "þú ert með sjúkdóm" ...... og það alvörunni ekta sjúkdóm!!!

Sjúkdómurinn heitir hinu flotta fræðimáli IC/PBS? ....... ég meina hver vill ekki hafa sjúkdóm sem er með svona flott nafn .... ég bara spyr!!!???

Þetta er nú ekki lífshættulegt, annars myndi ég nú eflaust ekki fagna því að vera með þennan sjúkdóm ...... og ég fagna því einfaldlega af þeirri einföldu ástæðu að núna veit ég að þetta er ekki allt saman í hausnum á mér!!! ..... og get tjáð fólki í kringum mig að þetta er ekki allt í hausnum á mér ........ hvorki sjúkdómurinn sjálfur ........ því hann er í þvagblöðrunni ..... né að þetta sé ímyndun, svona inni í hausnum á mér!!!

Nú get ég betur tekist á við þetta vandamál, þegar ég veit hvert vandamálið er. Nú get ég flett upp á Gúggúl hvað nákvæmlega þessi sjúkdómur gerir og hvernig hægt er að halda honum í skefjum. Nú get ég lagt mitt af mörkum í þessari leiðindar baráttu við að vera alltaf að pisssssssa!!!!

Sjúkdómurinn heitir semsagt á svona nokkurnveginn mannamáli: Interstitial Cystitis/Painful Bladder Syndrome .... og fyrir áhugasama má lesa meira um hann hérna: http://kidney.niddk.nih.gov/kudiseases/pubs/interstitialcystitis/

Svo nú er barátta mín við: "mér er ógisslega illt í blöðrunni" sjúkdóminn minn hafinn!!!

Over and out.

ég
Frú Megabeib

hrmpf .......

10. ágúst 2011 klukkan 21:17
Hrmpf ....... skrifaði og skrifaði eins og vindurinn og svo PÚFF ..... allt horfið!!!

Ætla að athuga hvort þetta hljóti náð fyrir augum vefheima og smygli sér í gegn ...... nenni sko ekki að skrifa og skrifa og skrifa og svo PÚFF ........ bara allt horfið!!!

Hrmpf!!!!
Frú Megabeib

Að efast um eigið ágæti!!!!

12. apríl 2011 klukkan 21:35
Er búin að vera dáldið að ferðast um á netinu undanfarið og lesa hinar ýmsu "bloggfærslur" hjá hinum ýmsu konum.

Margt er áhugavert, annað misgáfulegt, sumt er hrein þvæla að mínu mati, annað er til eftirbreytni og enn annað er bara skemmtilegt aflestrar!

Það sem mér finnst vera sammerkt með þessum bloggkvendum er að þær eru allar taldar ofurbloggarar á sínu sviði.

Þær hafa allar miklar skoðanir og tala tæputungulaust um málefni sem liggja þeim á hjarta.

Þetta finnst mér vera hið allra besta mál ....... að mörgu leiti ...... en hefur fengið mig til að spyrja sjálfa mig spurninga um hvernig ég myndi haga mér í tilteknum aðstæðum, hvernig sumir geta verið algerlega veruleikafirrtir og svo hefur þessi lestur meira að segja fengið mig til að efast um eigið ágæti!!!!

Jú það er rétt ..... eigið ágæti!!!

Ég tel nú, þó ég segi sjálf frá, ég ekkert vera neitt sérstaklega ómyndarleg kona. Ég er jú frekar í hávaxnari kantinum og kannski ekki alveg á réttum stað í þessum fræga BMI stuðli. Svo væri kannski hægt að segja að ég væri frekar ákveðin, jafnvel frekja, en það hefur bara hver sína skoðun á því!!! Ég er fremur jákvæð að eðlisfari, finnst óhemju gaman að hlæja og hafa gaman að lífinu. Eitt af skemmtilegri áhugamálum mínum er daður og daðra ég jafnt við karla, konur, börn og dýr, (og bara svo það sé á hreinu að daður þarf alls ekki að vera neitt kynferðislegt!!) ...... og tel ég mig nokkuð góða í daðrinu ..... enda skapar æfingin meistarann og hef ég æft mig í mööööööörg ár!!!! Ég kem nokkuð vel fyrir mig orði, hvort sem er í töluðu orði eða rituðu.

Ég er nokkuð sjálfsörugg, svona fyrir þá sem þekkja mig ekkert alltof vel og er bara nokkuð sátt við hana mig, nákvæmlega eins og ég er!!!!

Hvað í veröldinni getur þá verið sem fær mig til að efast um eigið ágæti???

Jú það eru bloggskrif kvenna um hvernig eigi að haga sér á stefnumóti!!!

Ég verð bara að viðurkenna það að ég hef aldrei á ævinni farið á stefnumót!!!! ....... en mér finnst það vera óhemju spennandi hulinn heimur þar sem hlutirnir gerast!!!! ........ samkvæmt nýjustu fréttum úr bloggheimum!!!!

