Prófíll

  • Nafn: Frú Megabeib
  • Staður: On the Kleik

Auglýsing

Prófíll

  • Nafn: Frú Megabeib
  • Staður: On the Kleik

Prófíll

  • Nafn: Frú Megabeib
  • Staður: On the Kleik

Ég

Smá tuð!!!

25. janúar 2008 klukkan 08:33
Það er ótrúlegt hvað sumt fólk getur verið svakalega upptekið af sjálfu sér og alveg svakalega frekt og yfirgengilega tillitslaust!!!

Maður er alltaf að læra eitthvað nýtt í þessu lífi........ það er víst alveg á hreinu!!!  Ofan á allt annað er ég nú að kljást við nýjan hlut, lífsreynslu..... eða hvað á maður að segja.  Mér finnst svo gjörsamlega gengið yfir mig á skítugum skónum að ég á ekki eitt einasta orð!!!!  Getur einhver útskýrt fyrir mér hvernig manneskju úti í bæ dettur í hug að ætla að fara stjórna því hvað ég á að gera og hvenær ég á að gera það???  Ekki það að þetta sé opinber aðili sem er í fullum rétti til að stjórna mínum högum sakvæmt lögum....... heldur er þetta privat aðili sem ég hef átt nokkur samskipti við undanfarið...... hvað heldur manneskjan að ég sé???  5 ára????  Þegar mér er SAGT hvað ég á að gera og einhver annar heimtar með frekju og yfirgangi hvað ég á að gera.......... þá spyrni ég einfaldlega niður fótunum og læt ekki hafa mig út í þessa vitleysu....... ég stjórna mér sjálf.......... ég er ekki 5 ára.......... og þessi aðili ræður ekki yfir mér og mínu lífi!!!!!  Afsakið orðbragðið, fyrirfram........ djöfulsins, helvítis frekja og yfirgangur í einni manneskju hef ég ekki upplifað áður........ er bara alveg mát!!!

Varð bara að koma þessu frá mér!!!

Börnin eru heima..... það er ófært í skólann.......... eða foreldrarnir ráða því hvort þau eru send eða ekki........... og ég ákvað bara í samráði við nágrannana að hafa þau bara heima!!!!
Ég er hinsvegar á leiðinni uppí rúm........ finnst það alveg æðislegt að skríða aftur uppí rúm........ ef ég hef breytt vandlega yfir rúmið mitt þegar ég fór framúr þá er sængin mín ennþá heit!!!  Ellllllllska það!!!!!  Man eftir því í gamla daga þegar ég var að bera út, hvað mig hlakkaði til að komast uppí rúm aftur þegar ég var búin að vera að hlaupa úti í kuldanum!!!  Nýt þess alveg í botn núna.  Fer framúr með krökkunum og borða með þeim morgunmat, svo skelli ég mér uppí rúm aftur þegar þau eru farin!!!  Dásamlegt!!!  Um að gera að njóta þess á meðan ég get........ ég er nefnilega bráðum að fara að vinna!!!!

Bóndadagurinn í dag......... planið var að fara uppí garð......syninum fannst það við hæfi og ekkert annað sjálfsagðara...... er ekki á jeppa........... þannig að við sjáum til hvernig veðurútlit verður seinnipartinn í dag!!!!

Njótið lífsins.........það er betra!!!!

Góða helgina............

ég
Frú Megabeib
Anna fimma skrifar ...
 
Æji elllllllsku Lindan mín. Ég er alveg bit, er enginn skilningur í manneskjufrekjunni ! Eins og þú hafir ekki um nóg annað að hugsa heldur en einhv. assk. tilætlunarsama frekju. Ef þú vilt tuða miklu meira og fá almennilega útrás þá er ég heima og tilbúin að hlusta, einstaklega góður hlustandi núna. Segi ekki mikið með mína hálsbólgu (sem er nú á undanhaldi) !!!!!! Ég tek undir það að það er dásamlegt að skríða aftur upp í rúm. Mér tókst það í morgun og gat kúrt alveg til hálfellefu, algjör lúxus !!!!! Prinsar nr.2 og 3 eru heima, nr. 2 er enn lasinn og nr. 3 svaf í alla nótt án þess að drekka neitt. Mér kveið pínu fyrir að vekja krónprinsinn í morgun í skólann (jú það var fært í sveitinni !!!!!!!!) eftir að hann hefur verið heima alla vikuna, en það gekk vonum framar. Ég sagið honum hvað blómin sem hann gaf mér í gær voru falleg og að blómstra út, minn maður bara spratt upp eins og fjöður til að kíkja á þau og eftir það var morguninn bara pís off keik !!!!!!!
En þar sem ég hef sannað mig í snjóakstri þá skal ég keyra ykkur upp í garð á mínu ofur tryllitæki með ánægju. Ég verð eins og strákarnir (stóru !!!) þegar það kemur snjór!!!!! JiiiiBBBBByyýý´ !
Hafið það gott í dag við allt sem þið takið ykkur fyrir hendur.Knús til barnanna og þín mín kæra.
Þú ert flottust, megaflottust :)
Mosóskvísan !!!!
25. janúar 2008 klukkan 12:08
Anna fimma skrifar ...
 
