Ég get.......
17. mars 2008 klukkan 12:34
.............ALLT!!!!!
Fékk þessa tilfinningu á föstudaginn. Við fórum á páskabingóið hjá Oddfellow og eins og það var erfitt síðast þá var það mun auðveldara núna. En það var jafn gaman og börnin jafnánægð. Alveg dásamlegt.......... kveið nefnilega alveg ferlega fyrir að fara........ eftir síðustu reynslu.......... en þetta tókst og svona líka rúmlega það.......... og ég fékk nákvæmlega þessa tilfinningu ...... jess ég get ALLT!!!! Fyrst ég gat þetta!!!!
Þarf að hringja á Dalvík. Tala við einhvern hjá stjórnsýslunni því mig vantar að vita hvort það eru frjálsar íþróttir eða unglingavinna eða hvað er um að vera fyrir börnin mín í sumar....... annað en að leika sér í fjallinu og fjörunni......... það var einhver að hræða mig með því að Dalvísk börn væru víst ekki mikið öðruvísi en Reykvísk börn...... þau væru bara meira og minna inni í playstation og öðru sjónvarpsglápi!!!! Það kemur þá bara í ljós....... ekki satt????
Nú er komið páskafrí og framundan er ein ferming, ein að baki og svo páskaeggjaát!!!! Börnin mín vildu alveg endilega kaupa páskaegg handa pabba sínum......... fannst mér það bara dáldið mikið sætt.......... og við keyptum eitt nr. 2 handa honum........ ætlum við svo að borða þau öll saman fyrir hann!!! Bara ferlega eðlilegt........ eða hvað??? Mér finnst allavega ekki neinn skaði skeður þó við kaupum handa honum páskaegg og við borðum það...... nema kannski að ég hef örugglega ekki gott af því!!! Nú bíða okkar 6 páskaegg......... 2 handa hvoru barni, eitt sem þau völdu sér og annað sem þau unnu í Bingóinu......... 1 handa mér og 1 handa Ása!!!!
Ju já steingleymdi að segja ykkur það............ haldið þið ekki bara að greinin mín hafi birst í blaðinu á föstudaginn!!!! Er að hugsa um að skrifa fleiri greinar!!!! Svo svakalega margt sem ég hef að segja....... eða þannig!!!!
Munið að njóta lífsins...........
ég

Frú Megabeib

Nei Linda mín, í dag leika sveitabørn ser ekki med leggi og hauskúpur af kindum... heldur eru thau runnin saman i eitt vid borgarbørnin i playstationverøldina...!
til hamingju med greinarbirtinguna...well done!
og veistu, best er ad vera med járnstøng i farteskinu... thu veist aldrei hvenær thu færd not fyrir járnstøng (Terkel i knibe) og kannski er thad eina rádid a thessa i sidustu færslu!!!
kær kvedja ur solinni en kuldanum i sønderborg... (sem er fallegust i heimi i dag, séd frá sjukrahusinu)
Knús
Dísa
Kær kveðja úr kuldanum ( hvernig hljómar þetta?)
Njótið þess nú að borða öll páskaeggin, við erum komin með nokkur íslensk í hús, svo að við erum í góðum málum (getum kannski bara sleppt páskabingóinu í ár)
Páskaknús, Begga
ÉG VISSI ÞAÐ SKO ALVEG ÞETTA MEÐ GREININA OG BLÖÐIN
UM HVAÐ Á AÐ SKRIFA NÆST ????????????????????????'''
GOD EKKI ÞÓ UM ÞESSA TÆLENSKU OG MJÓLKURBÚIÐ :-)
HE HEEEEEEEE
KVEÐJA PÚKINN ÉG
SKO............
AUÐVITAÐ geturðu allt !!!
Til lukku með birtinguna, nú er bara að halda áfram að pennast í blöðin !!
Fjaran og fjöllin heilla nú örugglega meir en eitthvað tölvuræskni.
KNÚS til ykkar allra,
Magga
Håber I får en god påske og hygger jer med påskeæggene!
Knus fra Alice.
Smá kveðja héðan af skaganum. Liggjum hérna eins og skötur í sitthvorum sófanu, búnar með nokkur rúnstykki og næstum tvær dollur af salati og slatta af cola. Vildum bara þakka þér fyrir dúndur skemmtilega veislu á sunnudag, Elma og Gilsi klikka ekki frekar en fyrri daginn. Hlökkum til næst, sem verður vonandi sem fyrst.
Hilsen pilsen
Júlls og Þóra baby
Gott framtak hjá ykkur að fara í bingóið hjá Oddfellow :-) Ég hef alltaf sagt "ÞÚ GETUR ALLT !! "
Varðandi Dallas, þá get ég frætt þig á því að það er boðið upp á æfingar fyrir krakka t.d. í fótbolta, sundi, frjálsum
og fl. yfir sumartíman.
Páskaeggið hanns Ása á örugglega eftir að bragðast vel.
Og greinin þín í mogganum var bara snilld.
Byðjum að heilsa héðan að norðan.
kv. Össi.
Mér finnst þetta frábær hugmynd hjá börnunum þínum með páskeggið . Verði ykkur bara að góðu og gleðilega páska.
Páskakveðja frá Sønderborg,
Hafdís
ó já, þú getur ALLT!
Flott með greinina! :) Hefurðu fengið einhver komment með það?
GIRLPOWER
Hafið það gott öll sömul, og gleðilega páska.
knús allan hringinn,
Ponsla
Flott hjá þé að mæta í Bingóið og gott að heyra að það gekk betur en síðast. Það þarf nú bein í nefið til að berjast áfram í stað þess að leggjast undir feld og láta bara tímann líða.
Stórt páskaknús og munið mjólkina með eggjunum svo þið fáið síður illt í magann ;)
Knús Stína
Ég má til að senda þér kveðju og þakka þér fyrir góða grein í Mogganum. Mér fannst ég kannast eitthvað við nafnið og jú það varst þú :-) Gott hjá þér að vekja máls á þessu ekki veitir af og vonandi hefur þú fengið einhver viðbrögð við henni. Það er ansi mikið af slíku rusli sem fellur til hjá manni og ég held að arkitektar þyrftu að huga að þessu atriði við hönnum húsa og innréttinga.
Annars bara gleðilega páska og hafið það sem best.
Kveðja, Svanhildur (vinkona Eddu frænku þinnar).
UBBBBSSSSSSS
ÉG MEINA GLEÐILEGA PÁSKA
LOVJA :Þ)
Knús Stína
Óskin þín
HÚN Á AFMÆLI Í DAG
HÚNNNNNNNNNNNNNN Á AFMÆLI HÚN LINDAAAAAAAAA
HÚN Á AFMÆLI Í DAG
HIBBBBBBBBB HIBBBBBBBBB
HÚRRRRRRRRRRRRRRRRRRA
RISA AFMÆLISSSSSSSSSSSSSSSSSS
KNÚSSSSSSS FRÁ OKKUR ÖLLUM
GUGGA LEIKNIR YRSA BJÖRT YLVA MIST
P.S. SJÁUMST Á EFTIR
Knús til þín frá mér :)
Björg og co.
Hjartanlega til hamingju með daginn í dag. Tek undir sönginn með Gólínu, hátt og snallt.
knús og kossar frá okkur í Mosó.
KV. frá næsta húsi..nr. 54
kv. af Skganum.