Praktískir hlutir!!!
Jú jú það er fullt af praktískum hlutum sem þarf að koma frá þegar maðurinn manns tekur skyndilega uppá því að deyja!!!
Ekki átti ég nú von á því að vera að skipuleggja og undirbúa og taka ákvarðanir um útför mannsins míns áður en ég yrði fertug...... en svona er lífið ....... eða svo er mér sagt...... þó svo að mér finnist það ekki hafa mikinn tilgang eða merkingu þessa dagana..... jú jú ég veit ég á börnin okkar og allt það....... en er bara svo svakalega eigingjörn að ég vil hafa manninn minn hjá mér líka!!!!!
En það þýðir ekki að velta sér uppúr þessum hlutum........ þó það virðist ósanngjarnt þá heldur þetta líf víst áfram....... og það þarf að taka ákvarðanir og versla í matinn og þvo þvott!!!!! En það breytir því ekki að ennþá er þetta bara ekkert annað en svindl svik og prettir!!!!!!
Er búin að taka fullt af ákvörðunum, eins og hvernig dánartilkynningin ætti að líta út, í hvaða fötum ætti að jarða mannnn minn, hvernig kistan lítur út, hvaða kirkju á að jarða frá, hvaða dag á að jarða, hvaða dag á að kistuleggja, hvaða mynd á að hafa í tilkynningunni og svo framvegis og svo framvegis..... er þetta ekki neitt smávegis sem þarf að skipuleggja og finna útúr...... en með hjálp góðra þá tekst mér þetta nú allt saman!!!
Það verður erfidrykkja. Eru fjöldi manns búin að bjóðast til að baka eða gera eitthvað fyrir hana og get ég ekki annað en sagt JÁ TAKK...... ekki get ég staðið í því sjálf að baka!!!!! En hún Björg frænka sér algerlega um skipulagningu erfidrykkjunnar, þannig að best er að hafa samband við hana í tengslum við bakstur og þess háttar. Síminn hjá henni er: 699 4181 og 564 2716.
Við förum og hittum Séra Bjarna á morgun og þá verður ákveðið hverjir verða kistuberar...... og hver syngur....... og hvaða lög verða sungin........ er komin með eitthvað....... en ......... já.......... æi undarlegt að vera að skipuleggja þetta!!!!
Ég óska eftir því að það verði ekki blóm....... eða eins og alltaf var sagt í útvarpinu í denn: (vinsamlegast lesið þetta með nefmæltri rödd..... þá líður mér betur!!!!) "blóm og kransar vinsamlegast afþakkaðir, en þeir sem vildu minnast þess látna ........." mér þætti vænt um ef hægt væri að styrkja gott málefni, eins og t.d. Karitas heimahjúkrunina, Barnaspítala Hringsins eða eitthvað í þeim dúr, eða leggja inná reikning sem er til styrktar börnunum okkar!!!! Mér finnast blóm æðisleg, en í mínum huga eru þau alltaf fyrir gleði og höfum við hjónin keypt ófáa vendina handa hvort öðru...... bara afþví að það er dagurinn í dag, og ég elska þig svo mikið!!!! Nú langar mig ekki í blóm!!!!!!! En ég veit hvernig þetta er og kæru allir ekki hika við að leggja góðu málefni lið!!!!! Númerið á reikningnum hjá börnunum er; 0526-14-102707 og svo er það kennitalan hennar mömmu: 130347-3479.
Með fyrirfram kærri þökk.
Ég.

Við erum alltaf með hugann hjá ykkur öllum. Þetta er óendanlega sárt að hugsa um.
Vildum að við gætum hjálpað ykkur og tekið sársaukann í burtu.
Get ekki ímyndað mér hvað þið eruð að ganga í gegnum nema að litlu leiti. En ég veit að eins og sagt er þá læknar tíminn sárin en það er ekki eitthvað sem hjálpar núna. Minnig Ása lifir hjá okkur öllum og hann gleymist aldrei.
Stórt knus til ykkar allra frá okkur hérna á hveitiakrinum
Risa knús.
Dísa og Snorri
Knús og kossar
Rebekka fyrrverandi Sönderborgari
Erum búin að lesa bloggið þitt eins og þú bentir okkur á, erum ekki að skilja að Ási sé farinn. Hefðum viljað vera með ykkur á föstudaginn en verðum með ykkur í huganum og sendum okkar sterkustu strauma til ykkar allra.
