Prófíll

  • Nafn: Frú Megabeib
  • Staður: On the Kleik

Auglýsing

Prófíll

  • Nafn: Frú Megabeib
  • Staður: On the Kleik

Prófíll

  • Nafn: Frú Megabeib
  • Staður: On the Kleik

Ég

Djöst blogging aránd!!!

26. október 2007 klukkan 14:02

Hjá okkur gengur lífið sinn vanagang.  Þó erfitt sé að samlaga breyttum aðstæðum heimilislífinu..... reynum við okkar besta og þetta er nú allt að koma..... svona með kalda vatninu!!!!

Eiginmaðurinn er alveg ofboðslega þreyttur og fara geislarnir ekkert voðalega vel í hann.  Sefur hann og sefur!!!  En það er víst fylgikvilli og ekkert við því að gera.  Geri mitt besta til að reyna að sætta mig við það....... gengur frekar illa...... en æfingin skapar meistarann ekki satttt????

Hef ég tekið upp þann sið að taka símann af á kvöldin...... svo við fáum næði...... þegar maðurinn er vakandi....... og svo líka börnin okkar fái smá athygli...... svona áður en þau fara að sofa....... og svo ég fái ró og frið...... þurfi t.d. ekki að vera að svara símasölufólki!!!!
Er þetta svakalega stórt, erfitt og mikilvægt skref fyrir mig....... taka símann af!!!!!  En þetta gefur ofboðslega mikið.

Eins með að þiggja þá hjálp sem endalaust er verið að bjóða mér........ en ég er að verða klárai í því...... þáði t.d. kökurnar frá svilkonunum í afmæli sonarins og fékk eyrun lánuð hjá hjúkkunni og svona ýmislegt sem mér er að takast!!!!  Er ég nú bara frekar stolt af mér...... verð að segja það!!!!!

Annars er ég alveg óendanlega heppin........ ég hef mömmu og pabba hérna hjá mér til að hjálpa mér með ALLT.  Alger forréttindi!!!!  veit ekki hvernig ég færi að ef þau væru ekki hérna!!!!  Hjálpa mér við að þvo, elda mat og sinna börnunum........ alveg rosalega heppin.......... já bara svona heimskulegann hlut eins og versla eða tæma uppþvottavélina!!!!  Sé það alveg fyrir mér að ég myndi nú bara sleppa þessum hlutum ef þau væru ekki hér!!!!!  Óendanlega þakklát fyrir að hafa þau!!!!

Takk fyrir alla orkustraumana.
Takk fyrir að vera svona dugleg að kvitta, þó ég sé ekki dugleg að blogga.
Takk fyrir að hugsa til okkar, við metum það mikils.
Jákvæðar hugsanir gera svoooooo mikið.

Knús til ykkar, allann hringinnnnnnnn......

ég

Frú Megabeib
Gústa skrifar ...
 
sæl Linda mín
hef verið að fylgjast með ykkur og á erfitt með að skilja af hverju svona mikið er lagt á suma, en þeir segja að "Hann" leggi ekki meira á okkur en við þolum, svo mikið hljótið þig að vera dugleg.

Bestu kveðjur til ykkar allra.

Gústa.
26. október 2007 klukkan 15:27
Guðrún Þorleifs skrifar ...
 
Hæ hæ mín kæra.
Mikið svakalega ertu dugleg að læra!!! Gott skref hjá þér með símann.
Maður skapar sínar stundir og það ertu svo sannarlega að gera fyrir þig og þína.
Frábært fyrir ykkur að hafa ma og pa á staðnum. Knús til mömmu þinnar :)
Bestu kveðjur og einlægar óskir um allt gott fyrir ykkur,
Guðrún Þorleifs.
26. október 2007 klukkan 19:17
Elsa Dögg skrifar ...
 
Orkukveðjur frá mér og mínum.
Elsa Dögg
27. október 2007 klukkan 10:22
Fylkir skrifar ...
 
