Hvað á frúin að gera???
17. janúar 2008 klukkan 13:00
Þá er komið að því!!!!
Öll kvittin ykkar virkilega hjálpuðu til........... svo það er spurningin hvort maður leggi ekki bara aðra spurningu undir ykkur!!! Tilbúin???
Á ég að fara að vinna eða ekki???
Sko............
Það er búið að hringla svooooo mikið í mér fram og tilbaka með þetta að ég er algerlega orðin alveg rugluð.
Sumir segja að ég eigi bara að drífa mig og skella mér í það að fara og vinna.
Aðrir segja að ég sé engan veginn tilbúin til að fara út á vinnumarkaðinn strax.
Ég sjálf hef enga tilfinningu fyrir því hvað sé best að gera í stöðunni.
Finnst ég vera frekar óákveðin, fer eftir því hvaða dagur er og hvernig skapi ég er í.
Langar að fara út og hitta fólk, en finnst líka bara gott að vera heima og dunda mér við að taka til og snöfla.
En það tekur eflaust enda, þetta með að taka til. Það er ekki eins og ég búi í höll!!!!! En af nógu er af taka og er ég ákveðin í að henda einhverju af þessu drasli sem ég er búin að vera að sanka að mér í gegnum tíðina!!!
Að sjálfsögðu kom ég mér undan því um daginn að gera eitthvað við dótið hans Ása míns..... setti bara skóna inní geymslu og hljóp út...... nú fer samt alveg að koma að því að ég verði að fara í gegnum þetta ............. kannski ég seti bara allt í "flytte"kassa, þetta sem flýtur útum alla geymslu. Þá er allir hans hlutir á einum stað, þannig að þegar ég er tilbúin, hvenær svo sem það verður, í að sortera og minnka og fjarlægja hluti þá eru þeir til staðar og ég ekki búin að henda þeim út á hafsauga!!!! Ótrúlegt hvað ég get sveiflast mikið í því líka!!! Á ég að drífa mig í að taka allt hans dót í burtu eða á ég að bíða??? Veit ósköp vel að það er bara ég sem get svarað því........ en finnst samt gott að tjá mig um það!!!!!
Finnst eins og ef ég tek tannburstann og hreinsa útúr skápnum og fjarlægi allt svona lauslegt, þá finnst mér ekki eins auðvelt að "leika" að Ási sé bara í Kína!! Því jú ég geri það.......... það hjálpar mér að komast lífs af í þessu ógeðis ógeði!!!! Á milli mínútna....... en viðurkenni alveg að þetta er ekkert sérstaklega gáfulegt...... en svona er þetta nú bara samt!!!
Ætla að skella mér með Fimmunum í sumarbústað um helgina.......... það verður bara gaman!!!
Takk fyrir kvittin ykkar............ þið eruð best!!!!!
Over and out;
ég

Frú Megabeib

ég hugsa að ég myndi veðja á það að fara að vinna. Komast aðeins út á meðal fólks og þá held ég líka að þú njótir
þess betur að vera heima í ró og næði að vinnudegi loknum. Sjálfsagt hefur þú einhver mótrök við þessu sem ég hef
ekki spáð í þar sem ég er ekki í þínum sporum og sé kannski ekki alveg það sem þér finnst standa í vegi fyrir því að þú
treystir þér út á vinnumarkaðinn.
En ég vona bara að þú náir að taka ákvörðun sem þú ert sátt við, það er það sem skiptir öllu máli.
Njóttu nú helgarinnar í botn með fimmunum...
Og kærar þakkir fyrir afmæliskveðjuna ;o)
Knús og góðir straumar úr suddanum í Sønderborg, Begga
tölvupóstfang eða heimasíðu, svo að ég hef ekkert getað sent henni til baka). Hún lærði með mér leikskólakennarann.
Og þá kveð ég bara aftur,
Begga
Ég myndi fara og spjalla við prest eða einhvern sambærilegan sem er vanur að ráðleggja fólki í sorg eða erfiðleikum. Ég á presti mikið að þakka og myndi ekki hika við að leyta til hans, væri ég í þínum sporum. Það er erfitt að ráðleggja öðrum með svona ákvarðanatöku, fyrir "venjulegan leikmann" því styrkur manna og líðan er mismikill þessa eða hina stundina og erfitt að setja sig í spor annara.
Ég myndi setja dótið hans Ása í kassa og geyma það þar til að þú ert tilbúin að ákveða hvað þú viljir gera við það. Mér finnst það skynsamleg hugsun hjá þér.
Góða ferð með stelpunum í sumarbústaðnum og ekki gleyma að skemmta þér.
Kærar kveðjur frá Sønderborg.
Hafdís
Það er alltaf hægt að fara í compromis í öllu! Líka með spurninguna um vinnu. Hlutavinna getur líka verið lausn :). Það er ekkert sem segjir að þú þurfir að vinna straight 8-10 tíma á dag. Fjórir tímar á dag er líka meira en nóg! :)
Kveðja
Eva Björk
Hef litlar ráðleggingar til þín varðandi hvað er rétt að gera.....bara eitt....
farðu ekki of geyst af stað - hvorki í vinnu eða pakkeríi:o).......reyndu að fókusera
á þínar tilfinningar og hvað er rétt fyrir þig...útfrá þinni líðan (veit ekki hvort ég
kem þessu frá mér á skiljanlegan hátt) :o)
Hér verður kveðjupartý fyrir Nönnu annaðkvöld.....það verður örugglega gaman þrátt
fyrir að mér finnist ástæðan ekkert til að gleðjast yfir :((......sé ekki alveg fyrir mér hvernig lífið verður án
Nönnu hér í Sdbg.......
