Prófíll

  • Nafn: Frú Megabeib
  • Staður: On the Kleik

Auglýsing

Prófíll

  • Nafn: Frú Megabeib
  • Staður: On the Kleik

Prófíll

  • Nafn: Frú Megabeib
  • Staður: On the Kleik

Ég

Takk!!

18. desember 2007 klukkan 08:30

Langaði bara að þakka ykkur öllum sem eigið leið hérna um hjá mér í netheimum fyrir kveðjurnar.  Þær eru mér ómetanlegar.  Ég er viss um að þið gerið ykkur enga grein fyrir hversu mikilvægar þær eru mér!  Auðsýnd samúð og samhugur.  Takk kærlega fyrir.

Fór snemma að sofa í gær!!!   Jú jú veit það ....... hvað flokkast undir snemma???  Jú hjá mér flokkast snemma undir; fyrir miðnætti!!  Og viti menn, ég fór nánast að sofa á miðjum degi í gær!  Var komin í rúmið uppúr 10 og var sofnuð fyrir 11...... án svefntaflna.  Er þetta í fyrsta skipti í fleiri mánuði sem ég sleppi litlu hvítu töflunum áður en ég fer í koju!!!  En svaf bara vel í nótt....... og vaknaði með börnunum í morgun.......... bara notarlegt. 

Framundan er dagur þar sem lagt verður lokahönd á jólaundirbúninginn.......... að vísu verða seinustu gjafirnar væntanlega keyptar á morgun...... því þá ætla ég í einhverja verslunarmiðstöðina og á kaffihús og hafa það huggulegt og slappa af.

Í dag ætla ég líka að reyna að taka til.  Eða ekki taka til heldur taka burt, skóna hans Ása og jakkana og íþróttatöskuna og þessháttar........ hlutirnir hans sem ég er alltaf að detta um......... fötin hans sem eru inní skáp eru ekkert fyrir mér........ en dett reglulega um íþróttatöskuna og skóna......... það er eins og ég sé að bíða eftir því að hann komi aftur..... þannig að ég vil ekki taka þetta í burtu svo hann haldi ekki að ég vilji ekki hafa hann hjá mér!!!  Æi þetta er frekar erfitt og eflaust þessvegna sem ég er búin að fresta þessu og kem mér ekki í þetta....... en það þýðir ekkert að stinga hausnum í sandinn og láta sem ekkert sé.  Hann kemur víst ekki aftur til mín, eins sárt og óásættanlegt eins og það nú er.

Svo er planið líka í dag að fara og kaupa greni til að setja á leiðið hjá Ása mínum...... ætla að reyna að gera þetta eins og gert er í DK...... finnst svo ljótt að sjá bara bera moldina......

Þangað til næst;

ég

Frú Megabeib
Anna fimma skrifar ...
 
Hæ elsku vinkona :)
Gott að heyra að svefninn var góður, það er svo bráðnauðsynlegt að geta náð góðri hvíld.
Gangi þér vel með verkefni dagsins. Vona að dagurinn verði þér góður þrátt fyrir erfið verkefni.
Hugsa hlýtt og mikið til þín og sendi þér risa knús og faðmlag.
Annan þín
18. desember 2007 klukkan 09:03
Júlla skrifar ...
 
Hæ hæ
Á leið hérna framhjá eins og svo oft áður, og ætla að kvitta í þetta skiptið. Langar bara að senda þér og þínum smá kveðjur héðan af skaganum. Sit hérna og er að reyna að fara að byrja að læra undir
síðasta prófið mitt sem er á fimmtudaginn, þá eru þessi 5 próf fyrir þessi jól búin, og ég get ekki beðið eftir því að kl 12 á fimmtudag.
Þá ætla ég að storma á milli búða og leggja lokahönd á minn jólaundirbúning. Ég er búin að hugsa svo mikið til þín/ykkar í þessum prófalestri, er í þessum krabbakúkalabba áfanga og ofboðslega var erfitt
að vera að lesa þetta núna eftir að hafa fylgst með ykkur ganga í gegnum þetta. En elsku Linda haltu bara áfram að vera svona sterk, þú ert að standa þig eins og hetja.

Kveðja Júlla.
18. desember 2007 klukkan 09:12
Fía skrifar ...
 
Þið eruð ótrúlega dugleg ! Kveðja, Fía
18. desember 2007 klukkan 09:21
Gunnar skrifar ...
 