Ég er bara að spekúlera !!!!!!!!!!! Það eru 38 aðrir en ég búnir að kíkja á síðuna þína Linda mín, afhverju er ég sú eina sem er búin að kvitta ???????????
kær kveðja frá þessarri sem hugsar of mikið !!!
25. janúar 2008 klukkan 16:44
Björg frænka skrifar ...
 
Nú er ég númer 47 og læt ekki segja mér það tvisvar...KVITT.

Öfunda þig pínu af því að fá að kúra aðeins lengur í veðrinu sem var úti, en svo átti ég ágætan dag svo það bætir það upp. Gott hjá þér að rísa upp og mótmæla því að fólk ætli að stjórnast alfarið í þínu lífi...you go girl!

Knús & og knús
25. janúar 2008 klukkan 19:04
Kolla og Siggi skrifar ...
 
Sæl Linda.
Verð að viðurkenna að ég kvitta nú ekki alltaf, en finnst ég þurfa aðeins að kíkja á ykkur þegar ég er að browsa á netinu.
Langaði töluvert uppí rúm í morgun, en skólarnir komu ekki með neina tilkynningu fyrr en svo seint að ég var komin út á fulla ferð á Súbbanum mínum.
Keyrði í blindbil í leikskólann með kökur í farteskinu þar sem foreldrafél. ákvað að hafa kökubasar en ég held að veðrið hafi ekki alveg verið með í ráðum.
En inn fóru kökurnar með "smá" laskaðan marengs..... en seldust allavega.
Nóg um brjálaðar konur á Súbarú.
Bestu kveðjur til ykkar
Kolla
25. janúar 2008 klukkan 20:52
Edda skrifar ...
 
hvaða hvaða ??? hvaða brjáluðu kolrugluðu manneskjur eru að angra þig ??? ein ekki með á nótunum.... !!!!!!!!
Takk fyrir morgunkaffið, það var alveg yndislegt ...
Góða helgi
25. janúar 2008 klukkan 21:36
Dísa í SønderborgÞú ert nú ekki vön að láta vaða yfir þig á skítugum skónum Linda mín og ert ekkert að fara að byrja á þig núna heyrist mér.

Takk annars fyrir spjallið um daginn....gott að heyra í þér eins og alltaf. Ekki spurning um að þú finnur út úr þessu öllu með vinnuna og svona...þú finnur bara hvenær þetta hentar þér best..enginn veit það betur.

Knús knús í bili
Dísa
26. janúar 2008 klukkan 09:25
Júlla skrifar ...
 
Takk fyrir mjög skemmtilegt kvöld í gær. Hefði svo getað setið lengur að kjafta, en var samt rosalega fegin að við fórum þegar við fórum. Ekkert auðvelt að vakna í morgun:-(.
En hlakka til næst, vonandi verður það sem fyrst, held að Helga hafi tekið það að sér að plana næsta hitting;-)
Hafðu það gott, betra, best. Njóttu þess að leggjast aftur uppí rúm á morgnana, það er bara best í heimi.
Kveðja af skaganum
26. janúar 2008 klukkan 19:56
Olga skrifar ...
 
Ég skreið sko líka aftur upp í rúm í óveðrinu, reyndar eftir að vera búin að hringja á 5 staði til að afboða mig og stelpurnar. Gasalega næs dagur verð að segja það. Verð nú samt að segja að ég hef ekki gott af mörgum svona í röð það fer allt í rugl svefn og mataræði, sveiattan. En ég þykist vita eins og flestir hér að þú látir nú ekki vel að stjórn (frekar en sá ofvirki) áhugavert að nokkur skuli þó reyna ......
26. janúar 2008 klukkan 21:59
Guðrún Þorleifs skrifar ...
 
Daginn skvis :)
ja hérna og hér, var gerð tilraun til a ðreyna að stjórna þér. Virkailega athyglisvert að láta sér detta í hug að reyna að. Þú hefur nú líkast til náð að úrra smá?
vildi alveg hafa smá vetrarveður þegar ég les um verið á íslandi en verið hér er líka ok svo engin ástæða að kvarta yfir því.
Hér var hörku þorrablót í gær. Við Billi mættum sterk til leiks, ó já ;) Bara gaman...
Hafðu það gott mín kæra.
27. janúar 2008 klukkan 15:19
Alice skrifar ...
 
Kæreste Linda!
Godt, at du siger fra!
Vi har hodt fødselsdag for Johann 9 år og dimissionsfest (indrømmer modstræbende, at jeg måtte slå dette ord op for at være sikker på stavningen!!) for Winnie. Winnie er nu afspændingspædagog/psykomotorikker/BA. Det foregik fredag. I går havde vi så igen fødselsdagsfest for Johann - denne gang for drengene fra klassen. Det blev rigtig godt, ingen slåskampe eller skænderier, bare glade om end noget larmende drenge. Ellers alt vel herfra.
Kuns fra
Alice
27. janúar 2008 klukkan 20:27

Skrifa athugasemd

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Klukkan

Leit

Innskráningar kubbur

Flokkar