Nýtt ár!!!
02. janúar 2008 klukkan 13:21
Jú jú við komumst klakklaust í gegnum jólin og áramótin. Ekki er hægt að neita því að þau voru skrítin og öðruvísi, en góð engu að síður.
Hlakka ég nú bara til að þessi jól verði búin og hið daglega líf geti tekið völdin og ég kannski fundið út hvað ég á að gera við restina af mínu lífi!!!!
Börnin byrja í skólanum á föstudaginn........ verður það erfitt, þar sem við sofum til hádegis orðið daglega á þessu heimili!!! Forréttindi að eiga svona gömul börn. Hvar ætli þetta endi eftir nokkur ár, ætli við sofum ekki allann daginn bara!!!!
Takk enn og aftur fyrir allar góðar kveðjur........ þær eru mér ómetanlegar.
Þangað til næst;
ég
Hlakka ég nú bara til að þessi jól verði búin og hið daglega líf geti tekið völdin og ég kannski fundið út hvað ég á að gera við restina af mínu lífi!!!!
Börnin byrja í skólanum á föstudaginn........ verður það erfitt, þar sem við sofum til hádegis orðið daglega á þessu heimili!!! Forréttindi að eiga svona gömul börn. Hvar ætli þetta endi eftir nokkur ár, ætli við sofum ekki allann daginn bara!!!!
Takk enn og aftur fyrir allar góðar kveðjur........ þær eru mér ómetanlegar.
Þangað til næst;
ég
Frú Megabeib

Ekkert gerist samt... fer bara heim!... hils..
erbull.erer.dk
Hilsen Þóran
Gott að þið áttuð góð jól, en það er nú alltaf gott að komast í þessa föstu vinnu-/skólarútínu aftur. Ekki það að maður sofi lengi frameftir með einn lítinn orkubolta heheheh...
Vona að þú finnir út úr því hvað þú ætlar að gera í komandi framtíð.
Knús, Begga
ég var búin að skrifa fullt hérna en það datt allt út er þetta þolinmæðisnámskeið ???
Guð gefi þér og þínum gleðilegt ár.
Hver fékk möndlugjöfina og hvað var í henni8.
Gummi fékk hana hjá okkur ,,,einhverja íslenska bíomynd.( sem mig langaði að sjá)
Hver ætli hafi keypt hana............
Sjáumst á laugardaginn hjá Hönnu Lóu í ömmu boði...
kveðja
Vonum að þið hafið haft það eins gott og hægt er miðað við astæður. Það er alltaf ágætt þegar þessum tíma er lokið. Eins yndislegur og þessi tími er þá er hann líka einn af þeim erfiðustu fyrir þá sem hafa misst ástvini því þessi tími er tími fjölskyldunnar og ást og friðar. Hafið það sem allra best á nýju ári.
Bestu kveðjur af Skaganum.
Karen og co.
Knús Stína
Nýjarsknús úr snjókomunni í Syðri Borg
Gleðilegt ár og takk fyrir allar liðnar samverustundir. Vonandi hittum við ykkur sem fyrst.
Knús og kram
Dísa og co.
Kær kveðja Dagný
Leit við og ákvað að kvitta það gera kurteisir lesendur ;) Takk fyrir spjallið um daginn, það var ljúft að heyra í þér. Síðan þá er ég með tvennt em ég þarf að segja við þig. Ekkert merkilegt, held ég . . . en samt ;)
Knús til þín og bestu óskir.
Guðrún í skólanum :)
Það er loksins sem ég gef mér tíma til að kíkja hingað til þín, búin að hugsa ssssvvvvoooo mikið til þín vinkona.Við erum á fullu að koma rútínunni í réttar skorður, gengur svona misvel, ha, ha !
Tók niður jólin hjá mér í gær, guðslifandi fegin að fá aftur gólfplássið mitt, ekki of mikið af því. Held samt að ég hafi 2-3 seríur enn uppi við, finnst svo
notalegt að hafa ljósadýrðina örlítið lengur. Það er eitthvað svo dimmt og óspennandi að hafa engin ljós í skammdeginu. Jólakortin eru jú líka enn uppi við.
Það er svo gott að hafa myndirnar og kveðjurnar hjá mér yfir morgunmatnum (og öðrum matmálstímum !)
Kærar kveðjur til ykkar,
Annan þín
Knus fra Alice
bara að kvitta fyrir innlitinu í dag, kvitt, kvitt !!!!
kær kveðja
ég, (þessi eina sanna !!!!!!!!!!)
Björg, Bjarnaaðdáandi