Kannski er ég að misskilja allt þetta stefnumótadæmi!!! Er það stefnumót þegar maður fer og hittir kunningja sinn á kaffihúsi í klukkutíma yfir kaffibolla??? (ekki það að ég drekki kaffi, en kunninginn gerir það!!! ..... ég drekk bara eitthvað annað í staðinn!!!) .... well þá verð ég að viðurkenna að ég held að ég hafi farið á eitt stefnumót um ævina!!!!

Þá er komið að eigin ágæti aftur!!!

Fyrst það virðast ALLAR bloggkonur landsins vera endalaust á stefnumótum, og tala um það eins og ekkert sé sjálfsagðara en fara á stefnumót í tíma og ótíma, og að hreinlega ALLIR eru ALLTAF á stefnumótum (ég meina það þarf að gefa út leiðbeiningar og viðmiðunarreglur um hvað má og hvað má ekki á stefnumóturm) .......... hlýtur að vera eitthvað að mér, fyrst ég hef aldrei farið á stefnumót!!!!

Ég er aðeins búin að vera að kynna mér þetta:

Er ég ekki á Facebook? (þar gerast hlutirnir víst) - jú jú er þar..... en finnst bara vera endalaust einhverjir lúðar þar sem reyna að tala við mann, og jú ég gef þeim sko alveg séns....... belive me!!!!

Fer ég ekki út? (ekki bankar neinn uppá hjá manni svo út þarf maður nú að fara) - jú jú geri það ....... en er eiginlega alveg búin að fá nóg af misdrukknum, oftast ofdrukknum karlmönnum á veitingarhúsum borgarinnar!!!!

Er ég búin að skrá mig á einkamál.is (eða aðrar sambærilegar síður) - jú jú hef prófað það ........ en án þess að vera sérlega fordómafull eða með sleggjudóma eða alhæfingar, þá er fullmikið af perrum þar fyrir minn smekk!!!

En þrátt fyrir þessar aumu tilraunir mínar til þess að leggja út net, þá er mér aldrei boðið á stefnumót!!!!

Er það þá nokkuð skrítið að maður efist um eigið ágæti???

Þar sem ekkert kommentakerfi er hjá þessum fínu bloggskrifarastúlkum ....... get ég ekki sett inn fyrirspurnina:

"Hvernig í "#$&/%#"#$%#$%%&%#"#%&&/ ....... kemst maður á stefnumót????"

........... þó það sé ekki til annars en prófa öll þessi fínu ráð sem þessar skvísur eru endalaust að gefa!!!!
Frú Megabeib

Bara fyrir mig!!!

03. apríl 2011 klukkan 23:37
Einkasonurinn er að bera út hinn þjóðkunna Mogga.
Móðirin (hún ég) aðstoðar hann við að bera út þegar þess gerist þörf.

Mikið finnst mér alltaf eitthvað voðalega notalegt að bera út blöðin svona eldsnemma á morgnana þegar enginn er vaknaður nema ég ..... kannski einhverjir ekki farnir að sofa ...... en það er enginn á ferðinni nema ég!!!

Nýfallinn snjór og enginn búinn að stíga á hann, nema ég!

Fuglarnir syngja, bara fyrir mig.

Sólin kastar gullnum geislum sínum yfir mig.

Stjörnubjartur himininn skartar stjörnunum á himnunum eins og fallegu málverki, bara fyrir mig.

...... en óskaplega er ég nú samt glöð að þetta gerist ekki oftar en tvisvar í viku!!!

Fékk samt sem áður þá brjálæðislegu hugmynd að taka þetta bara að mér endalaust, svona alveg sér hverfi fyrir mig ...... en er búin að flokka það undir stundarbrjálæði!!!

......... og sit nú og bíð spennt eftir að það líði hjá!!!!
Frú Megabeib

Evróvisjón

02. mars 2011 klukkan 00:31
Ég er alveg miður mín yfir laginu sem við ætlum að senda í Júróvisjón þetta árið!

En það má náttla ekki segja það upphátt og tek það hér með til baka!

Ótrúlega viðkvæmt mál.

Ég er ekki að sjá að þetta lag hefði komist langt ef flytjandi og höfundur lagsins hefði flutt það sjálfur! ....... og ekki afþví að hann sé eitthvað slæmur flytjandi ...... laaaaaaangt frá því!!!!

...... mín skoðun er bara sú að ég held að lagið hafi fengið ansi mööööörg "samúðaratkvæði" þjóðarinnar og hafi ekkert með lagið slíkt að gera .... sama hver hefði flutt það!!!

Ég hef það sem reglu að horfa aldrei á íslensku undankeppnina í Júróvisjón. Mér finnst einfaldlega bara ekkert gaman að þessari sveitaútgáfu af Júróvisjón. En vil alveg endilega taka þátt í aðal keppninni því það er svo gaman!

