Prófíll

  • Nafn: Frú Megabeib
  • Stađur: On the Kleik

Auglýsing

Prófíll

  • Nafn: Frú Megabeib
  • Stađur: On the Kleik

Prófíll

  • Nafn: Frú Megabeib
  • Stađur: On the Kleik

Ég

Takk, takk, takk, TAKK, takk, TAKK!!!!!!!!!

06. október 2007 klukkan 14:30
TAKK FYRIR!!!!!!!!

Jú jú ..... búin að opna pakkann......... Takk kærlega fyrir okkur!!!  Við hjónin sátum hér og héldumst í hendur og felldum tár, og börnin horfðu á okkur og spurðu hvað væri eiginlega að!!!!  Við komum þeim í skilning um að þetta væru gleðitár!!
Við erum svo þakklát, og glöð, og ánægð og ÞAKKLÁT!!!!
Takk fyrir okkur!!!!!!

Í pakkanum var: Geisladiskurinn "Látum sem ekkert C" með Halla, Ladda og Gísla Rúnari og ........ já og vitið bara hvað......... Leikhúsmiðar!!!!  Miðar á showið hans Ladda!!!!!!!!!!!!!!!  Alveg frábært!!!!  Miðar fyrir alla fjölskylduna!!!!  Þetta er stórkostlegt!!!!!!!  Þá getum við farið og hlegið saman fjölskyldan!!!!  Og krakkarnir séð Ladda (þau vita ekki hver hann er... spáið í það!!!)

Og frá hverjum er pakkinn?????

Frá frábæru vinunum okkar sem við kynntumst í Sönderborginni...... eins og Elma sagði; eins gott að við fórum þarna út í nám og kynntumst þessu frábæra fólki!!!!  Þið eruð ÖLL alveg dásamlega ÆÐISLEG!!!!

Takk enn og aftur fyrir okkur!!!

Við erum svo þakklát fyrir alla vini okkar sem við eigum. 
Við erum svo þakklát fyrir fjölskylduna okkar.
Við erum svo þakklát fyrir alla sem senda okkur góða strauma.

Allir vinir okkar nær og fjær, þið eruð dásamlega æðislega frábær.
Takk fyrir að vera til og takk fyrir að styðja okkur og senda okkur jákvæða strauma.
Takk fyrir að vera með okkur í baráttunni...... gott að hafa svona sterkt og gott lið á bakvið sit.
Takk fyrir ALLT....... ALLIR!!!!

Sniff sniff......... nú get ég ekki skrifað meira í bili........ þarf að fara í sturtu....... því við erum að fara í afmæli....... ÖLL fjölskyldan!!!!

Knús og kossar til ykkar ALLRA frá okkur ÖLLUM!!!!!

Over and out

ég
Frú Megabeib
Alice skrifar ...
 
Kære alle 4!
I ønskes rigtig glædelig tur i teateret.
Knus fra alle os i Hvidovre.
06. október 2007 klukkan 15:55
Begga Bauni skrifar ...
Geggjað, ekki amalegt að fá svona pakka.
Góða helgarrest og góða skemmtun á showinu.
Kv. Begga
06. október 2007 klukkan 21:44
Anna fimma skrifar ...
 
Kæru vinir. Til lukku með pakkann og góða skemmtun. Saknaði ykkar í dag og ég vona að dagurinn hafi verið ykkur góður hjá ykkur. Hlýjar kveðjur héðan úr Mosó.
06. október 2007 klukkan 23:40
Edda á Íslandi skrifar ...
 
Til lukku, ábyggilega frábært "show" og örugglega hægt að hlægja....
kveðja
08. október 2007 klukkan 10:30
Anna fimma skrifar ...
 
Bara rétt að kíkja í heimsókn, takk fyrir kaffið ;-) kvitt, kvitt.
ponsla
08. október 2007 klukkan 13:46
Gudrún Thorleifs skrifar ...
 
Smá kvitt úr vinnunni.
Aldeilis var tetta frábær pakki!!!
Knús og gódar kvedjur :)
08. október 2007 klukkan 18:58
Elsa Dögg skrifar ...
 
Hæ hæ. Bara rétt að kíkja við. Bið að heilsa.
Elsa Dögg
09. október 2007 klukkan 15:45
Alice skrifar ...
 
kiggede bare forbi........................
09. október 2007 klukkan 19:17
Lára í Sönder skrifar ...
knus og kram
11. október 2007 klukkan 12:02
Gunnar skrifar ...
 
Átti leyð hjá í morgunn og hér í dag. Verðum í bandi
11. október 2007 klukkan 12:17
Elísa skrifar ...
 
Hæ elsku dúllurnar mínar

Hugsa til ykkar á hverjum degi....

Knúss og kram...
Ykkar vinir Elísa og co
11. október 2007 klukkan 19:19
Gudrún Thorleifs skrifar ...
 
Knús og gódar kvedjur.
12. október 2007 klukkan 19:58

Skrifa athugasemd

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Ţennan mánuđ: ...
  • Frá upphafi: ...

Klukkan

Leit

Innskráningar kubbur

Flokkar