Prófíll

  • Nafn: Frú Megabeib
  • Staður: On the Kleik

Auglýsing

Prófíll

  • Nafn: Frú Megabeib
  • Staður: On the Kleik

Prófíll

  • Nafn: Frú Megabeib
  • Staður: On the Kleik

Ég

Flensa dauðans!!!!!!!

30. mars 2008 klukkan 18:09
Fór til læknis á miðvikudaginn....fannst þetta orðið ágætt og frekar erfitt að anda.... dómur; "flensa...... verður orðin góð um eða uppúr helgi!!!!"

Jeh wright!!!!

Hef ekki orðið svona veik í 100 ár að minnsta kosti!!!

Með hita, beinverki, ógleði og eins og bróðir minn orðaði það svo skemmtilega: með bæði Gullfoss og Geysi!!!! Andþrengsli og hrikalegann hósta!!! Eyrnaverk og tannpínu. Vantaði bara hálsbólguna, þá held ég að ég hefði getað verið með allar 15 pestirnar sem eru að ganga í einu!!!

Þegar ég var orðin svo mikið þreytt á því að geta ekki andað (þorði ekki að taka svefntöflu til að geta sofið smá, af því að þá gæti verið að ég myndi gleyma að anda!!!!).......... fór ég aftur til læknis á föstudaginn........ dómur; "lyfseðill uppá pensilín og púst!!!!......... og verður vonandi orðin góð eftir helgi.........annars VERÐUR þú að tala við lækni!!!"

Vildi svo að fyrri læknirinn hefði bara verið svo elskulegur að gefa mér pensilín og púst strax!!!!!

Er eiginlega orðin hitalaus......... en er ennþá með frekar mikið "tynd mave" og er það ekki útaf páskaeggjaáti!!!!!

Var annars að tala um það við góða vinkonu mína um daginn að mig langaði að skella mér til Póllands með henni Jóninu Ben í svona úthreinsun....... langaði svo til að prófa svona hreinsun á ristlinum og svona algert detox!!!!  Nú er ég búin að prófa það....... án Jónínu Ben og Póllands.......hef ekki svitnað svona í mörg ár svo ekki er mikið eftir af óhreinindum í húðinni og er ég orðin gjörsamlega "hrein" innvortis........ alveg detoxuð!!!!!.............. eins og einhversstaðar segir: careful what you whish for!!!!!

ég
Frú Megabeib
Begga Bauni skrifar ...
Mikið er nú gott að þú sért að ná þér af þessu flesnuveseni. Og já, maður þarf greinilega að gæta að sé þegar maður setur fram yfirlýsingar um eitthvað sem mann langar til híhíhí... Vona bara að þú verðir fljót að ná þessu alveg úr þér með hjálp þessara lyfja.
Knús í kot, Begga
31. mars 2008 klukkan 10:26
Júlla skrifar ...
 
Halló halló "nýhreinsaða" vinkona.

Þín var sárt saknað á laugardaginn hjá Sollu, en við lifðum kvöldið af án þín, ótrúlegt en satt, en sumar betur en aðrar, svo ég segi ekki meir. En alla vega þá
hlakka mér mikið til næsta hittings, sem við gleymdum að ákveða hvar ætti að vera:-( en við hljótum að finna út úr því, við erum nú svo ráðagóðar.
En gott að þér líður betur, verst að þú skyldir ekki vera búin að fá pensilinið fyrr svo þú hefðir geta hitt okkur. Þessi læknir hefur greinilega ekki vitað hvað við erum
skemmtilegar ;-)

Kveðja af skaganum.
31. mars 2008 klukkan 10:44
Anna fimma skrifar ...
 
Bara rétt að kíkja á þig áður en ég fer að busla í leikfiminni. Tala betur við þig fljótlega.
Bata kveðjur
Ponsla
31. mars 2008 klukkan 18:31
Alice skrifar ...
 
Kære Linda!
God bedring!
Knus fra Alice
31. mars 2008 klukkan 18:50
Guðrún Þorleifs skrifar ...
 
Góðan bata. Gengur ekki að vera flensuð.
31. mars 2008 klukkan 19:19
Edda á Íslandi skrifar ...
 
Góðan bata... þú verður bara eins og ný eftir allt þetta detox... heheheheh....hoj og slank með hreina barnahúð...
kveðja
31. mars 2008 klukkan 21:23
ALT CTRL DELETE skrifar ...
 
HURÐU MIG
HVAÐ HELDURU
MÍN EKKI BARA BÚIN AÐ GERA EINS OG HANN PABBI ÞINN
EN ÉG FÓR EKKI Á LÆKNAVAGTINA OG SAGÐI ÖLLUM
Á BIÐSTOFUNI FRÁ ÞVÍ HE HEEEEEEEEEEEEEEEE

LOV JA
LÖ KONTRÓLFRÍK
01. apríl 2008 klukkan 01:02
Elísa Henný skrifar ...
 
Hey hey góðan bata....
01. apríl 2008 klukkan 22:39
Ósk Laufey skrifar ...
 
Hæ hon,,,,takk fyrir í gærkvöldi. Alltaf gaman að hittast í góðra vina hóp.......var annars að reyna að hringja í þig,,,,,ertu kannski ennþá sofandi. HMMMMMMM

Well prófa þá eftir hádegi.

kv. Ósk
03. apríl 2008 klukkan 10:17
Anna fimma skrifar ...
 
Hæ sæta :)
takk fyrir gærkvöldið og kvittið. Alveg frábært að hitta þig og ykkur eins og alltaf. Alltaf svo gott að hlægja, ég veit nú ekki hvort myndbandið okkar í gærkv. eða KenLee sé nú fyndnara. Alla vega alltaf gott að hlæja.
Hlátursroku kveðjur
Anna panna
03. apríl 2008 klukkan 14:50
Hafdís skrifar ...
 
Hahahah góð færsla.
Kveðja Hafdís
03. apríl 2008 klukkan 20:58
Alice skrifar ...
 
Kære Linda!
Håber du atter er blevet frisk!
Knus fra Alice
04. apríl 2008 klukkan 17:54
Stina skrifar ...
Vona að þú sért "skriðin saman", veit ekki hvort ég á að þora í heimsókn til Íslands - eftir því sem ég heyri þá herjar "flensa dauðans" á marga þarna á klakanum.
Góða helgi - og hlakka til að sjá þig næstu helgi.
Knús Stína
04. apríl 2008 klukkan 20:21
Anna Aðalpæja skrifar ...
Anna AðalpæjaHæ krúsídúllan mín og krúsídúllu börn :)

Hugsa mikið til ykkar í gær sem og alla daga. Vona að halelúja túrinn hafi verið vel heppnaður. Heyrumst fljótlega.
Knús og kossar
Ponslan
06. apríl 2008 klukkan 12:15
Elísa Henný skrifar ...
 
Ertu orðin betri? Maður er farin að sakan þess að geta ekki lesið neitt frá þér.
07. apríl 2008 klukkan 08:26

Skrifa athugasemd

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Klukkan

Leit

Innskráningar kubbur

Flokkar