Ég vona alveg innilega að Íslendingar eigi aldrei (já ég sagði aldrei) eftir að vinna þessa keppni, ég myndi ekki höndla sveitaútgáfu af Júróvisjón á Íslandinu góða.

Fyrir mig er nebblega sjówið, stórt svið, mikill umbúnaður og glamúr og misgóð lög aðal málið! ..... ég elllllllllska Júróvisjón!!!

Enda fór ég á Melody Grand Prix þegar það var í DK þarna um árið ....... og mikið var það gaman ....... er ekki alveg að sjá að þetta batterý kæmist fyrir í Laugardalshöllinni ..... eða Hörpunni ..... en það er svo annað mál!!!!

Þess vegna er mér svona oftast alveg sama hvaða lag tekur þátt, bara vera með og kannski vera með á lokakvöldinu, því það er jú skemmtilegra að horfa þá.

Fannst reyndar gaman að því þegar Páll Óskar tók sig til og "breytti" keppninni einn og óstuddur, eða þegar Silvía Nótt gerði allt vitlaust. Mér er líka í fersku minni þegar ICY hópurinn skutlaðist þarna út og ætlaði sko að meika það, eða þegar Sigga Beinteins varð í fjórða sæti og Jóhanna Guðrún í öðru sæti!!!!

En ó mæ god ....... þetta lag núna ..... er enganveginn að fíla það ....... er ekki aaaaalveg að sjá að restin af Evrópu gefi okkur mörg "samúðaratkvæði" ...... ekki einusinni Norðurlöndin!!!!

Fæ virkilega kjánahroll þegar ég heyri þetta lag .... en kannski verður þetta eins og um árið þegar ég heyrði lagið sem Danir ætluðu að senda í Júróvisjón ....... tveir gamlir kallar með gítar vælandi: "Smuk som et stjerneskud ....." skildi bara ekkert í því hvernig Dönum dytti í hug að senda þennan hrylling í keppnina!!! Og allir alvöru Júróvisjón aðdáendur vita hvernig það fór .......þeir sigruðu fjandans keppnina!!!!

....... kannski og já kannski verður þetta svona í ár ...

.... að við bara sigrum með þessum sveitalúðasöngvalagi ....... myndi það verða á ensku Back home again???

Sorrý en mín viðbrögð eru ..... hrollur, hrollur, kjánahrollur!!!!
Frú Megabeib

Að vera fullorðins!!!

27. febrúar 2011 klukkan 13:35
Finnst dáldið athyglisvert að það kemur æ oftar fyrir að mér líður eins og það sé hreinlega ekki pláss fyrir mig á þessu heimili!!!

Þegar ég kem heim úr vinnu á daginn, þá situr einkasonurinn í heimilistölvunni og einkadóttirin flatmagara fyrir framan sjónvarpið. HVAR á ég þá að vera??? ..... bara inní eldhúsi að lesa Moggann ...... eða vera að setja í þvottavél eða eitthvað annað óhemju leiðinlegt og fullorðins!!!!

Veti stundum ekkert hvað ég á að gera af mér þegar svona aðstæður mæta mér þegar ég kem heim ..... ef þetta er staðan þegar ég kem heim af fimeikaæfingu, þá fer ég bara að sofa og sendi börnin í rúmið líka ....... ferlega leiðinleg mamma!!!!

Svo nú gríp ég gæsina á meðan hún gefst ...... börnin sofandi á sunnudagsmorgni og ég orðin gömul og farin að vakna fyrir allar aldir ...... og sest í tölvuna og fletti í gegnum FB og aðra áhugaverða miðla netheima...... svona áður en börnin blessuð vakna!!!!

Klukkan farin að nálgast hádegi og það heyrist ekki hósti né stuna úr herbergjum unglinganna ....... kannski ég skelli bara í ammmmirískar pönnukökur og vonist til þess að lyktin lokki þau fram!!!

......... eða þá ég fer bara og ræð krossgátuna í sunnudags Mogganum ..... það er svona alvöru fullorðins!!!!
Frú Megabeib

Iss piss og pelamál .......

24. febrúar 2011 klukkan 18:16
Er að hugsa um að fara að flytja inn Trönuberjasafa ..... miðað við magnið sem ég drekk af honum, getur ekki annað verið en það borgi sig!!!!

Er orðin dáldið mikið laaaaaangþreytt á þessari leiðindar "blöðrubólgu" sem ég er endalaust með.

Já ég er búin að fara til læknis og hann sagði að það væri ekkert hægt að gera.

Já er búin að fara til grasalæknis og hún lét mig hafa laaaaaaangan lista yfir hluti sem ég ætti ekki að borða og ég ætti að forðast. Ég geri mitt allra ALLRA besta í því, en það virðist ekki skipta neinu einasta máli hvort ég fari eftir listanum eða ekki ...... óþægindin í blöðrunni eru endalaust til staðar!!!!