Gott að fá af ykkur fréttir, takk Linda "línudansari" . Hugsum til ykkar - oft.

Kv.

Fylkir og Gunna
27. október 2007 klukkan 13:11
stina skrifar ...
Takk fyrir bloggið - æ það var bara svo ljúft að fá smá fréttir af ykkur. Mikið rosalega er ég stolt af þér - þú ert svo dugleg.
Knús á línuna
27. október 2007 klukkan 13:46
Frú Megabeib skrifar ...
Frú MegabeibTakk Gústa fyrir kíkkið.... ávallt velkomin!!
Guðrún......skila knúsinu til múttí......... og held áfram að reyna að skapa stundirnar okkar!!!
Orkukveðjur mótteknar Elsa Dögg.
Elsku Fylkir og Gunna...... takk fyrir hugsanir og pakkann.......... takk!!!!
Verði þér að því Stína mín........ finnst þetta nú vera frekar lélegt blogg...... en betra en ekkert ;-)
27. október 2007 klukkan 15:42
Gunnar skrifar ...
 
Hæ hæ, kvitta fyrir innlyt. Tókuð þið eftir því hvað var gott veður í dag, sól og blíða.
27. október 2007 klukkan 21:43
Sigrún Inga skrifar ...
 
Dugleg stelpa Linda. Go girl,það er hrikalega erfitt að þurfa allt í einu að biðja um hjálp!
Manni finnst maður geta gert allt sjálfur,en þetta lærist the hard way reyndar.
Kveðja
Sigrún Inga
28. október 2007 klukkan 13:20
Begga Bauni skrifar ...
Elsku Linda!!!
Það er sko ekki lítið sem þú ert að læra núna og frábært að þú skulir gera það. Gangi þér og þínum vel í baráttunni og vertu ennþá duglegri við að þiggja hjálp frá fólkinu í kringum þig, þú átt hana sko alveg skilið.
Kærar kveðjur og knús til ykkar frá okkur, Begga
28. október 2007 klukkan 14:31
Björg skrifar ...
 
Hæbb, tek knúsið líka til mín og sendi eitt risastórt til ykkar líka. Erum alltaf að hugsa til ykkar!

Kv. Kópavogsgengið
28. október 2007 klukkan 20:19
Frú Megabeib skrifar ...
Frú MegabeibJú jú Gunnar og það var líka dásamlegt veður í dag!!!! Sól og snjór, gerist ekki betra!!!!!
Passar Sigrún Inga....... the hard way........ en það kemur....... svo lengi lærir sem lifir!!!!
Takk fyrir kveðjur og knús Begga.......... hamast við að reyna að þiggja hjálpina....... það kemur!!!!!
Júbb Björgin mín........ knúsið er sko til þín líka og fann tilbakaknúsið!!!!!! Takk fyrir að hugsa til okkar!!!!!! Það er mikils metið!!!! Belive me !!!!!
28. október 2007 klukkan 22:39
Dísa í SønderborgJá það er mikið á ykkur lagt elskurnar. Gott hjá ykkur að taka símann af þegar ykkur henntar. Þið verðið að haga öllu eftir því sem ykkur enntar best því ykkur veitir ekki af allri þeirri orku sem þið getið fengið. Héðan eru sendir orkustraumar eins og vanalega og hlýjar og jákvæðar hugsannir.
Knús
Dísa
29. október 2007 klukkan 11:19
Anna fimma skrifar ...
 
