Prófíll

  • Nafn: Frú Megabeib
  • Staður: On the Kleik

Auglýsing

Prófíll

  • Nafn: Frú Megabeib
  • Staður: On the Kleik

Prófíll

  • Nafn: Frú Megabeib
  • Staður: On the Kleik

Ég

Ástin mín eina!!!

11. nóvember 2007 klukkan 21:09
Besti maðurinn í öllum heiminum, ástin mín eina, sálufélaginn minn, hjarta Ásinn minn er farinn frá mér!
Sakna ég hans alveg hræðilega!
Hélt að það væri ekki hægt að finna svona mikið til!

Besti vinur minn verður jarðaður þann 23. nóvember 2007.

Þetta er ekkert annað en svindl, svik og prettir.

Langar að þakka ykkur ÖLLUM fyrir kveðjurnar....... mér þykir virkilega vænt um þær og les þær aftur og aftur.

ég.
Frú Megabeib
Dísa í SønderborgElsku hjartans Linda. Í eigingirni minni er ég þakklát fyrir að þekkja ekki þann mikla harm og sorg sem þú ert að upplifa núna. Ég get ekki ímyndað mér að þurfa að horfa á eftir ástinni sinni, sálufélaga og besta vini löngu fyrir aldur fram. Ég finn endalaust til mér þér börnunum og öðrum ástvinum. Mér finnst þetta líka óréttlátt, óendanlega óréttlátt og óskiljanlegt með öllu. Ég vildi að ég gæti með einhverju móti lagt mitt af mörkum til að sefa sorg ykkar. En því miður finnur maður til mikils vanmáttar og á ekkiert nema orð til huggunnar. Elsku Linda mín, við hugsum mikið til ykkar og sendum alla þá hlýju og kærleik yfir hafið sem við eigum og vonum að það komi að einhverju gagni. Fallinn er frá einstakur maður sem var ljós í lífi okkar sem þekktu hann. Hann munn lifa um ókomna tíð í hjörtum okkar.

Okkar innilegustu kærleiks og samúðarkveðjur.
Dísa, Snorri, Sævar og Dagný Eva.
12. nóvember 2007 klukkan 07:04
Hafdís skrifar ...
 
Elsku Linda.
Guð minn góður hvað ég finn til með þér og krökkunum. Það er svo ótrúlega ósanngjarnt að fólk skuli deyja allt of ungt.
Ég var fyrir tilviljun að glugga í dvd diskinn frá þorrablótinu 2006 og þar var upptaka af honum Ása þínum, ég fékk sting í hjartað....það er svo stutt síðan. Hvernig getur svona gerst?
Ég vildi svo sannarlega getað sagt eitthvað sem linaði þjáningar ykkar.
Þið eigið alla okkar samúð.
Hafdís og fjölskylda.
13. nóvember 2007 klukkan 13:40
Svanhildur skrifar ...
 
Kæra Linda og fjölskylda!
Edda vinkona okkar var að segja okkur þessi sorglegu tíðindi. Innilegar samúðarkveðjur til ykkar allra og megi góður Guð styðja ykkur og styrkja.
Kveðja, Svanhildur (vinkona Eddu).
13. nóvember 2007 klukkan 14:20
Begga Bauni skrifar ...
Elsku Linda!
Ég finn svo óendanlega mikið til með þér og trúi vel að þetta "føles som" svik, svindl og prettir.
Ég íhugaði að loka niður síðunni þinni í þetta skiptið, án þess að kvitta fyrir mig, en það var ekki vegna þess að ég vildi vera dóni, hélt kannski að það væri auðvelda leiðin. Eeeen svoleiðis gerir maður ekki, enda hefði það bara ekkert verið auðveldara, held ég.
Ég sendi þér og þínum enn og aftur okkar einlægustu samúðarkveðjur og megi allar vættir vera ykkur til stuðnings til að takast á við framtíðina.
Begga
(Átti að sendast út til þín í gær, en ég fékk engar staðfestingartölur til að slá inn :-( )
13. nóvember 2007 klukkan 14:29
Helga, Svenni og fjölskylda. skrifar ...
 
Elsku Linda mín,
veistu að það er svo margt sem mig langar að skrifa hér en kem því ekki í orð.
Mér þykir svo ótrúlega sárt og skrítið að Ási sé farinn. Ég vildi óska þess að það
væri eitthvað hægt að gera til að láta þér líða betur. Vona að tíminn lækni sárin.
Ég sendi alla mína góðu strauma til þín og fallegu hugsanir.

