Ásgeir Einarsson Fæddur: 14.12.1965 Dáinn: 7. nóvember 2007
23. nóvember 2007 klukkan 01:23
Heitt ellllllllskaður eiginmaður minn og yndislegur félagi, besti vinur minn og hinn helmingurinn af mér, dásamlegur faðir barnanna minna, og stórkostlega skemmtilegur lífsförunautur, verður borinn til grafar í dag.

Takk fyrir að hafa verið til fyrir mig!!!!
Ég, uppáhalds eiginkonan þín!!!!
Frú Megabeib

Ég myndi vilja getað gefið þér eitt risa knús núna Linda mín. Ég finn svo til með ykkur, meira en ég gæti nokkurn tíman lýst með orðum.
Ég hugsa mikið til ykkar.
Við vottum ykkur, elsku Linda og börn okkar innilegustu samúð.
Hafdís, Leifur og börn
Við kveikjum á kerti í dag og minnumst Ása, sendum ykkur okkar innilegasta samhug og samúð, megi Guð gefa ykkur styrk í dag og um ókomna framtíð.
Hanna Fríða og Anders
Hugur okkar er hjá ykkur í dag sem aðra daga. Megi allir englar gefa ykkur styrk í dag.
Vildum óska að við gætum verið hjá ykkur í dag og knúsað ykkur en það verður víst að bíða smá.
risaknús
Lára, Gummi, Þórður og Tristan Orri
Innilegar samúðarkveðjur til ykkar.
Hugur okkar er hjá ykkur.
Bestu kveðjur hér frá Þýskalandi,
Bóas, Sonja og Mercedes
Hér logar á kerti í minningu Ása.
Innileg samúðarkveðja til ykkar allra sem stóðu honum nær.
kær kveðja
Hrund í Sønderborg
Ég vildi bara láta vita af mér hérna "hjá þér". Geri ráð fyrir að þið hafið verið umvafin góðu fólki i gær, eins og kannski flesta aðra daga. Hefði nú alveg verið til í að komast til þín og gefa þér eins og eitt knús, en verð að láta mér nægja að senda þér það hérna.
Hugsa endalaust til ykkar og geri allt sem í mínu valdi stendur til að styrktarstraumar nái til ykkar yfir hafið.
Endalaus knús og kærar kveðjur, Begga