Prófíll

  • Nafn: Frú Megabeib
  • Staður: On the Kleik

Auglýsing

Prófíll

  • Nafn: Frú Megabeib
  • Staður: On the Kleik

Prófíll

  • Nafn: Frú Megabeib
  • Staður: On the Kleik

Ég

Blogga - ekki blogga?? Læsa - ekki læsa??

12. janúar 2008 klukkan 02:09
Ég var spurð að því um daginn hvort ég ætlaði ekki að halda áfram að blogga.  Ég svaraði því til að eflaust héldi ég því áfram, enda gott fyrir mig að losa um hugsanir mínar og koma þeim frá mér út í "loftið".

Er búin að skrifa mööööööööörg blogg í huganum........ en þori ekki að birta þau!!!  Afhverju?? Jú sko.......
 

Þegar maður skrifar blogg þá er maður að tjá sig, og með því þá ertu að hleypa fullt af fólki inní hugann á þér........stað þar sem þú ert nú venjulega bara sjálfur...... spurning um hvort það sé gott að hleypa hverjum sem er inní huga manns.  Eins og það er fullt af fólki sem ég hef engann áhuga á því að viti hvernig mér líði....... því kemur það einfaldlega ekki við!!!  Og eins það að sonurinn minn á það til að líta við á síðunni og lesa það sem móðir hans er að tjá sig um..... er ekki viss um að það sé hollt fyrir hann að lesa hvað ég er að hugsa......... það er víst nóg að það sé búið að henda honum inní fullorðinsárin........ þó svo að hann sé ekki að taka þátt í hugsanaganginum þar líka!!!!
 

Afhverju skrifar þú þá ekki bara á blað fyrir sjáfa þig, gætu einhverjir spurgt...... málið er að það er líka gott að vita að það hafi einhver áhuga á því að vita hvernig mér líður og oft á ég auðveldara með að tjá mig í ritmáli en töluðu máli og þá er gott að vita að hugsanirnar mínar eru lesnar.  Ég þrífst á kvittinu og finnst alveg dásamlegt að vita og sjá svörin og oftar en ekki góðar lausnir á vandamálum mínum, þó þau virðist ekki stórvægileg, þá hjálpa svör og kvitt og hugmyndir meira en nokkurn skildi gruna.
 

Afhverju læsir þú þá ekki bara blogginu þínu, gæti þá verið spurningin....... ég veit ekki....... hmmmm..... finnst það bara einhvernveginn ekki vera rétt........ veit um fólk sem les það sem ég er að skrifa en gæti ekki opnað síðuna ef hún væri læst....... af einhverri ástæðu finnst þessu fólki, gott, gaman eða jafnvel fróðlegt að gægjast inn í huga minn...... eða það gæti bara verið ósköp venjuleg forvitni sem rekur fólk áfram!!! 

Þannig að ég er mikið búin að velta þessu fyrir mér, fram og tilbaka...... hvað á ég að gera....... en ég finn hér og nú í þessum skrifuðu orðum að það er gott að skrifa þetta “frá” mér.....  þá þarf ég ekki að nota meiri orku í að velta þessu fyrir mér lengur.
 

Vona að þið hafið komið vel undan áramótunum.  Ég er enn að ganga frá jólunum og áramótunum........... allt í slow motion hér hjá mér!!!!
 

Nú er bara um að gera að rífa sig upp á rasshárunum og leita sér að vinnu og fara út að hitta fólk og lifa lífinu.  Um leið og ég er búin að ná rýtingnum úr bakinu á mér!!!  Jú, jú fékk einn svoleiðis í bakið núna í vikunni........ hef upplifað betri dag en þann daginn........ verð að segja það!!!!! 
Svona er maður alltaf vitlaus..... heldur að fólk sé allt öðruvísi en það í rauninni er!!!!  En ekkert við því að gera......... ekki fer ég í það að breyta fólki..... ekki mitt hlutverk í þessu lífi....... vona bara að rýtingsberinn sofi vært og sé ánægð með dagsverk sitt!!!  Nei eignlega ekki........ en svona er þetta bara!!! 
 

