Endalausir dagar!!!
29. nóvember 2007 klukkan 12:41
Dagurinn í gær var erfiiður....... eða reyndar gærkvöldið, því ég var með gesti eiginlega allann daginn í gær!!!!
Hann var sérstakelga erfiður afþví að í gær var akkúrat eitt ár síðan við hjónin stóðum og settum upp hringana í annað sinn. Hringa sem við fórum og létum breyta og laga í tilefni dagsins. Hétum svo hvort öðru ævarandi tryggð og ást og umhyggju og að við ætluðum að verða gömul saman og spila Backammon fyrir framan pýramítana.
Ég hata líf mitt!!!!
Útförin var alveg einstaklega falleg og var NÁKVÆMLEGA eins og ég vilid hafa hana, fyrst ég þurfti að vera að jarða manninn minn á annað borð.
Kórinn stóð sig vel. Mér brá reyndar dálítið þegar byrjað var að syngja Vegbúann, átti einhvernveginn von á whisky rödd KK, en ekki svona fallegri og tærri tenór rödd!! En hann söng þetta einstaklega vel........ og já bara allur kórinn!!!
Oddfellowarnir voru flottir þar sem þeir stóðu við kistuna.
Kistan var NÁKVÆMLEGA eins og ég vildi hafa hana, skreytt með origamifuglunum hans Kristófers sem við, ég og börnin hjálpuðumst að við að búa til kvöldið áður. Og svo með eldrauðu hjarta úr rauðum rósum frá okkur. Alveg ofboðslega falleg.
Séra Bjarni stóð sig líka, enda ekki við öðru að búast........ hann er alveg frábær prestur!!!
Svo þegar allir löbbuðu út, vá hvað þetta var flott!!!! Afhverju tekur maður ekki myndir í jarðarförum??? Þetta var svo flott og svo glæsilegt. Fullt af virðingu og ást og umhyggju.
Veislan (eins og dóttirin kallar erfidrykkjuna) var stórkostleg. Þvílíkt hlaðborð hef ég aldrei á ævi minni séð!!!! TAKK KÆRLEGA FYRIR ALLIR SEM KOMU AÐ ÞVÍ AÐ GERA ÞETTA AÐ FLOTTASTA HLAÐBORÐI SÖGUNNAR!!!! Veit ég að hann Ási minn hefði farið nokkuð margar ferðirnar til að fá sér af sem flestum sortum, eins mikill nautnaseggur og hann var. Takk fyrir þetta var alveg í hans anda.
Það var svo gott að sjá svo mörg andlit sem ég hef ekki séð í svo mörg ár og önnur andlit sem komu langt að. Mér þykir virkilega vænt um það. Takk fyrir.
Er núna að fara á fund með Vinnumálastofnun........ það er víst ekki hægt að koma sér undan því lengur.
Var bara að velta því fyrir mér hvað ég á að gera við öll fötin og kökudiskana sem eru hérna hjá mér!! Gat ekki hugsað mér að skilja þetta eftir og svo færi það á eitthvað flakk og fólk fengi ekki aftur diskana sína og fötin (sko kökufötin!!!).
Er ekkert heima um helgina...... er að fara að hjálpa Gunnari ofvirka bróður mínum að flytja....... horfa á frænku mína kveikja á jólatrénu í Reykjanesbæ........ horfa á einkadótturina syngja í aðventumessu og fleira og fleira.......... verð lítið heima á morgun ......... er víst að fara á eitthvað námskeið............ svo ætla ég í bíó með börnunum mínum í boði Önnu vinkonu og svo út að borða.
Ég myndi keyra þetta út til ykkar en hver einasti diskur, skál og fat er ómerkt!!!!
Dóttur minni finnst fyrir löngu kominn tími á að taka upp jólaskrautskassana og fara og skreyta!!!! Mig langar ekki að hafa jól!!!! Ætli ég nái ekki í kassana í dag....eða á morgun...... eða hinnnnnnn........eða hinnnnnn.......... eða hinnnnnnn.........
Þangað til næst..........
ég

Frú Megabeib

Þegar ég sá Oddfellow bræður Ása rann upp fyrir mér að ekki var Ási aðeins yndislegur vinur heldur vorum við orðnir bræður í Oddfellow reglunni sem er mikill heiður fyrir mig :)
Þetta með jólin Linda mín og börn, þá veit ég að þið eigið mjög góða að sem gera allt til að lífið verði ykkur eins bærilegt og mögulega getur orðið.
