Prófíll

  • Nafn: Frú Megabeib
  • Staður: On the Kleik

Auglýsing

Prófíll

  • Nafn: Frú Megabeib
  • Staður: On the Kleik

Prófíll

  • Nafn: Frú Megabeib
  • Staður: On the Kleik

Ég

Kökudiskar - tertudiskar????

03. desember 2007 klukkan 01:42
..... ætti kannski að fara að koma mér í rúmið!!!!

Verst er að það er svo erfitt að komast þangað!!!....... veit að þar bíður mín ekki maðurinn minn til að kúra við...... vil frekar sitja í stofunni...... ein....... og horfa á sjónvarpið, eða skoða allt og ekkert á netinu, með störu og sand í augunum....... frekar en að fara uppí rúm .............. ein!!!!

Að vísu sefur sonurinn við hlið mér, og dóttirin við hina hliðina...... en þið vitið hvað ég meina!!!  Vantar að hafa manninn minn til að halda í hendina á, eða halda utanum, annaðhvort hann um mig, eða ég um hann!!!!  Frekar erfitt að fara í rúmið!!!

Er búin að ná í jólakassana og erum við langt komin með að skreyta bæinn!!!  Ótrúlegt hvað maður getur áorkað.......

Fór og horfði á dótturina syngja í kórnum áðan!  Hún stóð sig eins og hetja eins og við var að búast!!!  Hún er yndisleg...... veit ekki hvað ég gerði án barnanna minna!!!!  Eða jú, eiginlega veit ég það......!!!! 

Þeir sem áhuga hafa á því að fá aftur kökuudiskana sína...... eru vinsamlegast beðnir um að nálgast þá hið fyrsta........ mér þætti afskaplega vænt um það....... bara svona á leiðinni heim úr vinnunni..... eða bara skjótast ...... var að telja það..... er með: 12 tertudiska, 6 stálföt, 5 skálar og 3 eldföst form og einn hjálm, sko tertuhjálm!!!!  Og ég sem á ekkert af þessu!!!!  Ennþá!!!!  Ef þið þekkið einhvern sem þekkir einhvern, sem veit um einhvern sem vantar tertu/kökudiskinn sinn eða eldfasta formið..... endilega segið frá því að það sé alveg örugglega hjá mér og sá hinn sami megi bara ná í það, eða senda einhvern eftir því, eða segja mér frá því svo ég geti komið því til viðkomandi!!!!!

Snakkes ved!!!

ég
Frú Megabeib
Gudrún Thorleifs skrifar ...
 
Knús til tín hédan úr skólanum.
03. desember 2007 klukkan 07:19
Fía skrifar ...
 
Hæ hæ. Það hlýtur að vera erfitt að komast inn í lífið aftur án makans, en ég veit að þú ert hörkukona og átt yndisleg börn og þeirra vegna verður allt að halda áfram, vertu dugleg að fá aðstoð frá öðrum ef þú þarft, hafðu það sem allra best, kær kveðja Fía. ps. ég var bara með 2 álpappatertudiska sem áttu að fara í ruslið eftir notkun !
03. desember 2007 klukkan 09:55
Anna fimma skrifar ...
 
Var bara að kíkja á þig elskulegust. Mikið ertu dugleg, miklu duglegri en ég. Ég verð nú að segja að á mínu heimili er bara kominn einn pínulítill aðventu"krans" sem að Emil minn gerði fyrir okkur á leikskólanum sínum, úr brauði. Ofsalega sætur hjá honum og mamman er svo sein að taka við sér að það er ekki búið að kveikja á fyrsta kertinu. Jólin eru áskorun sem ekki er alltaf bullandi skemmtilegt að takast á við og þau koma hvort sem maður vill eður ei. En eftir á er ánægjulegt að hafa tekist á við áskorunina og öllu sem henni fylgir.
Farðu vel með þig elsku vinkona.
Knús og kærleikur til þín.
Anna
03. desember 2007 klukkan 10:57
Guðrún Þorleifs skrifar ...
 
Góða nótt. . .
Knús
03. desember 2007 klukkan 22:02
Begga Bauni skrifar ...
Trúi því sko vel að hún Viktoría hafi staðið sig vel í söngnum, á nú ekki langt að sækja það skvísan ;o)
Kannski ég taki þig og börnin þín til fyrirmyndar og fari að skella upp einhverju jólaskrauti fljótlega.
Kv. Begga
04. desember 2007 klukkan 09:12
Edda frænka skrifar ...
 
Ég á ekkert af þessum fötum/höttum....!!!! heppin ég ... en ætla samt að kíkja við hjá þér á næstunni....
kveðja
04. desember 2007 klukkan 11:00
Þóra Sig. skrifar ...
 
Sæl mín kæra, mikið ertu nú dugleg, en passaðu að fara vel með þig!
Eg á víst örugglega eitthvað af þessum kökudiskum eins og 5 stykki, kíki við hjá þér næst þegar
ég fer í bæinn, annars ætlaðir þú að koma til mín í "treatment", gætir kannski komið með diskana í leiðinni :)
Eg fer til Fynshav þann fimmtánda svo drífðu þig áður en ég fer og fáðu jólatreatmentið hjá mér áður en ég yfirgef
klakann.
Med venlig hilsen Þóra Hveragerðisbúi
04. desember 2007 klukkan 22:48

Skrifa athugasemd

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Klukkan

Leit

Innskráningar kubbur

Flokkar