Kæru lesendur nær og fjær, þekktir sem óþekktir, kvittarar sem ókvittarar, aldrei að vita hvað kemur frá mér í framhaldinu.

Látið ljós ykkar skína...... mér finnst svoooooo gaman að "heyra" frá ykkur!!!!

Þangað til næst;

ég
Frú Megabeib
Gígja skrifar ...
 
Hæ Sæta.
Ég veit ekki hvað er best að gera varðandi með þetta hvort þú eigir að læsa eða ekki, en það er fullt af fólki sem vill lesa hjá þér en þorir bara hreinlega ekki að kvitta,en....hvað varðar Kristófer að hann er að lesa þitt blogg er það ekki bara allt í lagi?? Annars veit ég það ekki.....
En hvað varðar með jóladótið þá langar manni bara ekki taka niður ljósin þar er svo dimmt annars, svo þú verður að þola að sjá jólatréið mitt út um stofugluggann þinn ;)
Gott hjá þér að fara leita af þér vinnu - það er gott að koma út og hitta fullt af fólki sem er bæði skemmtilegt og forvitnilegt.....
Sé þig seinna,,,,
Gígja
12. janúar 2008 klukkan 09:28
Eva Bjørk skrifar ...
 
Merkilegt hvernig hugsanir skipuleggjast og oft auðveldara að taka ákvörðun þegar það er skrifað niður. :)

Gleðilega nýtt ár.

Knús
Eva Björk
12. janúar 2008 klukkan 11:13
Maja skrifar ...
 
Ekki dettur mér í hug að taka niður jólaljósin í þessu niðamyrkri í janúar, (íhuga það kannski í febrúar) svo ekki myndi ég stressa mig á því í þínum sporum (nóg er af öðru til að stressa sig á!)
Vonandi að nýja árið leggist vel í þig og börnin þín og bjartari dagar séu framundan.
Bestu kveðjur frá uppljómuðu húsi í Grindavík:)
Maja og fjölskylda
12. janúar 2008 klukkan 11:37
Elsa Dögg skrifar ...
 
Hæ Linda. Ég skil þessar pælingar þínar og dáist af fólki sem getur bloggað.
Ég er sjálf svo spéhrædd að ég á í erfiðleikum með að kvitta hérna. En ég held að enginn geti sagt þér hvað þú eigir að gera, þú verður bara að finna það sjálf. Ég hins vegar, kem hérna við á meðan þú hefur eitthvað að segja.
Gangi þér vel,
Elsa Dögg
12. janúar 2008 klukkan 12:28
Björg frænka skrifar ...
 
Hæ hæ, mitt atkvæði fellur með bloggi og opinni síðu. Ég held að þínar hugrenningar þjóni aðeins góðum tilgangi, bæði fyrir þá sem lesa og ekki síst þig. Svo ertu líka frábærlega góður penni.
Svo segi ég bara ,,go girl" það er fullt af fyrirtækjum og atvinnurekendum þarna úti sem bíða eftír þér.

Kv. BjarnaAraaðdáandinn:)
12. janúar 2008 klukkan 14:36
Guðrún Þorleifs skrifar ...
 
Vona að þú haldir áfram að blogga þú ert dúndur penni. Hvort síðan er opin eða lokuð velur þú, en mér finnst læstar síður leiðinlegar. Mundi gera undantekningu með þig ;)
Förum nú að "hittast" :)
Kærleiksknús til þín
12. janúar 2008 klukkan 14:51
Alice skrifar ...
 
Kære Linda!
Hmmm blogg eller ej. Havde egentlig skrevet en masse, men har fortrudt.
Som altid du er i mine tanker.

Knus fra Alice
12. janúar 2008 klukkan 15:37
Fía skrifar ...
 
Hæ hæ, Úff vont að fá rýting í bakið, en þú stendur bara upp sterkari fyrir vikið ! Vona að þið hafið það sem allra best, Kveðja, Fía
12. janúar 2008 klukkan 18:05
Anna fimma skrifar ...
 