Líður eins og ég sé með stanslausa "tannpínu" þarna niðri.

Svo er þetta náttla ótrúlega viðkvæmt svæði sem um er að ræða .....hver vill eiga við blöðruvandamál að stríða???

Ja ekki hún ég ...... svo mikið er víst!!!

Finnst mér þetta alveg óendanlega, hrikalega, ferlega þreytandi og einstaklega óþægilegt og pirrandi!!!!

Ég er náttúrulega mis slæm, en geri mér enga grein fyrir því afhverju ég er verri einn daginn frekar en annan.

Einhverju sinni var ég að fara í Hafnarfjörðinn, ég var sérlega slæm þann daginn, ég pissaði áður en ég fór af stað, en þurfti að stoppa hjá Sprengisandi til þess að pissa!!!! ..... jú það er alveg rétt, ekkert klósett þar, svo ég pissaði bara utandyra!!!! .... á föstudegi klukkan fimm!!!! ...... legg ekki meira á þig!!!!

Svo fór ég nú uppá jökul þegar eldgosið var þarna um daginn! ...... og jú var einmitt sérlega slæm þann daginn!!! Þurfti að láta bílinn stoppa nokkrum sinnum fyrir mig svo ég kæmist út að pissa!!! Hvernig haldið þið að það sé að vera stödd uppi á miðjum jökli í snjósleðagalla í stórhríð og þurfa að fara út og pissa??? ...... júbb það er rétt hjá ykkur ....... ekki sérlega vænn kostur ..... en sá eini sem var í stöðunni!!! ....... og þar var ekki einusinni steinn til að pissa á bakvið!!! Guði sé lof fyrir hríðina, sko fyrir hina farþegana, ekki rassinn á mér!!!

Og já .... ég pissa alveg helling í hvert skipti sem ég fer á klósettið ...... þannig að þetta er ekki "venjuleg" blöðrubólga...... þrátt fyrir að trönuberjasafinn slái ótrúlega á þessa undarlegu "tannpínu"!!!

Er núna alvarlega að hugsa um að panta mér tíma hjá lækni og slá í borðið og segja sem svo:"þetta getur enganveginn talist eðlilegt, og það HLÝTUR að vera hægt að gera eitthvað"

Ég er alveg að fara að verða mest hrædd um að ég sé á leiðinni að eyðileggja í mér nýrun!!!!

Í næsta lífi ætla ég að fæðast með typpi!!!!

Farin að setja í þvottavél ..........

........ góðar stundir!!!!
Frú Megabeib

Að ljúga eða ljúga ekki!!!!

23. febrúar 2011 klukkan 00:21
Mér finnst þessi alveg dásamleg ........

Dag einn, þegar saumakonan sat og vann á árbakkanum, þá missti hún
fingurbjörgina sína útí ána. Hún hrópaði upp yfir sig í örvæntingu og
henni til mikillar undrunar birtist Drottinn sjálfur og spurði: Hvers
vegna grætur þú ? Saumkonan svaraði að fingurbjörgin hennar hefði fallið í
vatnið og hún þyrfti á fingurbjörginni að halda svo hún gæti aðstoða bónda
sinn við að afla tekna til heimilisins.

Drottinn hvarf ofan í vatnið og kom til baka með gullfingurbjörg. "Er
þetta fingurbjörgin þín?" spurði Drottinn. Saumakonan svaraði neitandi og
þá hvarf Drottinn aftur í vatnið og kom upp með demantsfingurbjörg. "Er
þetta fingurbjörgin þín?" spurði Drottinn en saumkonan neitaði því. Enn
hvarf drottinn ofan í vatnið og kom nú upp með silfurfingurbjörg og spurði
hvort þetta væri sú rétta og saumakonan jánkaði því. Drottinn var mjög
ánægður með sannsögli konunnar og færði henni allar fingurbjargirnar þrjár
til eignar að launum, og saumkonan hélt glöð heim á leið.

Nokkru síðar þegar saumakonan var á göngu eftir árbakkanum með eiginmanni
sínum, datt hann í ána. Þegar hún hrópaði upp yfir sig í örvæntingu,
birtist Drottinn enn á ný og spurði hvers vegna hún gréti? "Æi guð,
maðurinn minn datt í ána". Guð stakk sér í ána og kom til baka með Mel
Gibson. "Er þetta eiginmaður þinn?" spurði hann. "Já" hrópaði saumakonan.

