Endalaus bjartsýnisköst!!!!
05. febrúar 2008 klukkan 23:49
Jú jú......... í enn einu bjartsýniskastinu þá bókaði ég mann til að koma og tengja "telsí" boxið í morgun klukkan 10:00!!!!
Sem betur fer gat ég tvíbókað tímann........... og notað hann út í ystu æsar (skrítið máltæki!!! hvað eru æsar???) því hún vinkona mín og sonur hennar renndu við hjá mér í morgunkaffi........ svo það var ljúft að vakna og sitja með þeim og borða morgunmat og spjalla.......... alger forréttindi........... veit sko að ég á eftir að sakna þess alveg svakalega þegar ég verð farin að vinna!!!!
Ennþá enginn búinn að láta heyra í sér í öllum þessum tveimur vinnum sem ég er búin að sækja um!!!!
Og ástæðan fyrir því að ég verð að vakna í fyrramálið og fara á fætur er að þessi stórkostlega bjartsýniskona sem ég endalaust virðist vera, ákvað að fara til tannlæknis!!!!! Má ég bara spyrja........HVERNIG DATT MÉR ÞETTA Í HUG?????? Hef nú reyndar ritarann hjá tannsa grunaða um að hafa laumað þessu inn hjá mér þar sem hún hringdi núna um daginn frekar pirruð yfir því að ég var ekki mætt í tímann sem ég átti að vera í...... ég var steinsofandi uppi í rúmi!!!! Ekki mér að kenna....... hún hafði lofað að senda mér sms og gerði það ekki!!!! Henni að kenna......... en það breytir því ekki að þann tíma hafði ég líka bókað í þáverandi bjartsýniskasti klukkan 10 um morgun!!!! Hverjum dettur í hug að fara til tannlæknis klukkan 10 að morgni????? En ritaranum hefur auðsjáanlega ekki litist á þessa tímasetningu því hún gaf mér nýjann tíma og er hann klukkan 11........ sem er auðvitað örlítið kristilegri tími.......... en ó mæ god!!!! Það er öskudagur á morgun og börnin mín eru heima og sofa út!!!! Skil ekkert í hvernig hvarflaði að mér að samþykkja þessi ósköp........ en ástæðan gæti verið sú að ég hafi veri frekar mikið sofandi þegar þetta var ákveðið !!!! En ritarinn mundi eftir að senda mér sms í dag......... þannig að ég mæti á morgun........ ekki hress og kát......... því mér leiðast tannlæknar!!!!
Þangað til næst;
ég

Frú Megabeib

Kv. Begga
Var hos en tandprofessor, jo, jo de findes åbenbart også, forleden dag. Lidt sær, men fin fyr, yngre end jeg havde forventet. Men det er måske bare en fordom hos mig at, professorer er gamle, sære og måske oven i købet gråskægede.........................?
Nå, men håber, at dit tandlægebesøg ikke har været alt for skræmmende.
Knus fra Alice
Og svo brosa !!!!!!!!!
kær kveðja frá
tannlæknahræðslupúkanum
hejsan