Sæl elsku vinkona.
Þegar stórt er spurt er oft fátt um svör. Reyndar er það nú þannig með mig að ég hef margt að segja þegar ég þarf að bregða mér frá tölvunni, sem er nú all oft !!!!! en þegar ég stari á skjáinn og tilbúin með fingrasetninguna á lyklaborðinu, tja !!!! þá er allt tómt. Ég fyrir mitt leiti vona svo sannarlega að þú haldir áfram að rita hugrenningar þínar á bloggið, hvort sem það verður opið eða lokað. En ég skil vangaveltur þínar, oft hugsað á svipuðum nótum en ekki þurft að taka slíka ákvörðun, þar sem ég blogga nú ekki !!!!!!!!! Mér finnst gott að fá dálítinn skilning á líðan þinni með því að lesa pistlana þína og á meðan þú færð styrk og stuðning í kjölfarið þá finnst mér það ansi mikill tilgangur. En að sjálfsögðu ert það bara þú sem getur tekið ákvörðun, eftir að hafa metið kosti og galla þessa miðils.
Með von um skjótan bata í bakinu og góða ákvörðun sendi ég þér mínar kærustu og bestu kveðjur.
Knús og kram
Anna
12. janúar 2008 klukkan 19:13
Olga skrifar ...
 
Þetta er einmitt það sem ég er búin að vera að pæla í þessa dagana, þyrfti endilega að rasa aðeins út um skóla og leikskóla dætranna sem mér finnst ekki vera að standa sig þessa dagana en hika þó........ og þekki einmitt þetta að ég hætti bara að lesa síður sem allt í einu eru læstar, bara nenni ekki að standa í því, en segi eins og fleiri myndi nú gera undantekningu....
12. janúar 2008 klukkan 19:23
Guðný skrifar ...
 
Ég þekki þig ekki neitt en les síðuna þína reglulega. Mér finnst þú góður penni og hef oft hlegið mikið yfir skrifum þínum hérna á síðunni. Þú og börnin þín eruð búin að ganga í gegnum órúlega mikin missi og ég myndi alveg skilja það ef þú hættir að blogga, en ég myndi sakna þess að lesa skrifin þín þar sem ég kíki ávalt hérna inn þegar ég er á bloggrúnti.
Mig langar líka að óska þér og börnunum þínum gleðilegs árs og vona að það séu bjartari tímar framundan hjá ykkur á þessu ári
12. janúar 2008 klukkan 22:39
GÓLÍNA OG FJÖLSKYLDAN ÖLL skrifar ...
 
LOVE YOU HONNY PÆ

GÓLÍNA :-)
13. janúar 2008 klukkan 02:29
Anna fimma skrifar ...
 
Bara að kíkja við. Kvitt, kvitt !!!!!!!!!
Eigið þið góðan dag í dag :)
Knús, knús
Anna strákamamma
13. janúar 2008 klukkan 12:40
Edda skrifar ...
 
Skil þessar pælingar vel, ég er t.d. ekki eins opinská í mínu bloggi og þú, er alltaf að vanda mig við að vera "hlutlaus" eða þannig, ekki segja neitt óþægilegt eða persónulegt... dáist að þér að geta skellt öllu út í loftið... Gangi þér vel í atvinnuleitinni. Sjáumst fljótt..
13. janúar 2008 klukkan 17:56
magga Drottning skrifar ...
 
Sælar vinkona.
Gott ad kikja a bloggid thitt. hjalpar ødrum einsog minni herna a spitalanum i DK.
Skritid hversu mikikn styrk madur fær fra ther en heyriri ekki i mørgum sem ad madur thekkir alveg rosalega vel ad madur haldi.
Haltu afram Linda min.Eg hugsa entha til Thorlaksmessu thegar thu varst i Kringlunni med børnin thin ad undirbua pakkaleikin med theim.
Dulegust eg tek hattin ofan fyrir konu einsog ther , reyndar ekki annad hægt, eg vil hafa hann nogu glamor( hattinn)
Hilsen fra krampakonunni i Dianalund.
kv Magga
14. janúar 2008 klukkan 07:41
dagný sylvía skrifar ...
 