Enn og aftur góða helgi :o)
Knús Stína
Ingen råd her fra ang. arbejde eller ej. Ved dog, at det hjalp min mor utroligt meget at komme ud af huset efter fars alt for tidlige farvel.
Linda du er et varmt, dejligt, kreativt og givende menneske!
Stort knus fra Alice.
Ég myndi nú ekki taka allt í einu og svo púff allt tómlegt og samviskubit yfir að ætla að lifa áfram, en þetta er örugglega
mjög misjanfnt hvað hentar.
var ég ekki djúp ;-)
klemmuknús D.
Þar að auki að þá ertu fólks manneskja og ÁTT að var úti meðal fólks.
Með allt "extra" dót á heimilinu "tel ég" að þú eigir að koma frá augunum (sama hvu stórir/litlir þeyr eru), hvort sem að það fer inn í geymslu eða út í skúr (ef að hægt er að opna hann fyrir "draslinu" mínu) og þá á ég við ALLT (ekki endlilega rétt mat enda er þetta mitt mat) þar til að það er kominn tími til að skutla þeim í góða hirðinn eða bara í ruslið.
Mér finnst það ekki vera holt fyrir neinn að vera með ákveðna hluti fyrir augunum allan daginn það bara brenglar fyrir manni hugsununni.
Ekki það að ég sé svo duglegur að losa mig við extra hluti, er ekki allveg tilbúinn að henda þeym strax en er þó búinn að setja þá í geymslu.
Finnst hálf kjánalegt að tala svona um "extra" hluti, enda kann ég ekki að tala undir rós eða búa til samlíkingar en ég vil ekki tala beint um hlutina finnst það of erfitt.
Vona að mér verði fyrirgefið með það.
Eigið góðan dag í dag og það sem eftir er af vikunni.
kv Gunnar H.
Vinkona mín lenti í því sama og þú og henni fannst gott að fara út að vinna en samt MJÖG erfitt en þá komst
allavegana rútína á líf hennar á ný. En þetta er bara svo persónubundið. Alltaf gott að hitta fólk og dreifa huganum!!
Kv.Sigrún Inga
En segji eins og fleirri hvað með að prófa hlutavinnu og setja svo dótið í flyttekassa.
Góða skemmtun um helgina
Knus
ég held að sá dagur kemur að þú ert tilbúin að setja allt dótið hans Ása í kassa, þú finnur sjálf hvenær sá dagur kemur held ég. Ekki setja neitt niður fyrr en þú finnur það að þú ert sjálf tilbúin og þið öll tilbúin til þess. Það er ekki svo langt síðan að hann fór frá ykkur, þið verðið að taka ykkur þann tíma sem þið þurfið. Stundum þarf maður að finna lyktina, anda að sér lyktinni hans og svoleiðis. Mér finnst líka allt í lagi að Kristófer sé að lesa bloggið þitt, ég hefði viljað getað "kíkt" í huga mömmu minnar á sínum tíma, finna að ég var ekki ein með þessa líðan og tilfinningar. Þið vinnið ykkur saman út úr þessu og lærið að lifa með stöðunni sem er komin upp. Þið verðið að fá ykkar tíma til að kveðja Ása. Hægt og rólega kemur þetta og verður eins gott og það getur orðið. Við erum misjöfn og eigum að fá að vera það.
Vonandi hafið þið það sem best.
Kveðja frá Húsó
Þú veist að það er miklu aðveldara að ráðlegga öðrum ;)
Gleymdu bara ekki að það er nú sem þú lifir, ekki seinna. Að fyrsta ferðin fram úr rúmi eftir uppskurð er erfiðust en lífsnauðsynleg. Þú þarft á einhverjum tímapunkti að stíga það skref að fara út á vinnumarkaðinn og það verur erfitt. Hvort það er betra að fresta því eða drífa í því, veit ég ekki en sumir segja að illu sé best aflokið á meðan aðrir segja að illu sé best slegið á frest...
Lífið er flókið en dásamlegt, nóttu þess.
Kærar kveðjur frá Als
Guðrún
mínar tillögur eru að fara að vinna og setja dótið hans Ása í kassa þar til þú ert tilbúin tl að gera eitthvað annað. Vinnan er svo mikilvæg sérstaklega félagslega að ég gæti allavega ekki verið án hennar... Góður punktur að byrja t.d. í hálfu starfi einhversstaðar..
Vona svo að þú hafir átt góða helgi í bústaðnum...
kveðja ;-)
Þú hefur örugglega fengið góðar ráðleggingar í búðstaðinum. Ég efast ekki um það.
Ég helf að þú hefur nú frétt af því að ég blómstra núna frekar mikið þessa dagana.
Heilsufarið hefur verið þokkalegt, bara svona smá hækkun á blóðþrýstingi..hummm. Ein sem verður að taka sig á í að gera eh í sínum málum.
En auðvitað fer ég rólega af stað...en vonandi getum við nú hisst fljótlega...
Hvernig væri ef þið kæmuð til min í smá kósykvöld um helgina.
Kær kveðja Elísa
Kærleikskveðjur til ykkar allra,
Anna panna