Kveðja
Helga
13. nóvember 2007 klukkan 15:13
Auður Þorgeirs skrifar ...
 
Kæra Linda og fjölskylda,
við sendum ykkur okkar dýpstu samúðarkveðjur, megi góðar minningar vera ljósið í myrkrinu á þessari erfiðu stundu.
Innilegar kveðjur
Auður, Daði og börn, fyrrum sönderborgarbúar.
13. nóvember 2007 klukkan 16:39
linda skrifar ...
 
:
Elsku Linda, Kristófer og Viktoría
Okkar innilegustu og dýpstu samúðarkveðjur til ykkar allra.
Megi algóði Guð og englar hans vaka yfir ykkur á þessum erfiða tíma.
hugur okkar er hjá ykkur.

Kv:Linda og Andri Már
13. nóvember 2007 klukkan 16:50
Guðrún Helga Finnbogadóttir skrifar ...
 
Elsku Linda og aðstandendur

innilega samúðarkveðjur, megi góður guð styrkja ykkur í sorginni.
Guð veri með ykkur.

samúðarkveðjur
Arnar Már, Guðrún Helga og Brynjar Snær
13. nóvember 2007 klukkan 17:02
Karen skrifar ...
 
Elsku Linda
Ég ákvað að skrifa þér nokkrar línur í von um að þær hlýji þér örlítið. Ég get ekki ímyndað mér hversu sárt það er að þurfa að kveðja elskuna sína svona snemma og fyrir börnin að kveðja pabba sinn svona snemma. Maður skilur bara ekki af hverju lífið er svona ósanngjarnt og skrítið. Af hverju deyja sumir menn ungir? af hverju "Ási hennar Lindu" ? Eins einstakur maður og hann var. Það voru forréttindi að fá að kynnast manni eins og Ása. Minningar um Ása munu lifa í hjörtum okkar allra.
Elsku Linda, Viktoría, Kristófer og Þorsteinn við kveikjum á kerti fyrir ykkur og hugsum vel til ykkar í von um að það veiti ykkur hlýju og styrk til að halda áfram.
Kveðjur frá okkur á Skaganum
Karen, Ásgeir, Ólafur Ingi og Almar Kári
13. nóvember 2007 klukkan 17:24
Bjarndís skrifar ...
 
Elsku Linda og fjölskylda.
En hvað lífið getur verið óréttlátt, ósanngjarnt og óútreiknanlegt.
Hugur okkar og hjörtu eru full af sorg og samúð.
Við erum þakklát fyrir að hafa fengið að kynnast Ása.
Megi Guð styrkja ykkur á þessum erfiðu tímum.

Bjarndís, Árni og strákarnir.
13. nóvember 2007 klukkan 18:51
Þóra og Addi skrifar ...
Elsku Linda, Það er svo erfitt að hugsa um það að hann Ási sé farinn frá ykkur, þetta er allt svo óraunverulegt.
Hugsaðu vel um sjálfan þig og börnin.
Kær kveðja Þóra
13. nóvember 2007 klukkan 19:02
Bergþóra skrifar ...
 
Elsku Linda mín og fjölskylda

Mikið finn ég til með þér og börnunum sem standið hnípin eftir hið óvænta og snögga högg sem erfitt er að átta sig á, hvað þá að sætta sig við. Ég sendi ykkur mínar innilegustu samúðarkveðjur með þessum fallegu ljóðlínum Tómasar Guðmundssonar.

***

Og því varð allt svo hljótt við helfregn þína
sem hefði klökkur gígjustrengur brostið.
Og enn ég veit margt hjarta harmi lostið,
sem hugsar til þín alla daga sína.

En meðan árin þreyta hjörtu hinna
sem horfðu eftir þér í sárum trega,
þá blómgast enn, og blómgast ævinlega
þitt bjarta vor í hugum vina þinna.

Og skín ei ljúfast ævi þeirra yfir
sem ung á morgni lífsins staðar nemur,
og eilíflega óháð því sem kemur
í æsku sinnar tignu fegurð lifir.

Sem sjálfur Drottinn mildum lófum lyki
um lífsins perlu í gullnu augnabliki.

***

Falleg minning Ása lifir í hjörtum okkar sem eftir lifa.

