Prófíll

  • Nafn: Frú Megabeib
  • Staður: On the Kleik

Auglýsing

Prófíll

  • Nafn: Frú Megabeib
  • Staður: On the Kleik

Prófíll

  • Nafn: Frú Megabeib
  • Staður: On the Kleik

Ég

Morgunstund gefur gull í mund????

31. janúar 2008 klukkan 10:23

Ekki veit ég hver það var sem fann upp þetta fína máltæki, en það hefur sko pottþétt verið AAAAAA manneskja!!!!  Ekki svona BBBBBB manneskja eins og ég.......... eða Þ,Æ eða Ö manneskja!!!!  Ég veit ekki hvaða mund þetta er sem verið er að gefa gull í ......... en held ég geti bara alveg verið án þess ef ég á að vera alveg hreinskilin!!!!

Í einhverju bjartsýniskasti um daginn, þegar mér datt allt í einu í hug að fara að leita mér að vinnu, komst ég að því að það væri bara alveg FRÁBÆR hugmynd að skella sér í viðtal hjá Hagvangi klukkan 9 í morgun!!!  Jú jú ég sagði það......... í bjartsýniskasti!!!!

Sem þýddi að ég þurfti að fara á fætur og klæða mig og fara út í íííííííííískaldann bílinn minn og keyra í morgunumferðinni, í snjónum, í frostinu og allt!!!!

En komst lífs af.

Og komst heim aftur með viðkomu í bakaríinu........... þannig að nú er vatnið að sjóða í teið mitt og rúnstykkin standa klár á borðinu...... best að reka mömmu framúr rúminu........... og svo er bara að hella sér í verkefni dagsins!!!

Ætla að byrja á því að skrifa "things to do" lista!!!!

Snakkes ved;

ég

Frú Megabeib
Guðrún Þorleifs skrifar ...
 
Verði ykkur rúnstykkin og teið að góðu!!!
Alger hetja að fara í viðtal svona snemma morgunns um hávetur, ég verð nú bara að segja það!!!
Knús frá Dk
31. janúar 2008 klukkan 10:41
Elsa Dögg skrifar ...
 
Harkan í þér að nota kaldasta dag ársins til þess að fara út eldsnemma. Ég vona að þér gangi vel í atvinnuleit. ég er viss um að það er fullt af fyrirtækjum sem þurfa þig í vinnu. Kær kveðja, Elsa Dögg.

p.s. mund =hönd
31. janúar 2008 klukkan 12:08
Anna snyrtipinni skrifar ...
 
Þú ert duglegust, engin spurning. Þú fórst út á undan mér, og fannst mér það nú nógu snemmt að fara af stað kl. 10 En stundum þarf meaðu að takast a við svona bjartsýnisköst og þá þýðir lítið annað en að B R O S A.
knús í krús
Anna panna
31. janúar 2008 klukkan 17:06
stina skrifar ...
Knúsý knúsý knúsý.
Góða helgi :o)
Stína
01. febrúar 2008 klukkan 06:32

Skrifa athugasemd

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Klukkan

Leit

Innskráningar kubbur

Flokkar