Ég get gefið þér kaffi, svona Ítalst gutl og heitt kakó ef að þú kemur í miðbæ Reykjavíkur og heimsókn til mín í vinnuna. Á reyndar ekkert með því, nema þá banana og epli.
18. desember 2007 klukkan 09:42
Lára María skrifar ...
Átti leið hjá og ætlaði bara að senda þér knus.
Kem á klakann annað kvöld og þá styttist í að þú fáir almennilegt knus frá mér

Kæmpeknus
18. desember 2007 klukkan 11:14
Alice skrifar ...
 
Kære Linda!
Godt at du endelig har fået en god nats søvn, mærkeligt som det næsten kan gøre underværker. Håber du vil hygge dig med julegaveindkøb og juleforberedelser. Jeg glæder mig til vi snart skal ses!
Kærlige knus fra Alice.
18. desember 2007 klukkan 11:25
Guðrún Þorleifs skrifar ...
 
Kæra Linda, ljúft að lesa að svefnin er á leið í lag. Þvílík lækning sem góður svefn er! Erfið verkefni sem bíða þin í dag, en þau eru nauðsynleg svo slæmt sem það nú er. Mér finnst þú alveg rosalega dugleg, en vildi samt eins og þú eiga töfralausn á ýmsum sársauka. Lýst vel á að þú setjir greni á leiðið hans Ása, finnst það alveg ótrúlega fallegt hér Christianskirkjugarði. Kannski þú setjir inn mynd þegar þú hefur skreytt leiðið?
Skemmtu þér vel í jólagjafinnkaupunum, það er svo læknandi að hlæja.
Jólaknús,
Guðrún Þorl.
Gangi þér vel á
18. desember 2007 klukkan 12:08
Magga Drottning skrifar ...
kvitt kvitt fra konunni a snurunni.
Dønsum svo i kringum mandarinutre a danskann mata.
Gangi ther vel med jolagjafirnar og hyggid ykkur nu vinkonurnar med kako og eithvad jolagott.
Lofa ad lata taka mynd af mer med snururnar i høfdinu thetta er bara einsog flott jolasveina hufa kanski extra løng.
kv Drottningin danska
Margrete Isabekka Fridrikka Ingrid Sæberg Thordardottir.
18. desember 2007 klukkan 20:02
Gígja skrifar ...
 
Hæ sæta.
Það er gott að þú gast farið að sofa án hvítu pillurnar og það finnst mér bara mikil afrek hjá þér elsku Linda mín.
Er alveg sammála þér því að setja eitthvað á leiðið hans Ása - það gerir svo fallegt. Áður fyrr vann ég í mörg ár
í kirkjugarði og fannst alltaf svo fallegt þegar ég sá að það var búið að gera eitthvað fallegt við leiðið.
Eitt annað, sem mér finnst svo gott þó svo það er jú ofsalega ósanngjarnt að hafa ekki Ása hjá þér en þegar við förum
út úr dyrunum hjá okkur og horfum inn í stofu til þin þá get ég séð myndina af honum Ása þínum - það er bara svo gott
að sjá myndina - þó svo ég vildi frekar eins og allir aðrir hafa hann HJÁ okkur.
Það að sjá myndina er eins og við sáum hann alltaf og ykkur á svölunum. Langaði bara að segja þér þetta.
Knús og kossar til þín
Gígja nágranni ;)
19. desember 2007 klukkan 09:08
Gústa skrifar ...
 
Elsku Linda mín
þú stendur þig alveg ótrúlega vel.
Haltu áfram að vera jákvæð .... það hjálpar ykkur örugglega alveg svakalega mikið.

Bestu kveðjur og kossar.

Gústa
19. desember 2007 klukkan 11:54
Begga Bauni skrifar ...
Vonandi áttu góðan dag í verslunarmiðstöðinni og kaffhúsahuggulegheitunum.
Dáist að dug þínum og finnst þú vera mikil hetja.
Nú er að líða að lokum vinnudagsins hjá mér (varð aðeins að kíkja við "hjá þér" áður en ég færi heim) og þá er bara komið að því að reyna að klára að versla jólagjafirnar handa börnunum.
Kærar kveðjur og knús frá okkur, Begga
19. desember 2007 klukkan 12:05
Björg frænka skrifar ...
 
Hæ frænkan mín. Varð að kvitta fyrir mig, kíki mjög reglulega við hér og það er frábært að lesa um að þú hafir getað sofnað án lyfja og ætlar að reyna að njóta kaffihúsa og kósíheita á aðventunni.