Kærar kveðjur,
Bergþóra
Sönderborg 1996-1999.
13. nóvember 2007 klukkan 22:39
Júlla skrifar ...
 
Elsku Linda.
Mig einfaldlega skortir orð til að setja hérna niður, það kemur ekki oft fyrir en núna er ég nær orðlaus. Það eru svo margar tilfinningar sem
maður berst við þegar svona gerist. Auðvitað er það reiðin sem er sterkust, afhverju afhverju afhverju, hvers vegna og útaf hverju.
Afhverju er maður eins og Ási , góður eiginmaður, faðir og vinur tekinn frá fjölskyldu sinni og vinum á besta aldri, í blóma lífsins. Hvernig er hægt að réttlæta þetta?
En svörin fáum við víst ekki, ekki í þessu lífi. Við verðum bara að treysta á það að Ási hafi nú öðru hlutverki að gegna annars staðar en hér og að hann taki á móti okkur
þegar kallið kemur, hvernær sem það verður. Veit að þær móttökur verða ekki slæmar. Því Guð tekur þá fyrst sem hann elskar mest, afhverju vitum við ekki,
en ástæðan hlýtur að vera góð. En við sem fengum að kynnast Ása í þessu lífi getum ekki annað en óskað þess að við hittum hann aftur í næsta. Það voru forréttindi að
fá að kynnast Ása og verður hans sárt saknað.
Elsku Linda, við vottum þér og fjölskyldunni allri okkar dýpstu samúð. Megi drottinn guð styrkja ykkur og hjálpa í gegnum
þennan erfiða tíma.

Kær kveðja Júlla og Silli.
13. nóvember 2007 klukkan 23:13
Guðný skrifar ...
 
Ég þekkti Ása fyrir mörgum árum síðan og þar var góður drengur á ferð. Mér brá mikið þegar ég frétti að hann væri dáinn svona langt fyrir aldur fram. Langar að votta þér kæra Linda, börnunum þremur og fjölskyldum ykkar beggja mínar innilegustu samúðarkveðjur. Ég get ekki ímyundað mér hvað þið eruð að ganga i gegnum en ég get verið samála þér um það að þetta er langt frá því að vera sangjarnt.

kveðja

Guðný
14. nóvember 2007 klukkan 08:31
Sigga og Sverrir skrifar ...
 
Linda Björk, Kristófer og Viktoría
Sá þennan link á síðunni hjá Gunnari og Olgu, varð að skrifa.
Við samhryggjumst ykkur innilega. Sendum hlýja strauma, þið eigið alla okkar samúð.

Kveðja
Sigga og Sverrir (vinir Gunnars og Olgu)
14. nóvember 2007 klukkan 10:11
Elísa Henný skrifar ...
 
Elsku besta vinkona og fjölskylda
Takk kærlega fyrir að taka á móti okkur.
Mikið var gott að geta tekið utan um ykkur og knússað ykkur.
Ég sendi ykkur alla mína strauma og styrk.
Fullt af kossum frá okkur.
Kristján Reynir sendir stubbakveðju til Viktoríu
14. nóvember 2007 klukkan 13:41
Hæ hæ Linda og börn.
Vildi bara láta vita af heimsókn minni á síðuna.
Kíki reyndar oftar heldur en kvittanirnar segja til um:)
Enn og aftur vil ég senda ykkur innilegar samúðarkveðjur og láta ykkur vita
að við hugsum til ykkar. Ég veit líka um marga fleiri sem hugsa hlýtt til ykkar.
Kær kveðja frá okkur.
14. nóvember 2007 klukkan 20:03
Þórður G. Sigfriðsson skrifar ...
 
Elsku Linda mín
Mikið óskaplega finnst mér þetta óréttlátt og svo ofsalega sárt að hugsa til þess að vinur minn hann Ási skuli vera farinn.
Hans er innilega saknað og hjarta mitt þjáist við tilhugsunina að aldrei aftur geta setið með honum og rætt málin.
Ég get rétt ímyndað mér hvað þú þarft að ganga í gegnum núna og það nístir í gegnum mig vað vita það að vinkona mín þurfi að líða þannig.
Þú átt alla mína samúð Linda mín.
Ykkar vinur
Tóti
14. nóvember 2007 klukkan 20:25
Kæra Linda Björk, Kristófer og Viktoría, sendum ykkur, okkar innilegustu samúðarkveðjur, megi góður Guð styðja ykkur og styrkja.

