Prófíll

  • Nafn: Frú Megabeib
  • Staður: On the Kleik

Auglýsing

Prófíll

  • Nafn: Frú Megabeib
  • Staður: On the Kleik

Prófíll

  • Nafn: Frú Megabeib
  • Staður: On the Kleik

Ég

Eins gott að passa sig!!!

15. maí 2008 klukkan 08:17
Á forsíðufrétt í Fréttaglaðinu í morgun er sagt frá tveimur bloggum frá ungu fólki sem hefur nýtt sér þetta dásamlega frelsi að blogga. Því miður eru þetta frekar óhamingjusöm blogg bæði tvö. Vekur mann til umhugsunar að það sé gott að heimurinn sé orðinn svona tæknivæddur þannig að hægt sé að koma þessum unglingum til hjálpar....... því þau hafa þörf á henni bæði tvö!!!

Þessi frétt vekur upp dálítið, getur ekki annað en fengið mig til að hugsa um það að kannski er einhver í fullri vinnu við að lesa blogg!!! Situr allann daginn og les blogg og tilkynnir yfirmanni sínum svo um athyglisverð blogg og óviðeigandi blogg og skemmtileg blogg........ ætli kannski það séu fleiri en einn ráðnir í þetta starf??? Þetta eru auðvitað dáldið mörg blogg sem þarf að fara í gegnum!!! Ætli blogglesendurnir sitji saman í gluggalausri kjallarakompu og lesi blogg??? Eða ætli þau sitji í einni af fjölmörgum glerbyggingum höfuðborgarinnar....... horfi út á sjóinn og narti í lífrænt ræktaðar gulrætur á milli þess sem þau lesa blogg!!!!

Og hver er yfirmaðurinnnnnn?????? Stór feitur kall sem situr og tilkynnir svo meiðyrðablogg og ósæmileg blogg og sorgleg blogg til lögreglunnar???? Situr inni á stórri skrifstofu í endalausri hand og fótsnyrtingu með stórann feitann vindil í munninum........ nei það er svo hrikalega "out" ........ það er óhollt að reykja..... og enginn reykir lengur, ekki einusinni í ímynduðum hugarheimi....... með stóra feita gulrót??? Nei hann er nú ekki beint heilsutýpan!!!! Get betur séð hann fyrir mér japla á sellerýstöng og teigja sig í bloddý marrýið!!!

Á einhvernveginn alveg svakalega auðvelt með að sjá þetta fyrir mér!!!!

Verð ég að fara að hugsa mig um þrisvar, hugsa nú þegar tvisvar, áður en ég set niður einhverjar línur hérna....... ?????

Vona að börnin fái lausn sinna mála....... gott að það er til bloggumferðareftirlit!!!!!

Þangað til næst;

ég
Frú Megabeib
Guðrún Þorleifs skrifar ...
 
Held að þetta séu álfar sem sjá um þetta <:o)
16. maí 2008 klukkan 07:27
Guðrún Þorleifs skrifar ...
 
Kvittaði enginn við bloggið í gær??? Var fyrst að sjá þetta núna. Var að dúllast við að skila síðasta blaðinu í þessari blokk. Bara afslappað :)
16. maí 2008 klukkan 07:29

Skrifa athugasemd

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Klukkan

Leit

Innskráningar kubbur

Flokkar