mér finnst ekkert á blogginu þínu sem er ekki við hæfi Kristófers... finnst þú ekki "overskride grænsen"... ætli hann geri sér ekki grein fyrir því innst inni hvernig þér líður... samt erfitt að segja til um.
Hef hugsað svona svipað sjálf... í sambandi við bloggið..á ég að hleypa fólki inn í hugann minn (og láta fólk dæma mig útfrá einhverju algjöru bulli) eða bara sleppa þessu. málið er bara að mér finnst þetta gaman og mér er líka nokkuð sama hvort fólk tekur mark á öllu sem ég skrifa eða ekki. (en mitt er heldur ekki með tilfinningum í líkingu við þínar)
mér finnst þú eigir að halda áfram því þú ert góður penni og þetta hjálpar þér... og finnst ekki að þú eigir að læsa... ;) þá fengirðu líklega ekki eins mörg kvitt;)
kær kveðja Dagný (sem tók niður allt jólaskraut 5.jan;))
14. janúar 2008 klukkan 12:15
Dagný G&G skrifar ...
 
Gleðilegt nýtt ár og takk fyrir þau gömlu:)

Ég vil endilega biðja þig um að halda skrifum þínum áfram - ég kíki hingað reglulega og myndi sakna þess ef skrif þín myndu hætta. Þú ert skemmtilegur penni!
Maður hittir þig líka svo sjaldan og það er gott að geta fengið fréttir af því hvernig þið börnin hafið það á þennan hátt - við hugsum oft og mikið til ykkar.

Með von um framhald

Kær kveðja Dagný
14. janúar 2008 klukkan 12:26
Ósk Laufey skrifar ...
 
Hæ mín kæra. Vildi bara kvitta og kvitta. Hlakka til að eyða helginni mér þér og hinum af fimm fræknu
Stórt knús og kossar til þín og barnanna.
Ósk
14. janúar 2008 klukkan 23:08
Anna fimma skrifar ...
 
Hæ krúttið mitt.
Bara að kíkja enn og aftur, kvitt,kvitt !
Hlakka mikið til helgarinnar og hugsa mikið hvað ég ætla að taka með mér!!!!!!! eins gott að við förum á tveim bílum :)
Sindri er miklu betri og ég á von á að hann verði algóður fyrir föstudaginn.
Kærar kveðjur til ykkar og stórt knús.
Anna krúsídúlla :)
15. janúar 2008 klukkan 11:03
magga Drottning skrifar ...
 
Gott mal ad thid vinkonur erud ad fara eithvad skemmtilegt .Takid skofluna med , er ekki alltaf snjor tharna a klakanum.
Bid ad heilsa theim øllum held ad eg thekki thær flestar ad minstakosti Ønnu , Binnu og Osk. Takid einn øl fyir mig
15. janúar 2008 klukkan 11:30
Dísa skrifar ...
 
hæ snúlla
ég er alltaf á leiðinni yfir götuna, en það er svo langt heheh
endilega bloggaðu það losar um
eldhús glugginn þinn er æði séð frá mér :-)
kvitt kvitt Dísa
15. janúar 2008 klukkan 22:31
Kolla skrifar ...
 
Sæl Linda

Endilega haltu áfram að blogga, það er svo gott að geta fylgst með þótt við hittumst aldrei.
Sakna skemmtilegu stundanna í kórnum og skemmtananna í Dk. Þannig að mér finnst gott að geta lesið aðeins um hvað er að gerast hjá ykkur.
Er samt sjálf of mikið "tjikken" til að geta bloggað sjálf.
Gangi ykkur allt í haginn á nýja árinu.

Kolla
16. janúar 2008 klukkan 09:48
Elsa Dögg skrifar ...
 
Hæ hæ Linda. Góða skemmtun á Laugarvatni um helgina.
Kærleikskveðja,
Elsa Dögg
17. janúar 2008 klukkan 12:36

Skrifa athugasemd

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Klukkan

Leit

Innskráningar kubbur

Flokkar