Hmmmm..........
Var farin að halda að kvittanakerfið væri eitthvað bilað....... þangað til hún Guðrún mín kvittaði sjálfsögðu eins og venjulega!!!
Hér situr maður og bloggar dag eftir dag og dag eftir dag........ og ...... já hmmmmmmmm.........
Kannski fullmikil tilætlunarsemi að vonast eftir kvitti....... seinast þegar ég var að væla yfir kvittleysi..... þá var sko kvittað..... enda var þetta í endan á ágúst í fyrra..... þegar Ásinn minn fór á spítalann.... ætla ekki að kvarta eða kveina eða væla meira.......
Finnst eins og ég eigi ekkert líf........ er föst á þessu námskeiði og vitið bara hvað....... ég er þar ALLA helgina líka!!!! Hvenær Á ég að fara í klippingu??? Er orðin eins og loðmundur á lækjarbakka..... nei það var víst hann Lati Geir á lækjarbakkanum!!!! En það skiptir ekki máli........ ég er orðinn ótæpilega mikið loðin!!!! Á hausnum!!!! Verð það víst ekki mikið annarsstaðar!!!!
En ég læri helling á námskeiðinu og ég verð bara betri manneskja fyrir vikið....... getur maður ekki alltaf á sig blómum bætt???
Snakkes ved;
Mojn!!
ég

Það er alltaf gaman að lesa bloggið þitt og fylgjast með þér og þínum...
Ég reyni að fara inn á þessi blogg þegar ég hef tima...en eins og allir hinir hefur maður ekki alltaf tima til að lesa blogg...
Núna er litli karlinn minn með 39,6 stiga hita og liggur heima hrikalega lasinn og mamman í vinnunni til 13.
En vi snakkes ved.
Mojn
Frábært hjá þér að skipta um umhverfi og vera á Dalvík í sumar ! Ef þig vantar ennþá kokk í sumar hvernig væri þá að tala við Begga og Pacas á hæðinni ?
Þeir myndu örugglega trekkja vel að ! hahaha Gangi þér vel í öllu sem þú gerir, kveðja Fía.
Gaman að heyra í þér í gær! Mig vantar einmitt líka klippingu, reyni að skjótast í fyrramálið! Helgin er svo vel plönuð hjá mér að ég á erfitt með að finna smugu! ;)
Skemmtu þér vel á námskeiðinu.
kossar og knús frá efri byggðum
Arbejde, arbejde og arbejde og så måske Facebook der imellem, derfor ingen kvit de seneste dage.
Kom trampolinen ikke i en eller anden kasse?
Alice
Ps ser Disneysjov med drengene.
Og auðvitað getur maður alltaf á sig blómum bætt. Gangi þér vel krúsí.
Kv. Begga
Ég er sammála því að þú ættir að reyna að fá Begga og Pacas með þér norður að kokka :)
Hlakka til að sjá hvernig þér vegnar í sumar fyrir norðan, en til þess verður þú að halda áfram að blogga þar sem við þekkjumst ekkert. Ég vona að þú finnir tíma til þess.
Gangi þér vel,
kv,
Guðný
knús og kram
Nanna
Sko þegar maður er svona duglegur að blogga þá er maður stundum að lesa nokkur blogg hjá þér í einu og nær ekki að kvitta alstaðar.
GAngi þér vel í þessu öllu og veistu hvað, ef þú nærð ekki að fara í klippingu áður en þú ferð norður þá ferðu bara í klippingu þar.
knus og bið að heilsa í kjallarann
Ertu að verða of loðin, snúlla
Þú veist hvar þú kemst í klippingu, hehehe
Geturðu troðið fimmuhittingi inn á milli atriða hjá þér ;-)
Snakkes soon );
búin að hugsa mikið til þín í óráðshitakófi undanfarna daga, hef ekki einusinni sent þér SMS.... algjör bömmer, en ég er að hressast eitthvað núna.
knús til þín og barnanna,
loðmundarkveðjur
Anna fimma
Sama hér kikji af og til í bloggheiminn og
ég kem alltaf í heimsókn til þín þar að segja í bloggsíðuna....
Sí jú
Gígja
sí jú sún
Óskin.