Hæ elllllllllllsku vinkona. Ég er búin að vera í afslöppun um helgina og hlaða batteríin mín. Svo að nú get ég sent ykkur orkustrauma af endurnýjuðum krafti. Hugsa að vanda afar mikið til ykkar og dreymdi
okkur í ævintýraleiðangri á Sölvhólsgötunni, mjög gaman að fara á fornar slóðir :-)
Er núna að gefa Sindra að smakka brauðbita í fyrsta sinn og je dúdda mía !!! Svipurinn á barninu algjörlega óborganlegur. Mætti helst halda að ég hefði gefið honum froskalifur eða eitthvað annað álíka
ógeðfellt !!!!! ;-O En svo fékk hann grautinn sinn og allt lagaðist með det samme !! Þarf lítið til að gleðja litla barnssál. He, he, he !
Svefninn er nauðsynlegur til að ná bata og þú getur huggað þig við að Ási þinn er á fullu að láta sér batna þegar stundirnar eru langar að bíða þess að hann vakni. Æfingarbúðiirnar eru harður húsbóndi
en þú getur þetta allt saman, tekur sinn tíma - kalda vatnið rennur bara á sínum hraða !!!!!
Súper ofur kraftmiklar batakveðjur frá
Önnunni þinni og strákgemlingunum öllum stórum sem smáum :-)
29. október 2007 klukkan 13:11
Alice skrifar ...
 
Kære Linda!
Hilsner fra i dag regnfulde "Køben`".
Knus fra Alice
29. október 2007 klukkan 17:33
Elsa Dögg skrifar ...
 
Elsku Linda, ég er að hugsa til ykkar.
Baráttukveðjur,
Elsa Dögg
29. október 2007 klukkan 19:11
Frú Megabeib skrifar ...
Frú MegabeibDísa mín. takk fyrir jákvæðar hugsanir og orkustrauma....... mikið notað!!!!! Gleymdi að taka símann af eitt kvöldið.......... en enginn hringdi samt!!!! Dásemd!!!!!!
Elsku Anna mín!!!! Mikið var gott hjá þér að hlaða hjá þér batterýin....... mundu bara að nota orkuna á réttum stöðum!!!!! Takk fyrir jákvæð og styrkjandi skrif........ ætlar þú ekkert að fara að blogga?????
Kæreste Alice......... det sner paa Island!!!! Knús tilbage til dig og alle "drengene"
Yljar um hjartaræturnar að vita að þú hugsar til okkar Elsa Dögg........ og við hittumst ekkert í dag!!!! Og síðasti dagurinn í geislum!!!! Hvað gerum við þá????? Er það Sorpa næst?????
30. október 2007 klukkan 00:07
Birgis Pálsson skrifar ...
 
Jahérna meginn! Segi ekki annað. Kvittun frá mér sem er alltaf á leiðinni til ykkar en þið þekkið mig ;( 15 mín ); En eins og staðan er þá er ég alltaf að vinna til minnst 18:30 og þá er nú klukkan margt á ykkar heimili. Maður dettur inn 1 góðann veðurdag "vitir menn" Einarsson! næst labba ég með þér heim frá Flensborg ;) spörum 500 dk kall .... Og Linda mín! Mér verður oft hugsað um dúfuna í Køben :-) *brosi* Hils fra DJ Birgis Páls
30. október 2007 klukkan 01:02
Gudrún Thorleifs skrifar ...
 
Hæ hæ mín kæra, takk fyrir kvedjuna hjá mér. Òtrúlegt hvad minn er ordin gamall og eiga svona unga múttu;) Ætla ad snæda med honum kvøldverd á fimmtudaginn :)
Vona ad tid hafid tad sem best og sendi hédan úr yndislega bjørtu og fallegu haustvedri heimsinsbstu orku og hlýju!!!
Knús og kram
30. október 2007 klukkan 09:24
Alice skrifar ...
 