Drottinn reiddist. "Þú lýgur" sagði hann. "Æ, fyrirgefðu Drottinn, þetta á
sér sínar skýringar. Sjáðu til, ef ég hefði sagt nei við Mel Gibsons,
hefðir þú næst komið með Tom Cruise og ef ég hefði sagt nei við honum, þá
hefir þú komið með eiginmann minn. Ef ég hefði sagt já við honum þá hefðir
þú gefið mér þá alla þrjá og þar sem ég er ekki lengur eins hress og ég
var þegar ég var yngri hefði ég aldrei getað sinnt þeim öllum þremur. Þess
vegna sagði ég já við Mel Gibson.

Mórall sögunnar: Þegar konur ljúga, er það af heiðvirðum ástæðum og öðrum
til heilla. Þetta er okkar skoðun og við stöndum við hana!
Frú Megabeib

Kollhnís ....... kollnís???

18. febrúar 2011 klukkan 20:58
Nú skal eitt stk. stúlku ....... já eða kvenmanni ..... fæ mig bara ekki til að skrifa konu sko ...... komið í eitt stk. form!!!!

Á dagskránni er:

Fimleikar, 2-3x í viku.
Jú jitsú 2x í viku.
Pilates heima 2-5x í viku (fer svona eftir nennu)
....... og húllahopp þess á milli ...... svona þegar það finnst laus stund!!!!

Er þetta ekki snilldar plan????

....... ég ætla allavega að gera mitt allra, ALLRA, A L L R A besta til þess að framfylgja því og ná settu markmiði...... sem er ekki af verri endanum sko ....... HANDAHLAUP UM PÁSKANA!!!!!

Ég er búin að fara á fimleikaæfingar ........ á reyndar enga samleið með hinu "fullorðna" fólkinu í þessari fullorðins leikfimi ...... en ég læt mig hafa það!!! Þetta eru allt fyrrverandi fimleikastjörnur og hafa æft einhverntíman fimleika af krafti ...... en ég er bara byrjandi á gamals aldri!!!! ....... en það er allt í lagi ........ því ég er að þessu fyrst og fremst fyrir mig ........ og jú börnin mín ...... ekki fyrir hitt fimleikaliðið!!!!

Ég er voðalega ánægð með að ég er búin að hafa það af að komast í kollhnís (skrifar maður það ekki svona???) ........ hélt reyndar að ég myndi hálsbrjóta mig þegar ég fór í þann fyrsta....... en get núna farið í kollhnís og staðið uppúr honum aftur meira að segja ........ svo markmiðið er ekki svo svakalega fjarlægt eins og það var áður ....... þetta kemur sko allt saman ....... bara með þessu kalda er þaggi????

Gleðilegur fylgifiskur markmiðsins er sá að ég kemst í þokkalegt form og ennþá ánægjulegri hliðarverkun er þyngdartap!!!! BIG like á það sko!!!!

I´ll keep in tötts!!!!
Frú Megabeib

Símasala!!!

04. febrúar 2011 klukkan 21:37
Hvað er þetta með símasölufólk???

Held að á einni góðri viku í janúar hafi hringt í mig 7 stk. símasölufólk!!!
Vilja endilega að ég skipti um tryggingarfélag, bjóða áskrift af tímaritum og blöðum, lækka símakostnaðinn ..... og eitthvað fleira sem ég man ekki því ég stoppaði viðkomandi um leið og hann fór af stað ....... síminn hérna hringir nebblega ekki á kvöldin nema það sé símasölufólk ....... eða síminn hérna hringir nánast bara aldrei!!!! ..... veit ekki alveg afhverju ég er með heimasíma, en það er annað mál!!!!

Eina sem mér fannst áhugavert var þetta símasölufyrirtækið, þeir sögðu að þeir gætu lækkað símareikninginn minn niður um helming, í það minnsta.
Ég er nú ekkert ofur æst yfir því að skipta um símasölufyrirtæki, eftir fyrri reynslu mína af þvílíkum skiptum! ....... en allt í lagi, látum á það reyna..... sendu mér þá bara póst með tilboðinu þínu og hringdu svo í mig til að fylgja því eftir ...... aha ...... einmitt ...... til að gera langa sögu stutta, þá er ég aldrei búin að fá póstinn, en þeir eru búnir að hringja aftur frá símasölufyrirtækinu til að spyrja mig hvort ég vilji ekki skipta!!!!

Jú einmitt ......... ég er alveg æst í að skipta ....... geri ráð fyrir að þjónustan sé alveg í toppi, svona eins og sölumaðurinn lofaði!!!! ...... þetta sýnir bara enn og aftur að maður á ekki að treysta sölumönnum!!!! ...... ég meina þeir eru ekki einusinni færir um að senda eins og einn tölvupóst hvað þá annað!!!!

....... glætan að ég skipti um fyrirtæki!!!!
Frú Megabeib

Jamms ...... er í sjokki ...... og þarf að skrifa mig frá því!!!!

19. janúar 2011 klukkan 21:37
Er bara algerlega í sjokki ...... eða miður mín!!!

