Prófíll

  • Nafn: Frú Megabeib
  • Stađur: On the Kleik

Auglýsing

Prófíll

  • Nafn: Frú Megabeib
  • Stađur: On the Kleik

Prófíll

  • Nafn: Frú Megabeib
  • Stađur: On the Kleik

Ég

Flottur dagur í dag!!!

03. mars 2008 klukkan 11:41
Svakalega er veðrið flott í dag.......  glampandi sól og snjór.......... ekta skíðaveður!!!!

Um daginn var ég spurð að því hvernig maðurinn minn hefði dáið.  Mig langaði mest af öllu að svara: "Hann varð fyrir krabbameini og dó!"  Því mér líður NÁKVÆMLEGA svoleiðis....... að hann hafi orðið fyrir slysi........... voðaskoti úr byssu sem var full af krabbameini.............. svona haglabyssu sem höglin dreifast um allt............ en í hans tilfelli bara ógeðslega, viðbjóðslega, viðbjóðslegur sjúkdómur sem var dreifður um allt!!!!!  UM ALLT!!!!  Róar mig einhvernveginn þegar ég get séð þetta svona fyrir mér........ ég veit, ég er skrýtin......... en finnst þetta samt mun rökréttara að hann hafi orðið fyrir voðaskoti, en að maðurinn minn hafi dáið úr einhverjum ósýnilegum sjúkdómi!!!! 

Eini ókosturinn við góða veðrið sem er úti núna......... er að maður sér allt rykið út um allt!!!!!!!!!!!!

Er farin að þurrka af.

Góðar stundir;

ég
Frú Megabeib
Guđrún Ţorleifs skrifar ...
 
Skil vel þessa myndrænu skynjun þína af því sem gerðist. Ertu ekki visual typa?

Fórstu í alvöru að þurka af? ? ?
03. mars 2008 klukkan 13:14
Ţóra beibí skrifar ...
Ég skil þig vel kona...
En ég spyr eins og Guðrún fórstu í allörunni að þurkka af... ?
Allavegana hefði ég ekki nennt því..
Hilsen Þóran
03. mars 2008 klukkan 17:10
Elísa Henný skrifar ...
 
Þegar það ég sé ryk heima hjá mér, loka ég augunum og horfi í hina áttina þar sem sólin skýn ekki.
Dugnaður í þér að þurrka af....
03. mars 2008 klukkan 20:12
dagny sćvars skrifar ...
 
krabbameininu er vel lýst hjá þér... dreift=haglabyssuskot og lokaliseret=riffilskot t.d.
allavega ömurlegt í alla staði!

en gott hjá þér að þurrka af... ég hefði gert það sama... til að fyrirbyggja alltof skítugt heimili ;)
kær kveðja úr sólinni hér í Sdbg
04. mars 2008 klukkan 08:54
Begga Bauni skrifar ...
Úff... myndrænt er þessi skýring þín einmitt góð, skil vel að það sé betra/skiljanlegra að horfa á þetta svona.
En þetta með sólina og rykið, sólin er alltaf jafn yndisleg, heit, björt og notaleg og svo minnir hún mann á það að þarf að þurrka af reglulega, ef maður skyldi nú gleyma því ;o)
Kv. Begga
04. mars 2008 klukkan 20:10
Gígja skrifar ...
 
Hæhæ
Bara að kvitta fyrir komuna.
Knús og kram
Gígja
04. mars 2008 klukkan 20:35
Hrund skrifar ...
 
Já rykið mitt sást vel í dag í fallegri vorsól sem kom á undan haglinu sem nelgdi á hreina tauið mitt.... svo ég þurrkaði nú reyndar af og pússaði verstu gluggana.

Ég fór með dóttur mína í leikskólann um daginn eins og aðra daga, en þennan morguninn var þar einn pabbinn að koma með dóttur sína og eftir að hafa hlustað á okkur mæðgur tala, spyr hvort við séum frá Íslandi, næsta spurning hans var hvort ég hefði þekkt Ása. Sagðist hann hafa æft með honum. Hann var sorgmæddur á svip.
kv. Hrund
05. mars 2008 klukkan 01:30
Nanna skrifar ...
 
kvitta

frá henni sem kvittar aldrei

p.s. súper góð pizzan um daginn, ætla að læra að baka pizzu:-)
05. mars 2008 klukkan 10:47
Anna fimma skrifar ...
 
Hvernig á maður að geta skilið það sem okkur er hulið, myndræn útlisting þín segir allt sem þarf.
Ryk !!!!!! ég er svo heppin að ég sé ekki rykið fyrir hundahárunum á gólfinu. Svo að ég ætla ekki að stressa mig á afþurrkun !!!!!! Vil frekar sitja við tölvuna og kvitta hjá þér.
Knús frá
mér til þín og barnanna þinna :)
05. mars 2008 klukkan 11:17

Skrifa athugasemd

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Ţennan mánuđ: ...
  • Frá upphafi: ...

Klukkan

Leit

Innskráningar kubbur

Flokkar