Prófíll

  • Nafn: Frú Megabeib
  • Staður: On the Kleik

Auglýsing

Prófíll

  • Nafn: Frú Megabeib
  • Staður: On the Kleik

Prófíll

  • Nafn: Frú Megabeib
  • Staður: On the Kleik

Ég

Tilgangur - tilgangsleysi ????

22. janúar 2008 klukkan 17:57
Er ekkert búin að gera!!!
Jú eða kannski............. búin að sækja um eina vinnu........ skil ekkert í því afhverju það er ekki búið að boða mig í viðtal......... eftir hverju eru þeir að bíða......... ég er algerlega rétta manneskjan í þetta starf!!!!

Er ekkert búin að gera í geymslunni........ eða í fatastandinum........ eða sænginni eða koddanum!!!!  Geri ráð fyrir að gera þetta þegar múttí og fattí eru flutt á neðri hæðina!!!!

Kannski verð ég farin að vinna fljótlega uppúr því og þá er kannski auðveldara að dreifa huganum!!!!

Ég hef einhvernveginn alltaf trúað því að allt hafi sinn tilgang og hlutirnir séu eins og þeir eru af einhverri ástæðu!!!!  Hver svo sem þessi heimskulega, ógeðslega ástæða fyrir því að vera búin að missa manninn minn er......... þá hlýtur hún að vera einhver!!!!  Get ekki hugsað það til enda ef þetta væri allt tilgangslaust........ þó svo að það virðist vera það oftar en ekki þessa dagana!!!  Hver er tilgangurinn í því að skilja börnin mín yndislegu eftir föðurlaus???  Stórt skarð hoggið í fjölskylduna okkar!!!  Skarð sem aldrei verður fyllt!!!!  Þetta er alveg andstyggilegt........... og svo óendanlega ósanngjarnt......... og ég segi það ennþá einusinni enn, svindl svik og prettir!!!!!!!

Bíð alltaf ennþá eftir því að þetta sé bara viðbjóðsleg martröð sem ég vakni uppaf rétt bráðum..... að maðurinn minn hafi bara farið að vinna erlendis....... í Kína......... og komi heim til mín og barnanna okkar ekki á morgun heldur hinn!!!!  Mikið vildi ég óska þess að það væri satt!!!!!  Bara að hann stæði hérna fyrir utan einn daginn!!! 

En ég hlýt að fá vinnu.......... það hlýtur að vera einhver þarna úti sem þarf nákvæmlega á mér að halda!!!!  veit bara ekki hvar ég á að leggja aðaláhersluna...... á það að vera á handverkið, hugvitið eða kunnáttuna???  Sé ekkert sem getur sameinað þetta allt saman!!!!

Hef ekki áhuga á að tala frekar við rýtingsberann......... verð víst að gera það........ fyrr en seinna er betra......... þá kannski fara hjartsláttartruflanirnar að hætta!!!!

Þá er röfli dagsins í dag lokið!!!

ég
Frú Megabeib
Anna fimma skrifar ...
 
Já mín kæra þetta er óskiljanlegt með öllu og afskaplega erfitt að sjá tilganginn í því, að þú og ástin þín hafið ekki fengið meiri tíma saman, og séð börnin ykkar stækka og dafna. Hversu sem það er sárt og óásættanlegt að ganga í gegnum þær raunir sem þið fjölskyldan þurfið að gera, þá getur ekki annað verið en að einhver ástæða sé fyrir hendi !!!!!!!! Ég bið fyrir ykkur á hverjum degi og ég vona að bænum mínum sé svarað.
Ég er gjörsamlega orðlaus yfir þessari grimmu og ósanngjörnu rýtingsstungu, og skil ekki hvernig hægt er að vera svona HJARTALAUS !!!!!!!!! Ömurleg framkoma, vægast sagt.
En vertu viss um að nákvæmlega rétta verkið / vinnan bíður þín þegar rétti tíminn er kominn. Það er ég alveg sannfærð um, ekki spurning ;) Þú veist "síkreta þetta " eins og þú kenndir mér í bústaðinum.
Nú er ég farin að sofa, ekki seinna að vænna og ég vona að þú sofir nú sætt og rótt, veðrið er betra núna !!!!!!!!!!
knús og kossar
Anna panna
23. janúar 2008 klukkan 01:28
magga Drottning skrifar ...
 
Linda min.
Nei ekkert rettlætir thetta.Ekkert.Get ekki gefid ther rad thar sem eg hef ekki reynsluna sembetur fer.Bid bara Gud ad gefa ther styrk og goda vini til ad tala vid og eg trui thvi ad thad hjalpi ther ad blogga. Vinnan kemur.Thad er einhver tharna uti sem verdur svo lansamur ad fa thina kunnattu og krafta og vera thinn vinnuveitandi. Børnin thin eru svo heppin ad eiga thig og allar thær minningar sem eru hja theim um pabba sinn.Go girl.Timinn læknar ekki en kanski verdur thu sterkari med hverjum deginum og mundu ad thiggja alla tha hjalp en ther bidst.Ekk vera thrjosk og springa ur stolti.Eg veit bara ad thad er fullt af folki sem thykir vænt um thig, enda ekki furda.Thu ert natturlega megabeib. Smil sæta.
Kær kvedja fra sjukling ur thjalfun.
Vid hittumst thegar mer verdur hleypt ut af hælinu i Dianalund to the Kleik.
23. janúar 2008 klukkan 07:55
Karen skrifar ...
 
Sæl Linda
Vildi láta þig vita að ég fer alltaf reglulega inn á síðuna þína og les þínar hugsanir og sendi þér góða strauma. En ég er ekki alltaf að kvitta, verð að vera duglegri við það.
Kær kveðja, Karen Lind
23. janúar 2008 klukkan 13:24
Guðrún Þorleifs skrifar ...
 
Sumir segja að tilvijun sé ekki tilviljun. Veit það ekki. Lífið er skrítð á köflum og óskyljanlegt á stundum. Gangi þér vel hetjan mín.
Knús og góðir straumar til .þín frá Sönderborgarbúanaum
23. janúar 2008 klukkan 20:17
Auður Þorgeirs skrifar ...
 
Kvitt kvitt.
kv Auður
24. janúar 2008 klukkan 14:49
Júlla skrifar ...
 
Hellú.
Þinn tími mun koma, rétta vinnan birtist á tröppunum hjá þér einn daginn. Hef bara ekki trú á öðru en að einhverjum vanti alveg nákvæmlega þig í vinnu hjá sér ;-)
Hlakka til að hitta þig á morgun, hjá Þóru baby. Það verður bara gaman hjá okkur eins og alltaf.
Kys og knús af skaga.
Hilsen Júlla.
24. janúar 2008 klukkan 21:01

Skrifa athugasemd

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Klukkan

Leit

Innskráningar kubbur

Flokkar