Að lokum í bili, þá máttu hringja í mig hvenær sem er sólahringsins ef það er eitthvað pínu tæní sem þig liggur þér á hjarta (SYS)
MVH ykkar vinur Birgis Pálsson
Það er hræðilega erfitt að hugsa sér að lífið haldi áfram þegar hálft sjálfið vantar og allur tilgangurinn svo merkingarlaus. En reyndu að vera sterk og taktu eina klst.í einu, einn dag í einu. Það er auðvelt að ráðleggja , erfiðara að fara eftir því!!!!!! En ég veit að þú getur, ég veit það.
Mig langar líka til að segja þér að útförin var einstaklega falleg og allt heppnaðist eins og best varð. Þú kvaddir ástina þína á einstaklega fallegan hátt og takk fyrir að gera okkur kleift að kveðja Ása þinn með þér. Það hefði vantað mikið ef að útförin hefði farið fram í kyrrþey.
Vildi bara láta þig vita að ég er að hugsa til þín.
L.O.L. Anna
Heyri í þér í næstu viku!
En það er aldeilis að það verður nóg að gera hjá þér um helgina, greinilega fleiri ofvirkir en Gunnar bróðir þinn, kannski þetta sé bara eitthvað í fjölskyldunni þinni Linda mín ;o)
Drífðu þig bara að ná í jólakassana og láttu krakkana um að skreyta fyrir þig í bak og fyrir.
Gangi þér vel í öllu þínu um helgina...
Knús á þig og þína, Begga
Vildi bara láta vita af mér hér. Þetta allt saman er svo óendanlega ósanngjarnt - ég hugga mig við að vita af góðu fjölskyldunni þinni sem ég veit að stendur svo þétt við bakið á þér á þessum erfiðu tímum.
Knús á þig og þína - og gangi ykkur vel í flutningunum og öllu hinu um helgina.
Kveðja og enn stærra knús Stína
Ég hef farið í nokkrar jarðafarir en þetta var sú allra fallegasta og ein af þeim erfiðastu.
Kistan var einstaklega falleg, Bjarni yndislegur og kórinn flottur.
Þú mátt eiga mitt fat, það er þetta silfraða ;)
Ég er sammála henni Beggu Baunu - farðu niður í geymslu, náði í jóladótið og láttu krakkana sjá um þetta,
þú getur horft á þau á meðan þau skreyta.
Sakna ykkar á svölunum !!!!!
Þín nágranni og vinkona,
Gígja
Sé á því sem þú skrifar, sem og hér í kvittanakerfinu að þú hefur verið sjálfri þér trú þegar kom að útför Ása. Sannfærð er ég um að hafi hann getað, þá hefur hann litið stoltur yfir verk þitt þar og brosað. Sé þetta fyrir mér og ekki efast ég um að séra Bjarna hefur farist sitt verk vel úr hendi, þar er góður maður á ferð.
Gangi þér vel að takast á við altt þetta daglega amstur sem hver dagur hefur í för með sér. Sammála Beggu og hinum um að það sé hið besta mál að leyfa börnunum að jólaskreyta. Llífið verður að halda áfram, það er áfram verðmætt.
Risaknús til þín héðan úr Sönderborg,
Guðrún Þorleifs
Elsa Dögg
Ja, julen kommer hvad enten man har lyst eller ej ! Om end jeres sorg er dyb, så er der måske alligevel lidt glæde at finde ved at se børnene pynte op til julen. Håber I får en hyggelig week-end ville gerne høre Viktoria synge . Glæder mig til vi ses ved årsskiftet.
Kærlige knus fra Alice
útförin var einstaklega falleg og það er sko alveg satt hjá þér að hann Ási þinn hefði sko farið nokkrar ferðirnar í "veislunni" eins mikill matmaður og hann var. Ég skil að þér finnist erfitt að vera til núna elsku Linda mín, en ég vona að þú sjáir ljósið og getir farið fljótlegaí jólaundirbúninginn með Kristófer og Viktoríu. Ég sé þig kannski um helgina hér á Suðurnesjunum,,,,,
þangað til næst,
Óskin þín
allt það sem þið eruð búin að ganga í gegnum minnir mann á að lifa lífinu lifandi og njóta hverrar stundar. Vona að það glitti í smá birtu framundan og allt fari að verða bærilegra.
Kærar kveðjur
Auður og Daði Neskaupstað
við vorum að spá í að kíkja í gærkvöldi, en það svaraði ekki síminn hjá ykkur, þannig að mér datt í hug að síminn hefði verið tekinn af eftir gestagang dagsins..... við kíkjum bara seinna...
kveðja