Prófíll

  • Nafn: Frú Megabeib
  • Staður: On the Kleik

Auglýsing

Prófíll

  • Nafn: Frú Megabeib
  • Staður: On the Kleik

Prófíll

  • Nafn: Frú Megabeib
  • Staður: On the Kleik

Ég

Er að drukkna!!!

18. maí 2008 klukkan 20:27
Takk takk takk takk takkkkkkkkk...... þið eruð BEST!!!!

Gaman að vita af ykkur öllum......... er sko alveg að fíla það!!!! Engin pressa....... bara gaman öðru hvoru að sjá hverjir eru á ferðinni!!!

Júróvisjón framundan og ég má ekkert vera að því að undirbúa !!!!! Verður að vera "partý" á þriðjudaginn, fimmtudaginn og svo að sjálfsögðu á laugardaginn!!!!! Langar alveg GEÐVEIKT á Júróvisjón partýið á NASA með Páli Óskari!!!! Aldrei að vita nema maður skelli sér!!!!

Er að drukkna á þessu námskeiði!!!! Ferlega erfitt að sitja allt í einu svona allann daginn og móttaka upplýsingar!
Stundum hristi ég nú bara hausinn (svona inní mér þið vitið) eða eins og sagt var í gamla daga, þyrmir (ætli það sé einfalt i ) yfir mig og ég hugsa: "hvernig í veröldinni datt mér þetta í hug???" "Ég get þetta aldrei!!" "wów... get sko ekki munað þetta!!!" "hvernig á ég að muna þetta allt saman??" "hvernig í datt mér það í hug að ég gæti þetta??" ............ aha....... niðurbrot, niðurbrot, niðurbrot.......... en svo hamast ég við að snúa þessu við og segi (inní mér að sjálfsögðu): "iss piss ég get þetta sko alveg, því ég get ALLT!!!!"

Svo er ég líka búin að vera í dálítilli bómull alveg síðan i nóvember....... ekki það að ég hafi funkað að einhverju ráði fyrr en í febrúar......... en er búin að vera dáldið mikið í vernduðu umhverfi....... þannig að álagið er eflaust meira fyrir vikið....... kann þetta ekki lengur að vakna svona á morgnana og fara ekki uppí aftur og vera vakandi allann daginn og hitta fólk og tala og eiga samskipti....... er ennþá að vaka alltof lengi........ er ekki heldur búin að fatta það að til að geta sofið nægju mína þarf ég að fara fyrr í rúmið á kvöldin!!!!! ............. eða nóttunni!!!!!

En þetta er alveg rosalega gaman og fullt nýtt sem ég er að læra og hlakka ég bara alveg ferlega til að fara norður........ fer væntanlega um miðja næstu viku....... ekki þessa viku....... heldur næstu...... og þá verð ég að vera búin að pakka niður og til þess þarf ég að vera búin að ákveða hvað ég ætla að pakka niður...... og ég verð að vera búin að kaupa hótelstjóraföt og skó og halda uppá afmælið hennar Viktoríu og fara í klippingu og léttast um 20 kíló og þrífa allt heimilið og þvo allann þvottinn og........

......... anda inn......... anda út.........anda inn..........anda út..........

Þangað til næst;

ég
Frú Megabeib
Guðrún Þorleifs skrifar ...
 
Ands.... ertu góð!!! Á hvaða námskeiði ertu? Uppbygging, uppbygging, uppbygging það er það sem blívur. 20 kg? til hvers???? Hverju á ða pakka niður??? Sóóóó . . . .
Hótelstjóraföt? Til hvers? Fötin skapa ekki manninn, maðurinn skapar fötinn!!!
Njóta alls, njóta, njóta, njóta.....
Njóttu!!"!!
18. maí 2008 klukkan 20:42
dagny s skrifar ...
 
uff held ad "ad fara a rettum tima ad sofa" lærist aldrei... og svo sofna eg a namskeidum... serstaklega ef thad eru fyrirestrar... eda stari øfundaraugum
a allt gladvakandi og ahugasama lidid i kringum mig...
gangi ter rosa vel... thetta hefst allt saman...
kær kv. dagny (sem er ad asnast til ad taka næturvaktir alla helgina i midri ritgerd... ekki snidugt)
19. maí 2008 klukkan 01:24
Hafdís skrifar ...
 
Já það er alveg undarlegt að maður skuli ekki geta komið sér í bælið á skikkanlegum tíma, þrátt fyrir að vita hvað manni muni líða betur af reglulegum svefni og vita hvað það er hollt fyrir mann....nei nei dag eftir dag dröslast maður samt seint í ból.
Ég myndi ekki hika við að skella mér í fjörið á Nasa, betra en Palli, Nasa og Euorvision í bland ???....go go girl !!
Áfram ísland og gleðilega Eurovision-veislu-viku!!!
Hafdís
19. maí 2008 klukkan 07:26
Begga Bauni skrifar ...
Jiii... mér finnst frekar spennandi að það sé alveg að koma að þessu hjá þér, bara á leiðinni norður eftir rúma viku. Hlakka bara til með þér!
Vona að þú skellir þér í Eurosvision-partýið á NASA.
Kv. og orkustraumar í lokaundirbúninginn, Begga
19. maí 2008 klukkan 10:32
Elsa Dögg skrifar ...
 
Hahaha. mér finnst þú fyndin, anda inn og anda út.............. Ég veit að þú verður fyrirmyndarhótelstjóri.
Kveðja,
Elsa Dögg
p.s.
Sá strákinn þinn massa kassaklifrið í gær. Bara flottur.
19. maí 2008 klukkan 11:36
Elísa Henný skrifar ...
 
HEY HEy ...er ekki eh með eurovison partý...
19. maí 2008 klukkan 12:05
Alice skrifar ...
 
Kære Linda!
God fest både til MGP og Viktorias fødselsdag. Utroligt som børnene bliver ældre og ældre mens vi selv altid har nogenlunde den samme alder. Ja sådan i ånden............., altså!!!
19. maí 2008 klukkan 12:39
Beta skrifar ...
Hey ...þú veist allt...getur allt og kannt allt...mundu það:o)
þú átt eftir að brillera í þessu kona...sé fyrir mig eftir nokkur ár....Sunnudagskvöld með Evu Maríu..Eva María ræðir við .Lindu Björk Hótelstýru á Hilton Hotel keðjunni...:o)
kossar og knús Beta í efri byggðum
19. maí 2008 klukkan 14:20
Anna fimma skrifar ...
 
Heyr, heyr, ég tek undir með Betu..... og ég hlakka til að koma í heimsókn til þín í stærsta og flottasta Hilton hótelið, þegar þú býður mér í "brunch" með henni Paris vinkonu okkar :)
knús
Annan
ps. mér líst vel á tímauppástunguna, vona að ég verði hætt að líta út eins og ofþroskaður tómatur.
19. maí 2008 klukkan 16:44
Karen skrifar ...
Sæl Linda
Þú ert kjarnakona af bestu gerð og ég veit að þú átt eftir að massa þetta.
Góða ferð norður....
Bestu kveðjur af Skaganum.
19. maí 2008 klukkan 23:34

Skrifa athugasemd

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Klukkan

Leit

Innskráningar kubbur

Flokkar