Gleðileg jólin!!!
Jú jú þau koma víst, sama hvort maður er undir þau búin, langi til þess eða hafi áhuga á því að halda jól!!!!
Við erum búin að:
* skreyta jólatréð.
* pakka inn öllum pökkunum.
* fara að leiðinu með ljósakrossinn og pornóljós.
* kaupa allt í matinn.
Þá held ég að það sé upptalið.
Við eigum eftir að:
- búa til jólagrautinn.
- taka kalkúninn úr frystinum.
- skúra.
- þurrka af.
- ryksuga.
- leggja á hátíðarborðið.
- skipta á rúmunum.
- finna til jólafötin á alla fjölskylduna.
Ætla ekki að:
/ skúra.
/ þurrka af.
/ ryksuga.
Verð að:
# elda kalkúninn.
# búa til jólagrautinn.
# leggja á borð.
# finna til föt.
Annað sem til fellur, verður gert eða látið eiga sig!!!
Erum að hugsa um að fara í kirkju á morgun annað kvöld. Höfum aldrei gert það áður, en þar sem þessi jól verða öðruvísi en öll önnur jól, þá er alveg eins gott að breyta eins mikið útaf vananum og hægt er........ svo þá skellum við okkur í kirkju. Við skreyttum líka tréð fyrir mööööörgum dögum, erum vön að gera það á Þorláksmessu. Er búin að pakka inn öllum pökkunum, er vön að gera það aðfaranótt aðfangadags. Fór í partý í gær og drakk of mikið kaffi (hmmmm)...... (er þar af leiðandi frekar framlág í dag!!!!)............ hef ALDREI farið í partý svona nálægt jólum áður...... veit ekki hvort ég geri það aftur!!! En það var samt gott og gaman. Er búin að þrífa bílinn, man ekki eftir að hafa gert það áður.
Njótið jólanna og hvers annars, og munið að jólin koma, hvort sem ykkur líkar betur eða verr, þess vegna er um að gera að gera að vera ekki að stressa sig á neinu........ frekar nýta tímann í að vera saman og njóta hvers annars.......... það er alveg hægt að þrífa og skúra á jóladag....... eða seinna!!!
Jólaknús allann hringinn á ykkur öll!!!!!!
ég

Hér er allt í góðum gír, allt að verða tilbúið fyrir þessa hátíð ljós og friðar.
Jólaknús,
Guðrún Þorleifs.
Jólakveðja
Hrund
Hérna erum við nú að reyna að stressa okkur ekki á "öllu" sem "þarf" að gera fyrir jólin, ætli það þurfi ekki allsherjarhreingerningu eftir jólin hvort sem er ;o)
kærar kveðjur frá Sønderborginni, Begga
Megið þið eiga ánægjuleg jól á þínu heimili. Við hugsum mikið til ykkar og vonum að friður jólanna nái inn í hjörtu ykkar og ylji ykkur.
Risa jólaknús til ykkar.
Dísa, Snorri, Sævar og Dagný Eva
Líst vel hjá ykkur að fara í kirkju.
Líst vel hjá þér hvað þú ætlar ekki að gera fyrir jólin, þetta er ekki nauðsynlegt,,
eins og ég geri bara, ég minnka ljósin og kveiki nógu mikið af kertum, þá sést ekkert í rykið ;)
Hugsa til ykkar á hverjum degi og ég vona að þið munið eiga góð jól þó erfitt verður......
Jólaknús til ykkar allra
Gígja
Við óskum ykkur gleðilegra jóla og farsæld á nýju ári. Guð geymi ykkur öll.
Kærar kveðjur frá Húsavík - hvítu jólunum :-)
Kærar jólakveðjur til ykkar.
Kveðja
Kolla, Siggi, Jóhann Karl og Birgir Már
knús
Gurry og börninn
Jólakveðja frá Fynshav, Þóra og co.
Glædelig bagjul, som vi siger her i det danske, når man som jeg er lidt for sent ude.......... hmm, er det en god undskyldning, at jeg har været på arbejde de sidste 4 dage og ikke har sovet for julestress. Og det på trods af mine meget nøje og i fin dansk stil planlagte juleforberedelser. Ja, ja er nu eeendeliiig kommet i julefri. Hov der sneg sig da vist lidt islandsk talemåde ind. Hvor om alting er, kan næsten ikke vente til vi snart ses,
Mange kærlige juleknus fra mig til dig.
Alice
Kær kveðja,
Elsa Dögg
Kveðja af skaganum.
Júlla og Sillinn.
vona að þú og börnin hafið átt notaleg jól þrátt fyrir að þau hafi líklega verið erfið.
Megi nýja árið verða ykkur gott.
Bestu kveðjur
Auður og Daði Neskaupstað
Ekki vera forvirred að koma inná bullsíðuna... veit eki sjálfur hvað er að ske.
Frétti að það væri snjór og næs á klakanum. Hér er frekar grátt, og eginlega bara betra í myrkri ;þ)
Gull og gleði... bjartir straumar úr Sönderborg (Sólar borg), þrátt fyrr grámann.
Megi hið nýja ár færa þér gleði og góðar stundir.
Hlakka til að hitta þig með hækkandi sól.
Áramótaknús frá Sönderborg, þar sem viðrar vel fyrir flugelda í kvöld ( sjaldan þessu vant ;) )
Ég óska þess að þetta nýja ár meigi vinna með ykkurí að láta sárið gróa. Ég óska þess að það styrki ykkur í trúnni á lífið eftir svo sorglegan missi sem þið eruð að ganga í gegnum.
Kær kveðja