Prófíll

  • Nafn: Frú Megabeib
  • Staður: On the Kleik

Auglýsing

Prófíll

  • Nafn: Frú Megabeib
  • Staður: On the Kleik

Prófíll

  • Nafn: Frú Megabeib
  • Staður: On the Kleik

Ég

Júhúúúúúú!!!!

15. apríl 2008 klukkan 18:13
Mikið ferlega var alveg hrikalega gaman á laugardaginn!!! Við vinkonurnar kláruðum eitt stk. Southern Comfort flösku (geri aðrir betur Júlla!!!), og vorum því komnar í góðan gír þegar við röltum inná heitasta staðinn á Íslandi í dag (eða það skilst mér) Apótekið!!!!  Þar sem ég lít ekki út fyrir að vera kona sem stendur í röð, þá vorum við að sjálfsögðu á gestalista..... og er það systir ammmmmmælisbarnsins að þakka!!!! Var hún jafnframt bílstjórinn, sem var einstaklega heppilegt, því eftir fjögurra tíma dans á glerbrotum, eins og Húdíní, á háhæluðum skóm (6,5 cm var að mæla þá!!!) sem frúin er ekki alveg vön því að vera á dags daglega, voru fæturnir orðnir frekar þreyttir. Og þar sem ég lít ekki út fyrir að vera kona sem geng um eins og gæs, eða búin að gera í buxurnar, þá þurftum við ekki að fara og ná okkur í leigubíl. Heldur gátum haldið virðingu okkar og gengið í rólegheitunum út í bílinn. Þegar þangað var komið þá var haldið niður á Umferðamiðstöð (bara alveg eins og í gamla daga!!!!), en sleppti reyndar sviðinu og fékk bara sveitta samloku (án grænmetis, því ég lít ekki út fyrir að vera kona sem borða svona heilsufæði um miðjar nætur!!!!!) og alvörunni KÓK (hinar voru í Kristal og Kók light!!!).

Alveg yndislega skemmtilegt og væri ég sko alveg til í að gera þetta aftur einhvern daginn........... fannst ég næstum komin á Zanzi....... þekkti engann nema þá sem ég var með......... og troðningurinn á dansgólfinu sá sami og á Zanzi......... reyndar var tónlistin mun verri,en ég lét mig hafa það...... það er ekki hægt að fara og tjútta án þess að dansa!!!! Þannig að annað hvort verð ég að ræða þessa tónlist við eigendur staðarins (sem er kannski ekki alveg að virka, því þetta virðist vera að slá í gegn) eða ég verð að finna einhvern annan stað þar sem spiluð er alvörunni danstónlist!!!!! Kannski í Tunglinu sem verið var að opna á föstudaginn........ og Kiddi bigfoot sér um það....... hann var nú einusinni á svipuðum aldri og bekkjarfélagarnir mínir.......... kannski hann spili tónlistina okkar!!!!! Ætla að tékka á því næst!!!!

Er að fara að henda mér uppí sófa.......... var að gæta dóttur vinkonu minnar........ hún er 8 mánaða, barnið, ekki vinkonana.......... og ó mæ god......... ég er sko komin úr æfingu!!!! Er bara búin að vera eftir daginn!!!!! Og samt voru þetta nú bara tæpir þrír tímar....... eða voru þeir bara tveir????

Svo á ég von á fimmum í morgunkaffi á morgun........... snemma.......... þannig að þá verður sko ekki skriðið uppí rúm aftur............. svo það er um að gera að fara að koma sér í rúmið............ ég veit að klukkan er nú bara rétt rúmlega sex en ég er bara svooooooooo þreytt!!!

Að vísu er dóttirin úti að leika sér............. einhversstaðar............ eða úti í Ásmundarsafni........... þannig að ég get í mesta lagi leyft mér að skríða í sófann og kúra þar............ er ekki Oprah eða eitthvað sem ég get sofið yfir????

Einkasonurinn er úti á landi í skólabúðum og hefur ekki heyrst í honum........... mátti hann ekki taka með sér síma........ vona ég að það verði svo gaman hjá honum að honum gefist ekki tækifæri til að hringja í mömmuna sína (það er tíkallasími á svæðinu)!!!!  Þetta er mun erfiðara fyrir mig en hann!!!!!

Vá, er ég með putta ræpu í dag eða hvað????

Er farin að sofa................... leggja mig.

Over and out.

ég
Frú Megabeib
ALT CTRL DELETE skrifar ...
 