Knúús til þín og þinna :)
19. desember 2007 klukkan 17:23
Dísa í SønderborgTakk fyrir að vera svona dugleg að blogga Linda mín og leyfa okkur að fylgjast með ykkur. Hugur okkar eins og svo margra er mikið hjá ykkur og gefur það mikið að fá reglulegar fréttir af ykkur. Vonandi hefst jólaundirbúningurinn án mikilla vandkvæða....þegar gjafirnar eru búnar er mikið komið...Endalaust knús til ykkar yfir hafið og frábært að heyra þetta með svefninn...
Dísa
19. desember 2007 klukkan 19:06
Magga Drottning skrifar ...
Sælar vinkona.
Bara sma kvedja fra Hælinu , hugsa til thin , thu væriri fin herna med mer thad væri snilld i humornum tha.
konan med hvitu jolasveinahufuna.
Hilsen Magga
19. desember 2007 klukkan 19:13
dagny sævars skrifar ...
 
uff hvad eg held ad thad se stort skref ad taka dotid hans Asa i burtu... og hvenær er retti timinn???
mundu ad heitir koffinlausir drykkir og friskt loft bætir oft svefninn...
Sofdu vel og gangi ther vel i jolaundirbuningnum.
kær kvedja
dagny
19. desember 2007 klukkan 20:55
Steinunn Braga skrifar ...
 
Sæl Linda

'Eg kíki reglulega inn á síðuna þína og sit með kökk í hálsinum og verk í hjartana þegar ég les. Ég verð að segja að það er ótrúlegt að lesa lýsingarnar þínar á því hvernig þér líður. Ég trúi því að þegar þú skrifar um líðan þína þá getur það ekki annað en hjálpað þér sérstaklega af því þú ert svo sönn í líðan þínni. Endilega haltu því áfram þó það væri ekki annað en að skrifa það á blað bara fyrir þig.
Þú hefur ekkert breyst algjör köggull, það væri virkilega gaman að hitta þig þó það væri ekki annað en til að gefa þér knús. Ekki gleyma að passa sjálfan þig svo þú getir veitt börnunum þínum þeirra styrk. Munda að horfa ávallt til sólar þá munu skuggarnir falla að baki þér.

KV Steina Braga
20. desember 2007 klukkan 00:27
Stina skrifar ...
Elsku Linda.

Leit hér við eins og svo oft áður.... Veit ekki hvað ég á að skrifa - bara gjörsamlega galtóm :o).
Ég hugsa til þín og dáist svo rosalega mikið að því hversu hugrökk og dugleg þú ert.
Sendi knús og julehilsen til hele familien.
Á nú bara eftir að vinna í 23 mínútur...og svo langt jólafrí :o).
Knús Stina
20. desember 2007 klukkan 14:08
Ósk Laufey skrifar ...
 
Hæ,,,kvitti kvitt,,,,,,,takk fyrir síðast mín kæra,,,,,,alltaf jafn yndislegt að vera í návist þinni
Óskin þín
21. desember 2007 klukkan 21:12
Anna fimma skrifar ...
 
Hæ Linda mín.
Bara að láta vita af mér. Er með dálítið samviskubit að hafa ekki sent þér neitt lengi. Búin að vera á haus í öllu öðru en jólaundirbúningi, en ekki stressuð, bara þreytt :O Hugsa til þín alla daga og geri mér grein fyrir að það skilar sér ekki til þín með hugarbylgjum He ! He! Verð að fá að knúsa þig fyrir jólin, Heyri í þér hvenær hentar.
Knús og kram
Annan þín
21. desember 2007 klukkan 21:25
Hrund skrifar ...
 
Elsku Linda og börn! Ég sendi mínar hlýustu jólakveðjur til ykkar. það er átakanlegt að lesa bloggið þitt og lærdómsríkt.
Ég hef oft byrjað á kommentum en mörg hafa aldrei náð birtingu. Mér finnst oft erfitt að koma því frá mér sem ég vil segja þér.
þegar ég segji lærdómsríkt þá meina ég að með þínum skrifum, skil ég betur hvað þú ert að ganga í gegnum og hvað það er að missa ástvin. það er svo erfitt að setja sig í slík spor þegar maður hefur ekkert líkt í farteskinu.
Jólakveðju vil ég einnig senda til allra ykkar sem stóðu Ása nær.
Kær kveðja
22. desember 2007 klukkan 08:05
Guðrún Þorleifs skrifar ...
 
Jólaknús
23. desember 2007 klukkan 14:41
Þóra skrifar ...
 
Sæl elskan og takk fyrir gærkvöldið þetta var rosa gaman og alltaf gaman að hlægja og fíflast með þér.
Mér finnst þú algjör hetja .
Gleðileg jól og hafðu það sem allra best yfir hátíðina.
Hilsen Þóra beibí
23. desember 2007 klukkan 18:22

Skrifa athugasemd

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Klukkan

Leit

Innskráningar kubbur

Flokkar