Prófíll

  • Nafn: Frú Megabeib
  • Staður: On the Kleik

Auglýsing

Prófíll

  • Nafn: Frú Megabeib
  • Staður: On the Kleik

Prófíll

  • Nafn: Frú Megabeib
  • Staður: On the Kleik

Ég

Den store Bolle dag

04. febrúar 2008 klukkan 12:15
Í dag er bolludagur!!!  Það vita náttúrlega flestir....... ef ekki allir!!!! 
Í gær fengum við góða gesti og voru bollur á boðstólnum (keyptar í Bónus og gestirnir komu sjálfir með þær!!!!).
Fannst börnunum mínum alveg hrikalega fyndið að það skuli vera heill dagur sem héti "bolledag"!!!!  Að sjálfsögðu á dönsku!!!  Alveg heill dagur þar sem maður ætti ekki að gera neitt annað en "bollle"!!!  Var þetta rætt fram og til baka og þeim fanst þetta alveg ferlega fyndið, en áttu frekar erfitt með að útskýra þetta fyrir gestunum sem eru alíslenskir Íslendingar!!!!

Ásinn minn barst eitthvað í tal þarna við borðið í gær og spurði þá eitta af gestabörnunum, sem er í yngri kantinum, hvar Ási væri eiginlega!!!  Einkadóttirin var ekki lengi að svara henni........... hann væri í kistunni ofan í jörðinni!!!!  Ferlega skrítið að heyra hana segja bara svona frá þessu.......... bara eins og hann væri í Kína!!!!!  Ótrúleg þessi börn.

Ég svaf lítið í nótt og hjartsláttartruflanirnar eru búnar að gera vart við sig aftur!!!!  Ég skil ekki þessa manneskju!!!  Hún fór framá svar frá mér, eftir margar andvökunætur og miklar pælingar þá sendi ég henni svar.  Alveg um hæl fæ ég svar frá henni......... mitt svar er ekki nógu gott, þannig að hennar tilboð gildir!!!!  Og það til klukkan 19:00 í kvöld!!!!............ annars.......... 
Skil þetta ekki........... til hvers er hún að biðja um að ég gefi svar, þegar það er tilgangslaust fyrir mig????  Hún hlustar ekki á mig, frekar en fyrri daginn og allt sem ég hef að segja hefur ekkert vægi, frekar en undanfarið ár!!!
Mikið ferlega gat ég verið blind!!!!  Líka minn stóri galli að ég trúi alltaf því besta um fólk.

Fyrirgefðu að ég var ekki klár með lesturinn með morgunkaffinu......... svaf bara!!!!!  Get sko alveg farið uppí rúm og haldið áfram að sofa........... sé ekki að það verði klárað mikið af listanum í dag!!!!

Þangað til næst;

ég
Frú Megabeib
Alice skrifar ...
 
Kæreste Linda!
Ja, altså "bolledag" har vi nu egentlig ikke i DK, men spø´r du Joan Ørting burde vi sikkert få det indført!! Men ellers har det vel noget med fastelavn at gøre, ja altså så vidt jeg husker? Og så er der vel også en anden betyning af ordet "bolle" ? Jeg mener, det afhænger vel af om der sættes en foran og ordret dermed bliver et navneord, eller om man nu vælger at sætte at foran og ordret så helt ændrer karakter og bliver til et udsangsord? Nå nok om det danske sprog.
Håber, at børnene har nydt "bolledagen". Her har Johann i hvert fald nydt dagen med at slå katten af tønden både i skolen og fritten og der manglede vist ikke de traditionelle fastelavnsboller.
Fastelavnsknus fra Alice.
04. febrúar 2008 klukkan 17:07
Anna snyrtipinni skrifar ...
 
Bolla, bolla, bolla !!!!!
Búin að borða á mig gat og gleymdi að taka fram bolluvöndinn sem Emilio gerði í skólanum. Svo að afturendinn er ekki marinn og blár.
Knús og kiss.
bollustelpan í Mosó.
04. febrúar 2008 klukkan 17:45
dagny sævars skrifar ...
 
hehe man lika thegar vid snérum þessu orði fram og til baka... og okkur finnst þetta ennþá fyndið... kúkahumor ;)
hér hefur verið "raslað" í 2 daga og byrgðirnar maður minn... bæði af sælgæti, gosi og peningum... ég ætla út á morgun og biðja bara um peninga...
Finnst ég vera ofvaxið barn... vona að ég fái fullt af peningum.
kær kveðja
Dagny
04. febrúar 2008 klukkan 20:27
Þessi sem getur ekki þagað skrifar ...
 
Segðu henni að hringja í mig og ég skal tala við hana eins og ég einn kann, kannski fattar hún þá hvað er um að vera.
05. febrúar 2008 klukkan 08:52
Begga Bauni skrifar ...
Ummm... hefði nú alveg verið til í eina til tvær alvöru vatnsdeigsbollur, eeeen að ég hafi gefið mér tíma til að baka þær, ó nei, ekki þetta árið.
En það er nú meira hvað er verið að pirra þig um þessar mundir, vona að þeim kafla fari nú að ljúka hjá þér og þú getir farið að einbeita þér að öllu hinu.
Knús þig og þína, Begga
05. febrúar 2008 klukkan 09:32
Guðrún Þorleifs skrifar ...
 
Þér er fyrirgefið af hjartanseinlægni :) Þurfum að spjalla saman aftur, ég er alltaf með einhverjar hugmyndir . . . Þessi er samt annars eðlis en sú síðasta ;)
05. febrúar 2008 klukkan 12:55
Eva Björk skrifar ...
 
Bolluknús
05. febrúar 2008 klukkan 18:33

Skrifa athugasemd

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Klukkan

Leit

Innskráningar kubbur

Flokkar