Velkommen!!!!!!!!!!
Jæja þá er ekki annað að gera en hella sér út í að skrifa og skrifa og skrifa...... ætti eiginlega að fara að skrifa þessa bók sem er alltaf að brjótast um í hausnum á mér!!! En finnst ég aldrei hafa tíma til þess..... kemur kannski einn daginn!!! Er með svo margar hugmyndir að ég ætti kannski að ákveða mig og byrja á eins og einni bók!!! Nei ekkert svona bullllllll..... nóg annað að gerast hérna þessa dagana!!!!!!!!!! Geri það þegar ég hef tíma (jeh wright... og hvenær er það????)´
Þetta er helst í fréttum:
Vorum með afmæli fyrir einkadótturina í gær, fyrir vini og ættingja.... heppnaðist það bara vel og er prinsessan í skýjunum. Mikið var gaman að hitta alla........ og ég er frekar stolt af mér að hafa haldið uppá það núna........ en ekki bíða með það fram í nóvember eins og gerst hefur!!!!!!!
Eiginmaðurinn er að fara blóðprufu á eftir til að tékka á blóðinu hans og sjá hvort að allt sé ekki orðið klárt fyrir næstu lyfjameðferð, sem hefst þá væntanlega á morgun.
Frúin er að fara í Borgarleikhúsið og hitta búningahönnuð!!!! Jú jú passar!!!! Búningahönnuðinn vantar vantar hatta í sýningu hjá sér, og frúin er jú einusinni hattahönnuður!!!!! Og getur að sjálfsögðu reddað höttum í sýninguna!!! Í LEIKHÚSINUM!!!!!!!!! Jesssss jesssss jesssssssssssss!!!!!
Svo erum við hjónin að fara í dag og hitta orkumiðlarann ógurlega hann Damien!!! Hlakka dáldið til þess að hitta hann........ verð að segja það!!! Er búin að heyra dáldið af honum....... þetta verður spennó!!!!
Og síðast en ekki síst er það í fréttum að ég er búin að brjóta fína mixarann minn!!!! (var einmitt að passa að setja ekki klakana neðst!!!!!!) En þar sem ég var svo sniðug að kaupa ALVÖRU blandara frá Kitchen Aid, þá gat ég (eða eiginlega maðurinn minn, ég skammaðist mín of mikið!!!!) farið og fengið nýtt svona stykki alveg eins og það sem mér tókst að brjóta!!!! Þetta er víst voðalega algengt..... að maður brjóti þessi stykki.....hjúkk mikill léttir ..... það er ekki BARA ég og Guðrún sem erum svona miklir klaufar!!!!!!!!! Þannig að nú virkar hann aftur þessi elllllllllllska!!!!!!! Eitt besta heimilistæki sem ég hef eignast um ævina!!!!
Veðurfréttir:
Rok og sól!!
Vona að þessi síðuskipti valdi ekki miklu raski hjá ykkur........ set inn link hérna til hliðar ef þið skilduð eiga erindi á gamle siden......... hlakka til að sjá ykkur í kvittinu!!!
Þangað til næst;
ég

Ekkert smá spennandi Frú Hattadama...........
Vona að ég komist inn ekki alveg sú klárasta við þetta, en................
Þar fór í verra með Mixarann, má ekki sleppa klökum, manni verður þá ekki kalt á meðan.........
Að sjálfsögðu gengur blóðprufan vel,,,, og spennandi að hitta hinn ógurlega Damien.......
Knús í bæinn til ykkar allra...........
Heyrðu frábært þetta með hattasauminn, þessu rúllar frúin nú upp léttilega.
Damien...hef ekki grænan hver það er...spurning um að fá að vita meira??
Gangi ykkur sem allra allra best.
Kveðja úr þónokkri sumarblíðu, svei mér þá.
Hafdís
Hilsen smilsen.....
þangað til næst
Ósk fimma
Og TAKK fyrir okkur í gær. Mikið var frábært að hitta ykkur öll. Virkilega gott að borða (Fríður og Hæi - frábærir kokkar) og skemmtilegur félagsskapur Hvað er betra en það ? Alltaf svo gott að hlægja, sérstaklega fyrir innilokaða húsmóður, (sem er aðeins of föst í stumpunum !!!!!!) Skemmtilegt að fylgjast með hattamálum þínum, .þú rúllar þessu upp.
Ég hef alltaf vitað það að þú yrðir leikhúsdíva. Það gengur allt vel á morgun hjá ykkur, og svo verður spennandi að heyra meira um þennan Damian, hver sem hann nú er....
Ég hef alltaf sagt það að þú ert virkilega skemmtilegur penni og það er mjög gaman að lesa hugrenningar þínar og frásagnir. Hlakka mikið til að lesa bókina þegar hún kemur út.
ponslu kveðjur úr mosó :)
Knús & Kram
Stina
ps. flott síða...fíla bleika lookið :o)
Varðandi þessa fluttning, þá er ekkert komment annað en að letrið er mjög lítð, sjálfsagt hægt að laga það, er þakkki?
Og þú mögnuð að vera búin að halda upp á afmæli einkadótturinnar STRAX. Ég ætti kannski að huga að því að fara að halda smá teiti fyrir einkason minn :-S
Gangi þér vel í hattahönnuninni og bara með allt hitt líka.
Kv. Begga bauni
Elsa Dögg
P.s.
Stjúpi (Kristján í Smiðjustál) biður að heilsa.
køthamri fast!!! og madur fær góda hreifingu fyrir handleggina :-)
Ragga
Knús og kossar til ykkar allra
Nanan
Ponslukveðjur
Og takk fyrir mig á sunnudaginn:O)
kossar og knús úr kjallaranum
til lukku með nýju síðuna