Nóg að gera!!!
Haldiði ekki að ég hafi fengið símtal!!!! Í sjálfu sér ekkert merkilegt........... fæ oft símtöl.......... en þetta var samt dáldið skemmtilegt símtal!!!!
Það var hringt í mig frá Gámaþjónustunni!!!! Jú jú, þeir lásu greinina mína í blaðinu og vildu alveg endilega að ég fengi að prófa endurvinnslutunnuna þeirra!!!! Að sjálfsögðu sagði ég bara JÁ TAKK!!! Svo nú bíð ég bara spennt eftir að tunnan komi svo ég geti farið að flokka sorpið mitt!!!! Bara sniðugt!!!!
Fór á alveg dásamlega bæna og samtalshelgi í Vatnaskógi um helgina........ hjá Kirkjunni minni........... var ég gjörsamlega andlega búin eftir öll þessi samtöl............ ekki það að mér þyki ekki gaman að tala........... jú jú eins og þið sem þekkið mig vitið að mér leiðist það nú ekki!!!!! En þetta var ekkert smá............ fyrst með öllum hópnum svo með herbergisfélaganum.......... vorum við eins og börnin og kjöftuðum langt fram eftir nóttu og mættum svo í morgunmat hálfsofandi........... man ég ekki eftir að hafa verið svona þreytt í mörg herrans ár!!!!! Man nánast ekki eftir að hafa keyrt frá Hvalfjarðargöngunum og heim!!!! Var rétt við það að sofna!!!!! En þetta var alveg rosalega gott fyrir sálina..... mæli með þessu!!!!
Nú er bara að hysja upp um sig sokkana......... er alveg að verða búin að jafna mig eftir flensuna........... fullt af verkefnum sem bíða.......... ætla að reyna að gera sem allra mest á morgun.......... um leið og ég er búin í morgunkaffinu!!!!!
Spennandi tímar framundan............ vantar tíma í sólarhringinn til að geta klárað öll verkefnin!!!! En verð bara að skipuleggja mig og þá gengur þetta allt saman upp..... veit það!!!!
Over and out
ég

Gott að hafa nóg að gera, þá leiðist manni ekki á meðan :) og ég er þess fullviss að þú , með einbeittum viljastyrk þínum, búir bara til fleiri klst. í "ðe sunsörkul" !!!!!, svo að þú komist yfir allt það sem þú ætlar að gera.
Ummm ! ég er farin að hlakka til að fá nýbakað normalbrauð og þangað til ætla ég að lesa Harrý Pott....er hálfnuð með loka bókina....... já sumir eru lengi að lesa.
Kærar kveðjur úr Mosó.
Ponsla.
Flott flott.
Kveðja Elísa
Reikna fastlega með að þau orð er sögð voru um helgina muni líka hafa áhrif.
Kær kveðja frá einni í hádegispásu :)
og finnst líka frábært að lesa um helgina þína...
hafðu það gott.
kv. dagný
:)
Knús
Eva
Haltu áfram á þessari braut..
Getur maður komið með efni í grein...hehe
Kossar og knús frá efri byggðum:o)
Líka frábært að þú skyldir eiga velheppnaða helgi og þá er bara eftir að klára að ná endanlega úr þér flensunni og þá ertu í góðum málum.
Hvenær farið þið annars norður, er ekki bara farið að telja niður í þá brottför?
Knús yfir hafið, Begga
Godt at høre, at du er blevet frisk igen.
Det bliver interessant at høre om hvordan det kommer til at gå med affandssorteringen.
Knus fra Alice