Kær kveðja,
f.h. Fimleikadeildar Ármanns
Sigurða og Erla Ósk
Sæunn þjálfari
Stefán þjálfari
15. nóvember 2007 klukkan 00:22
Soffía, Valdi og Halldóra Björg skrifar ...
 
Elsku Linda og börn.
Okkar dýpstu samúðarkveðjur, hugur okkar er búinn að vera mikið hjá ykkur síðustu vikur.

Fölnuð er liljan og fölnuð er rós,
fölnað er himinsins blessaða ljós;
hnípinn er skógur og hnigið er bar
hám sem að áður á björkunum var.

Döggin svo harmanna braust mér um brár,
blikandi æskunnar huggunartár;
þá var ég ungur, ég gekk mig og grét,
gráturinn sorgina hverfa mér lét.

Nú ertu þornuð, mín ljúfasta lind!
Líður nú stormur af snjóugum tind!
Fáein ef skyldi nú falla mér tár
frjósa þau strax eins og hagl eða snjár!

Lífsins á heiði í helkulda blæ
huggun ég enga af tárunum fæ!
Döggin er huggandi þó hún sé þung,
þýðir upp líf meðan rósin er ung.

Gerðu mig aftur sem áður ég var,
alvaldi guð, meðan æskan mig bar!
Gefðu mér aftur hin gullegu tár!
Gefðu að þau verði ekki hagl eða snjár!

"Hret" - valin erindi eftir Benidikt Gröndal
15. nóvember 2007 klukkan 12:42
Dagga OG Fjölskylda skrifar ...
 
Kæra Linda, Kristófer,Viktoría, Hávarður og Fríður, Við sendum ykkur öllum okkar dýpstu samúðarkveðjur á þessum erfiðu tímum, lífið er svo ósanngjarnt stundum, og því miður getum við ekki stjórnað því alltaf þó að við meira en vildum. Ég get ekki ímyndað mér hvernig sporum þú stendur í Linda mín og vona að þú fáir góðan stuðning til að komast í gegnum erfiða tíma sem framundan eru. Kveðja frá mér og minni fjölskyldu
15. nóvember 2007 klukkan 14:31
Gígja skrifar ...
 
Elsku Linda og börn.
Mér var gefin upplýsingar um síðuna og ákvað að senda ykkur smá línur.

Ég votta alla mína samúð - þetta eru erfiður tími - fyrir þig, börnin og fjölskylduna.

Hjá okkur í Laugateigi 54 er kveikt kerti á hverjum degi - eitt fyrir Ása þinn og 4 fyrir ykkur.
Þið eruð í öllum mínum bænum og hugsunum.
Knús til ykkar allra.
Gígja
15. nóvember 2007 klukkan 15:06
Arna Viktoría skrifar ...
 
Elsku Linda Björk, Kristófer og Viktoría
Mínar innilegstu samúðarkveðjur til ykkar.
Megi góður Guð styrkja ykkur og hugga á þessum erfiðu stundum.
Kær kveðja Arna Viktoría (vinkona Eddu)
15. nóvember 2007 klukkan 17:43
stina skrifar ...
Elsku Linda mín, Kristófer og Viktoría.
Það að hann Ási skuli ekki lengur vera hjá ykkur er staðreynd sem svo erfitt er að kyngja og ennþá erfiðara að eiga að sætta sig við.
Þið hafið misst svo mikið, yndislegan pabba, ástkæran eiginmann og vin sem alltaf stóð eins og klettur við hlið ykkar.
Ég finn svo mikið til með ykkur og vildi óska þess að ég gæti eitthvað gert sem linað gæti ykkar miklu sorg og missi.

Ég bið Guð almáttugan um að vaka yfir ykkur og veita ykkur styrk.
Ási var einstakur og minningin um hann mun lifa í hjörtum okkar um ókomna tíð.

Þegar þú ert sorgmæddur
skoðaðu þá aftur huga þinn,
og þú munt sjá að þú grætur
vegna þess sem var gleði þín.
(úr Spámanninum)

Við hugsum mikið til ykkar og kveikjum á kertum fyrir ykkur á hverju kvöldi.
Risa stórt knús og samúðarkveðjur frá okkur á Grindarvíkurafleggjaranum nr. 114.
15. nóvember 2007 klukkan 19:13

Skrifa athugasemd

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Klukkan

Leit

Innskráningar kubbur

Flokkar