Kofinn góði
29. apríl 2008 klukkan 10:13
Er ekki ennþá búin að finna kokk sem vill koma og vinna hjá mér í sumar.......... þekkir þú einhvern???
Tókum okkur til og rifum kofann sem krakkarnir byggðu fyrir 2 árum, hjá ÍTR í kofaborginni eða smíðavöllunum eða hvað þetta nú heitir.
Hefur kofinn fullkomlega þjónað tilgangi sínum og hefur verið mikið notaður af mínum börnum, nágrannabörnum og köttum hverfisins....... án þess þó að þeir hafi migið þar..... kettirnir!!!!
Tókum við hverja einustu spítu og naglhreinsuðum hana. Frekar ábyggileg. Enda sendi nágranninn í bakhúsinu, þessi sem á það til að fara og æfa jóga úti í garði hjá sér, og gengur stundum í svona pisl/buxum og flokkar ruslið sitt og borðar pottþétt ekkert nema lífrænt......... mér alveg svakalega viðurkennandi augnaráð og hefur án vafa hugsað með sér að þarna væri sko á ferðinni fólk sem kynni að meta lífið á jörðinni!!!!
Ætluðum í hjólatúr........ löggðum af stað......... ákváðum að byrja á bensínstöðinni......... því það var fremur vindlaust í afturdekkinu hjá móðurinni!!!!!
Fyrst ætluðum við ekki að komast af stað....... keðjan ryðguð föst eftir veturinn....... því var kippt í liðinn með fullt af einhverju (ónáttúruvænu) spreyi (gott að nágranninn átti ekki leið framhjá þá!!!!) og svo var haldið af stað. Á fyrstu gatnamótum komst móðirin að því að bremsurnar væru nú líka dáldið fastar eftir veturinn, þannig að þær bremsuðu bara ekki rassgat....... eða var réttara sagt ekki hægt að hreyfa þær!!!!
Komumst samt á bensínstöðina......... þýðir ekkert að gefast upp........ bara halda áfram og brosa!!!!! Á bensínstöðinni var pumpað aftur og aftur í afturdekkið hjá móðurinni en dekkið hélt alltaf áfram að vera jafn vindlaust!!!!
Lítið annað hægt að gera í stöðunni en reiða hjólið heim og gera við það!!!! Afhverju eru ekki svona hjóladekkjaviðgerðarmenn á bensínstöðvum???
Löbbuðum heim......... setti standarann niður til að láta hjólið standa........... braut standarann............ grýtti hjólinu til hliðar.........hamdi mig svo og tjáði börnunum að við myndum ekki hjóla meira þann daginn. Gekk frá hjólinu og fór í að rífa niður kofann!!!!
Ég hata það að vera einstæð móðir!!!!!
Þangað til næst;
ég

Frú Megabeib

Dúllan min.
fékkstu útrás kofanum?
thetta m kokkinn... thekki thvi midur engan a lausu... má thad vera kona?
lastu bokina "rádskona óskast i sveit" eftir snjolaugu braga? gætir auglyst a theim notunum... svaka romantik a dalvik...!
vona ad thu finni kokk og ad hjolid komist i stand.
kv. dss
Já þessi í skrýtnu buxunum ....man eftir honum:o)
þetta að vera einstæð....kannast aðeins við það:o)
það er vont en svo versnar það smá en síðan venst það alveg furðu fljótt ...hehe
Knús frá efri byggðum
Beta
Vildi að ég gæti verið með ykkur slúðurborgarkellum á morgun, verður pottþétt mega gaman hjá ykkur eins og alltaf. Ég sem
ætlaði að drekka þig undir borðið arg.... geri það bara næst, sem verður vonandi sem fyrst.
Bið að heils á morgun.
Luv.
Júlla í próflestri :-(
en eins og frænkan þín gerir sem er orðin svo vön að vera "einstæð" ... smíða skútu, skerpi skauta, bý til dúndur ost og grauta......!!!!!!!!!!!! heheheheh.... maður getur þetta allt sjálfur..... bara halda áfram og djöflast áfram.....svo verður maður svo voða glaður þegar maður getur t.d. mokað bílinn út úr stórum skafli....alveg sjálfur....
kveðja og ekki hætta við að hjóla... ég fer bráðum að koma með mitt hjól frá UK og þá getum við hjólað saman......
Skólakveðja
Skil þig svo vel Linda, ekki vildi ég vera einstæð. Var ég búin að segja þér að mér finnst þú dugleg?.....en mjög dugleg?
Kveðja Hafdís