Ég lenti í því í dag að verða alveg stjörnuhppandi öskrandi reið!!! ...... held bara að ég hafi ekki orðið svona stjörnuhoppandi öskrandi reið síðan ég öskraði á ísskápssölumanninn forðum!!!!

Mér er allavega ennþá illt í raddböndunum ...... sko bara síðan í dag ...... ekki síðan forðum!!!!

Sagan:

Ég var að leggja í stæði.
Það var mikil vöntun á stæðum.
Það voru merkt stæði við hliðina á stæðinu sem ég ætlaði í þar sem á stóð "P Kistufell".... man bara hreinlega ekki hvort það stóð einkastæði á skiltinu líka! En það var ekki merkt númeri og ekki teikningu um að bíllinn yrði dreginn í burtu!!!!
Það var mikið rusl og drasl fyrir framan eitthvað sem gæti alveg verið hornið á alveg eins skilti sem stæði á "P Kistufell", svo maður rétt sá í hornið þar sem mátti lesa "fell".
Klukkan var rétt rúmlega fimm.
Það var einmitt bíll að fara úr stæðinu þegar ég kom að og taldi ég mig heppna, þar sem, eins og áður sagði, mikil vöntun á bílastæðum!!!

Ég vissi það þegar ég lagði í stæðið að ég ætti nú kannski ekkert að leggja þarna ...... en klukkan var nú orðin svo margt, ekki langur tími eftir af opnunartíma dagsins og þar fyrir utan gæti ég bara hlaupið inn og sagt að ég hefði ekki séð skiltið fyrir öllu draslinu þarna fyrir framan!!! Því ég legg það ekki í vana minn að leggja í einkastæði (því það fer alveg óskaplega í taugarnar á mér þegar lagt er í mitt stæði), fyrir utan það að ég var á merktum bíl ...... ekkert voðalega sniðugt að láta draga vinnubílinn í burtu ...... eða fá einhverja sekt á hann ...... þar sem ég var nú einusinni í einkaerindum!!!

En ég átti ekki von á því að maðurinn kæmi út úr búðinni, hundskammaði mig, leyfði mér ekki að útskýra mál mitt, leyfði mér ekki að ræða við hann í rólegheitunum, var æstur og ógnandi ..... já á tímabili hélt ég hreinlega að hann ætlaði að lemja mig!!!

Ég á mér engar málsbætur ..... ég endaði á því að verða dónaleg, nota ljót orð, og hreinlega öskra (já mér er ennþá illt í raddböndunum) á þessa menn ...... jú þeir voru orðnir tveir ..... annar ofvaxið sterabarn og hitt eldri maður með krypplóttar lappir á hækjum!!!!

Ég meina ég komst ekki einusinni að bílnum til þess að fara í hann þegar hótununum rigndi yfir mig um að bíllinn yrði bara dreginn í burtu ef ég færði hann ekki ....... þvílík FÍFL!!!

Ég gat ekki sagt að þetta væri bara hið minnsta mál, ég myndi bara færa bílinn ....... þá var ég farinn að rífast við ofvaxna sterabarnið ....... þvílíkt FÍFL!!!!

Ég skammast mín alveg hræðilega fyrir að hafa gjörsamlega misst stjórn á skapi mínu ..... en það er alveg hreinar línur að það er ekki ræðandi við þessa menn ...... þeir hlusta ekki ....... þvílík FÍFL!!!

Ég bað ofvaxna sterabarnið að róa sig ..... hann sagði að ég hefði bara byrjað að rífast við hann, sem ég gerði bara alls ekki ..........þvílíkt FÍFL!!!!

Nú ætla ég ekki að eyða meiri tíma eða orku í þetta FÍFL ....... enda hefur hann engan rétt á því að eyðileggja meira fyrir mér daginn!!!

Víst nægur þessi hausverkur og óreglulegi hjartsláttur sem ég er búin að hafa síðan þetta atvik með FÍFLINU átti sér stað!!!!

Ég ætla rétt að vona að þessi gamli á efri hæðinni geri mér það ekki að ég þurfi einhverntíman að fara í Varahlutaverslunina Kistufell og kaupa varahluti ...... ég veit ekki einu sinni hvernig varahluti þeir eru að selja!!!

.......... en ég hef þá í það minnsta rétt á því að leggja í stæðið!!!!!
Frú Megabeib

Hlakka til að fara að sofa!!!!

08. janúar 2011 klukkan 16:32
Bara hamagangur í öskjunni!!!

...... þessi blogg koma alveg í gusum!!! .... skal reyna að hemja mig í þessum skrifum..... þetta getur ekki verið hollt!!!!

....... annars langaði mig bara að deila því með umheiminum að ég er á leiðinni í sturtu!!!

Ótrúlega merkileg frétt ..... sérstaklega þar sem jólabaðið er nú ný-yfirstaðið!!! ...... eða þanni hehehehe.