Ó MÆ GOD KONA
TÓKSTU MIG Á ORÐINU OG SETTIST VIÐ TÖLVUNA
UM LEIÐ OG ÉG GEKK ÚT MEÐ LITLA BARNIÐ ??????????
TAKKKKK TAKKKKK ALVEG ROBBBBBOÐSLA FYRIR HJÁLPINA MEÐ
LITLA BARNIÐ :-)
HURÐU ANNARS........ERU BEKKJAR FÉLAGAR ÞÍNIR............SEM ERU Á
SVIPUÐUM ALDRI OG KIDDI STÓRI FÓTUR
EKKI Á SAMA ALDRI OG ÞÚ ?????????????????????????

WELL WELL LOVJA ENÍ VEI
KVEÐJA LÖ KONTRÓL FRÍK
15. apríl 2008 klukkan 18:30
Begga Bauni skrifar ...
ohhh.... mikið er nú gaman að heyra hvað þú/þið skemmtuð ykkur vel á djamminu. En af hverju slepptirðu sviðunum, skil þetta nú alveg með grænmetið, en sviðin hefðu nú örugglega runnið ljúflega niður.
En alla vega gott að þú skemmtir þér vel.
Kv. Begga
15. apríl 2008 klukkan 19:57
Alice skrifar ...
 
Kære Linda!
Her fra konfliktramte DK en lille hilsen. Er på vej til Weisenhaüser Strand - badeland.
Lyder som en rigtig sjov tøsefødselsdag.
Knus fra Alice.
16. apríl 2008 klukkan 06:47
Beta skrifar ...
HAHAHA "hann var einu sinni á svipuðum aldri og bekkjarfélagarnir mínir" bara snild...þú ert frábær hehe
Frábært að það var svona skemmtilegt á djamminu......ohh Zanzi :o):o)
Efast ekki um það að það sé gaman hjá einkasyninum....
Kossa og knús úr efri byggðum
16. apríl 2008 klukkan 10:24
dagný sylvía skrifar ...
 
Hæ Linda
hehe ju eg vissi ad thad væru blom a islandi... en i minningunni eru thad bara sumarblom... hafdi bara tvisvar gard thegar eg bjo a islandi og their voru blomalausir ;)
takk fyrir falleg ord til okkar, vid forum i jardarførina... se ekki eftir thvi... kom meiri ro yfir barnid eftir thad.
Zansi... hef komid thangad... !!! hehe stundum er dj alveg ad gera sig... en stundum er ahnn ekki ad gera sig... stundum er hrikalega gaman og stundum er hrikalega leidinlegt... fer liklega eftir félagsskapnum..
annars held eg ad fyndnasta zansiferdin hafir verid thegar thad var live musik og eg dansadi russneska dansa vid russneska konu i 2 tima.
thad var tha sem eg lærdi russnesku. (pipiska=typpi)

svo er byfest a næsta leyti... engin damefrokostferd i ár... fórum sídasta ár... og thrátt fyrir ad Ása vantadi til ad byrgja okkur upp af snøfsum vorum vid samt skrautlegar... en kannski er stefnan a ballid í ár...
hver veit! i ár verdur ekki sama hlj´msveitin og øll hin árin...Top seven verdur ekki!!! hvad gerir madur tha?

Hafdu thad gott og láttu thig hlakka til næsta djams
16. apríl 2008 klukkan 12:35
Olga skrifar ...
 
Alltaf gaman að góðu djammi, alveg nauðsynlegt þó svo að stundum líði 173 ár á milli
16. apríl 2008 klukkan 14:12
Anna fimma skrifar ...
 
Hæ sæta,

Takk fyrir síðast......knús, knús ;-x
En ekki reyna að telja mér trú um að þú hafir fengið þér svið í denn !!! Ég man allt,,,,,,,,,, og ég man ekki eftir því.
(NB. Ingirós Filippusdóttir)

knús allan hringinn
Aðalpæjan í bænum....... (MosfellsBÆNUM, (sorrý Gólína !! ))
16. apríl 2008 klukkan 16:39
Júlla skrifar ...
 
Hey gella.
Drekkur þú Southern Comfort???? Það er eitthvað sem ég vissi ekki. Mikið er ég glöð að vita þetta, hlakka til að drekka með þér eitthvað sem er drekkandi hihi.
Er ekki alveg að meika þetta Grand dæmi og kaffi. En annars þá hlakka mig til næst, hvernær sem það verður, vonandi sem fyrst. Ekki væri verra að hafa eins og eina
Southern Comfort með í för múhaha. Mæti með gula bollann á svæðið.
Já og ég er alveg að fíla BUGL í botn, alveg eins og þú sagðir:-)

Hilsen pilsen Júlla.
16. apríl 2008 klukkan 22:23

Skrifa athugasemd

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Klukkan

Leit

Innskráningar kubbur

Flokkar