Við verðum í sambandi þegar við komum heim um jólin. Stórt knús til þín, barnanna og mömmu þinnar og pabba. Mikið var gott að þau gátu komið heim og stutt ykkur. Koss og knús, Hanna Fríða og Anders
Gangi þér vel mín kæra
Gangi þér og þínum vel með allt umstangið framundan og kannski ekki síst tímann sem kemur eftir það.
Les bloggið þitt með tár í augum og kökk í hálsi á hverjum degi, skil ekki heldur þennan stjórnunarhátt hjá æðri máttarvöldum, en okkur er trúlega ekki ætlað að skilja allt.
Knús og kossar á ykkur öll frá okkur,
Begga & Stebbi
Ég er svo oft búin að kíkja hingað inn, en aldrei vitað hvað ég á að skrifa - og veit ekki enn...
Ég hef hugsað svo mikið til ykkar í gegnum þessa erfiðu tíma og skil ekkert í þessu óréttlæti. Ég samhryggist þér og fjölskyldu þinni svo mikið að orð fá því ekki lýst.... Þú stendur þig eins og hetja Linda Björk!!
En ég held bara áfram að senda ykkur hlýjar hugsanir og vona að þær skili sér...
Kv. Dagný og co.
Af hverju getur það ekki bara stoppað á meðan verið er að átta sig á hlutunum?
Ég er viss um að þú hefðir valið það ef þú fengir að ráða bara smá.
Afar kær kveðja
Ég fer oft hingað inn og skoða, en ég er ekki mikill bloggari og veit aldrei hvað ég á að segja
en vil segja svo margt að mig verkjar.Hvernig á maður að færa í orð samúðina,væntumþykjuna
sem við berum til ykkar fjölskyldunnar.Þú hlýtur að að hafa einhvern æðri mátt sem þú gengur á
þessa dagana það er einhver sem gengur þér við hlið og heldur þér uppi og huggar þegar stundirnar
verða of erfiðar, Þú ert mjög dugleg Linda mín og ég er hjá þér huganum til að styðja og hugga.
Fann þessar línur fyrir nokkuð löngu síðan og fannst þær svo fallegar og finnst þær eiga við núna.
Minningar, svo mikill sársauki
söknuður yfir því sem var
en um leið vissa um að
Þegar þú ert sorgmæddur,skoðaðu þá
aftur huga þinn,og þú munt sjá að þú
grætur vegna þess,sem var gleði þín.
Kahil Gibran
Kærar kveðjur til ykkar allra,Bára.
Þín vinkona
Anna
styrkja tig og tína á tessari kvedjustundu.
Mundu ad tárin eru demantar sálarinnar. Ég verd med tér í huga og hjarta, óneitanlega
takklát fyrir ad hafa fengid ad kynnast ykkur og ást ykkar.
Ég sendi tér ljós og kærleika med samúdar kvedjum.
Malla
Ég hef ekki haft mig í að kvitta fyrir innlitinu fyrr en ég er ein af þeim sem á erfitt með að koma orðum að hugsunum mínum þessa stundina. Ég get ekki með nokkru móti sett mig í þín spor þessa dagana og er oftar en ekki með kökk í hálsinum og finn fyrir ótrúlegum vanmætti og smæð.
Ég veit það bara að mér þykir óumræðanlega vænt um þig og myndi gera allt til að lina þann sársauka sem ég veit að þú finnur fyrir.
Ég get því einungis sent þér mínar dýpstu samúðarkveðjur og sagt þér að minn heimur er pínulítið betri því þú ert í honum.
Guð veri með ykkur á morgunn og alla aðra daga.
Kær kveðja,
Guðrún
Ég hef kíkt reglulega hér inn á síðuna og get ekki annað en dáðst af þér hvernig þú getur skrifað um það hvernig þér líður .það er ekki hægt annað en að fá kökk í hálsinn og tárin streyma niður því maður finnur sársaukann í hjartanu. Þó ég geti ekki ímyndað mér allar sorgina sem þú ert að upplifa.
þó ég myndi reyna alla galdra heimsins til að lina þínar þjáningar þá er það víst ekki hægt en með þessum aumu orðum mínum vil ég senda þér alla orku og krafta sem mögulega er hægt og hugsa til þín á morgun.
Mundu að horfa alltaf upp til sólar þá munu skuggarnir falla að baki þér
Kv Steina Braga