Nei er sko á leiðinni í sturtu og svo er ég á leiðinni í draumalandið ..... og klukkan er ekki einusinni orðin 11 á föstudagskvöldi ..... en bæði börnin sofnuð!!! HVAÐ ER EIGINLEGA Í GANGI Á ÞESSU HEIMILI!!!??? ....... maður spyr sig .........

..... en aftur að sturtunni ...... finnst eins og ég vaði úr einu í annað og komi því ekki niður sem ég ætlaði að pikka hér á skjáinn ...... ferlega hljómar þetta einkennilega undarlega!!!! ..... en skilaboðin komust til skila .... eða hvað??? ..... maður spyr sig!!!

Sturtan já ...... þegar henni er lokið og áður en ég renn ljúflega inn í draumalandið ....... ætla ég að leggjast upp í glænýja rúmið mitt!!!!

Eða kannski ekki svo mikið glænýja rúmið mitt ...... heldur bara glænýja sængurverið, glænýja koddaverið, glænýja lakið og glænýja pífulakið og að því algerlega ógleymdu ..... GLÆNÝJU SÆNGINNI!!!!

Fékk hana og sængurverið og allt það, í jólagjöf frá vinnunni ...... eða sko ekki beint frá vinnunni ..... ekki það að yfirmenn mínir hafi hugsað með sér:"hmmmm .... hvað ætli henni langi nú mest í jólagjöf, já sæng og sængurver, best að kaupa svoleiðis handa henni"!!!! ..... nei nei ónei ...... heldur fékk ég bara voðalega rausnarlegt debetkort (ekkert stærra en venjulegt debetkort sko, en vel fullt af fjármunum!!!) ..... og fór ég og fjárfesti í sæng og tilbehøri ...... og nú hlakka ég bara til að fara uppí rúm og sofa ...... mamma sagði nebblega að ég mætti ekki setja þetta á fyrr en eftir þrettándann ........ hún bannaði mér það kannski ekki þannig .... en kom með þessa fínu hugmynd .... sem að sjálfsögðu var keypt ..... fyrir allan peninginn (sko hugmyndin!!!)

Er algerlega komin í þvaðrið ........ enda á ég ekkert að vera að sitja hérna ... heldur vera á leiðinni í sturtu!!!

Pabbi hafði af því smá áhyggjur að nú þyrftu vinnufélagarnir að koma hver af öðrum og fá að prufa sængina ..... en ég sagði honum að anda rólega ...... þetta væri bara fyrir útvalda ..... mig og börnin!!!

Keypti nebblega tvíbreiða sæng .... sem er náttla bara fyrir ástfangið fólk (það hef ég allavega ALLTAF sagt) ...... eða (var að bæta því við núna) einstæðar mæður með tvo unglinga sem finnst gott að koma uppí rúm að kúra hjá mömmunni sinni (vinsamlegast ekki hafa þetta eftir við börnin ...... það þykir nebblega ekki hipp og kúl að kúra við mömmu sína þegar maður er orðinn svona gamall!!!!)

Til að kóróna herlegheitin, keypti ég eingöngu SVARTAN sængurfatnað!!!! .... fannst allt í einu nauðsynlegt að vera með svört sængurföt ...... mér finnst það kúl!!!!

Er farin í þessa sturtu og svo ætla ég að líða inn í draumalandið ...... á hvítu skýi .... nei frekar svörtu ...... neibb finn ekkert sem er svart og ofur kósí og fallegt til að toppa hvíta skýið  ......

... nema náttla rúmið mitt!!!!
Frú Megabeib

Að frjósa til dauðs!!!!

07. janúar 2011 klukkan 13:17
Hélt hreinlega að ég myndi frjósa til dauðs í dag!
Ó mæ god hvað það var kalt!
... og ég að vinna úti .... eða svona inni/úti!!! .... hlaupa inn og útúr bílnum sem var aldrei keyrður nógu langt til að hann næði að hitna .....
Eitthvað á þessa leið (vinsamlegast hafið í huga að þegar stoppið er viðhaft þá er drepið á bílnum og ég fer úr honum, á meðan nær bíllinn að sjálfsögðu að kæla sig niður, ef svo vel vill til að hann hafi nú verið farinn að hitna þessi elllllllllska):

keyrt í 4 mín - stoppað í 8 mín
keyrt í 3 mín - stoppað í 9 mín
keyrt í 5 mín - stoppað í 3 mín
keyrt í 4 mín - stoppað í 15 mín

já já þetta er kannski ekki alveg nákvæm rannsókn, eða þetta er svona eitthvað nærri lagi!!! ...... en þetta gefur leikmönnum skýringu á því afhverju bíllinn er alltaf kaldur og mér skítkalt!!!!

Í morgun þegar ég klæddi mig til vinnu ...... var ég svo heppin að vera búin að fara út í morgun (að bera út) og vissi uppá hár hvað það væri kalt úti....... svo með þá vitneskju bjó ég mig extra vel svo ég gæti einmitt komist hjá því að frjósa til dauðs!!!