Kære Linda!
Drengene og jeg sender jer de bedste ønsker for den sidste dag i stråleterapi.
I dag har min mor fødselsdag - hurra- hurra ! Og vejret er godt i dag, så alt vel herfra.
Drengene svømmer og svømmer på deres respektive svømmehold, begge om mandagen.
Efter vores sommerferie er Andreas blevet en rigtig vandhund. Mens vi var i Island var vi i svømmehal næsten hver dag !!
Johann er begyndt til fodbold. Hmm det bliver nok aldrig hans ynglingssport, men han får da løbet en masse energi af sig og er sammen med sine kamerater.
Andreas skal prøve at gå til fodbold på et andet hold. I den første klub(samme som Johann er i) var drengene ikke altid lige gode kamerater og der var ingen som Andreas kendte.
Så nu prøver vi en anden klub hvor en af hans bedste venner lige er begyndt. Nu må vi så bare se om intressen for fodbold holder ved.
Jeg har fået en ny kollega. Hun hedder Gudrun og er fra Akureyri. Vores afdelingsleder har udset sig mig som Gudruns mentor. He, he jeg har jo nok ikke kunnet skjule min forkærlighed
for det islandske land og folk...................... Nå men, det går nu ganske fint med at forstå Gudrun, hi, hi, hi.
Nu er det vist nok for denne gang.
Kærligste knus fra Alice.
30. október 2007 klukkan 10:16
Fía skrifar ...
 
Hæ hæ. Gott að geta fylgst með ykkur á blogginu, kíki hingað á hverjum degi og sendi hlýja strauma, kær kveðja, Fía.
30. október 2007 klukkan 20:39
stina skrifar ...
Hlýjar kveðjur og baráttustraumar héðan frá Grindarvíkurafleggjaranum kl. hálf átta á miðvikudagsmorgni :o).
Knús og kveðja á línuna
Stina og co,
31. október 2007 klukkan 06:37
Magga fimma skrifar ...
 
Hæ, krúttin mín
Kvitt, kvitt og orkustraumar á teigin

kv, Magga
31. október 2007 klukkan 08:59
Hrund skrifar ...
 
Gott að eiga góða að! gangi ykkur sem best, vonandi dreymir Ása nú vel nú þegar hann sefur svona mikið...
Gott að fólk vill hjálpa og gott að þú sért að læra að taka á móti því.
...og hér er komið nýtt tölvukerfi og get nú lesið bloggið þitt í skólanum aftur !!! fagna því!
stórt knús til ykkar allra
31. október 2007 klukkan 10:26
Gunnar skrifar ...
 
Mikið rosalega er gaman að sjá hvað margir hugsa hlítt til ykkar Linda.
Og mig langar að koma fram þaklæti til allra sem að hafa og sýna þeym styrk í huga og verkum.

En fremur langar mig að koma á framfæri smá ósk, það væri vel þegið að ef að ykkur vantar upplýsingar um gang mála í heiminum endilega óféiminn að hringið í MIG til að fá fréttir, númerið hjá mér er +354 691 0286

Njótið dagsisn til hins fyllsta, góðar stundir. :-)
01. nóvember 2007 klukkan 09:04
Sigrún Inga skrifar ...
 
Þar sem ég veit ekki mailið þitt þá set ég þetta bara hér!! Hann Damian er að koma aftur
13.nóv -3.des. Vildi bara láta ykkur vita,endilega látið þetta berast líka :)
Hafið það rosa gott.
Kv.Sigrún Inga
01. nóvember 2007 klukkan 10:47
Alice skrifar ...
 
Kiggede bare forbi, Knus fra Alice.
01. nóvember 2007 klukkan 11:46
Elsa Dögg skrifar ...
 
Hér er ég, hvar ert þú?
Kveðja,
Elsa Dögg
01. nóvember 2007 klukkan 12:00
Beta skrifar ...
Elsku sæta fjölskylda.....Risa stórt knús til ykkar á þessum erfiðu tímum...
við hugsum mikið til ykkar núna.....kossar og knús Beta og Hrannar
01. nóvember 2007 klukkan 18:51
Júlla skrifar ...
 
Elsku fjölskylda.
Kveðja héðan af skaganum. Hugur okkar er hjá ykkur.
Ykkar vinir Júlla og Silli.
01. nóvember 2007 klukkan 23:23

Skrifa athugasemd

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Klukkan

Leit

Innskráningar kubbur

Flokkar