Ég fór í eftirtaldar flíkur:
Nærhald
Brjóstahaldara
Sokkabuxur 
Nærbol 
Rúllukragapeysu
Gollu (hneppt peysa, svona fyrir þá sem ekki er með það á hreinu hvað golla er!!!)
Flíspeysu
Buxur
Ég setti innlegg í skóna, svo það væri ekki eins kalt að stíga til jarðar
Ég fór í legghlífar, svo kuldinn næði því ekki að smjúga inn upp eftir buxnaskálmunum
Áður en ég fór útúr húsinu bætti ég við buffi um hálsinn, húfu á höfuðið, hlýjum leðurhönskum á hendurnar og bestu og frábærustu og hlýjustu úlpunni var skellt á líkamann í þeirri veiku von að hitinn næði því að haldast innan líkamans!!!

En ég fraus næstum því til dauðs!!!!

Ég meira að segja ákvað að keyra alla leið í Hafnarfjörðinn í dag, svona til þess að ná því að hita bílkvikindið (sem er hið vænsta faratæki á öllum öðrum dögum nema í frosthörkum), næði því að hitna að einhverju ráði.

Jú jú tilgangnum var náð ....... en hann kólnaði líka niður með ógnarhraða þegar ég kom á áfangastað!!!!

Svo ég gafst upp!!!!

Það þýðir ekkert að vera Gordjöss ..... ef þú ert blá af kulda með grýlukertin hangandi úr nefinu ..... nú er það bara skynsemi-punktur-is!!!!! ULLARNÆFÖT!!!!

Já nei ekki brjóstarahaldara og G-streng ...... það er ekki að gera sig ...... heldur bara gamlar og góðar ullarsíðar nærur og ullarsíðerma nærbol!!!!

Ekkert sérlega gordjöss ........ en...... kannski verður mér heitt!!!!!

Ég fjárfesti í einu slíku setti í dag ..... og er að sjálfsögðu komin í það og er alveg stórkostlega gordjöss þar sem ég spranga hérna um á ullarnærhaldinu einu fata!!!! ..... ætli ég taki ekki bara Svanavatnið eins og pabbi í gamla daga!!!!

Varúð - Varúð ...... í anda Mólder og Sköllí: The Cold is out there!!! 
Frú Megabeib

Á nýju ári!!!!

03. janúar 2011 klukkan 02:30

Á hverju ári þá rennur upp nýtt ár!!! ........ hmmmmm þetta hljómar eitthvað undarlega!!!

 

.......... en í það minnsta þá eru áramót, árlega ........ og á slíkum stundum er oftar en ekki kominn tími til að líta yfir árið sem á undan er gengið og meta það með kostum þess og göllum.

 

Það er ég búin að vera að dunda mér við síðan klukkan átta í morgun ........ ég gat bara ómögulega sofið lengur!!!!

 

Held að það sé allt þetta át ........ sælgætisát, snakkát, matarát!!!! ........ er þrútin og uppblásin ..... lítur eins og ég sé búin að fá mér bótox í varirnar ..... og fingurnar ...... og fæturnar ......... nei það hlýtur að vera eitthvað annað!!!! ....... það er ekki bótox .... eða hvað??? Bótox gerir mann sléttan og fallegan ..... og mér líður pottþétt ekki svoleiðis núna!!!

 

Er búin að rífa niður öll gömul markmiðsplön sem ég fann ....... stefni að nýjum og skemmtilegum markmiðum á þessu nýja fína ári!!!! ........ er það ekki alltaf það sem maður stefnir að svona um hver einustu áramót???

 

Er ekki búin að skrifa þau niður ..... en mun gera það, þar sem annars eiga þessi markmið til í að gleymast og hverfa ....... gott að hafa þau svona uppi við til að minna sig reglulega á hver þau eru!!!!

 

Fyrsta markmiðið er að geta farið í handahlaup um páskana ..... legg ekki meira á þig!!!!

 

......... en það er ALLT hægt ef viljinn er fyrir hendi ....... svo nú hefjast strangar æfingar svo markmiðinu verði náð!!!

 

Ég meina ég vann nú einusinni húllahopp keppnina ...... æfingar og ekkert annað en æfingar!!!!

 

Þeir segja (þessir sem svo svakalega mikið vit hafa á öllum hlutum) ...... að t.d. góður íþróttamaður sé bara 10% hæfileikar og 90% stanslausar æfingar og þjálfun!!!!  ........ svo ég hlýt að geta farið í handahlaup um páskana 2011 ....... ef ég æfi mig og æfi og æfi og æfi og æfi mig kannski pínu meira!!!!

Frú Megabeib

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Klukkan

Leit

Innskráningar kubbur

Flokkar