Prófíll

  • Nafn: Frú Megabeib
  • Staður: On the Kleik

Auglýsing

Prófíll

  • Nafn: Frú Megabeib
  • Staður: On the Kleik

Prófíll

  • Nafn: Frú Megabeib
  • Staður: On the Kleik

Ég

Það var fyrir 14 árum...........

28. maí 2008 klukkan 02:01
...... að ég var líka vakandi á þessum tíma sólarhringsins, með spenningshnút í maganum....... stór dagur framundan........ nýtt ferðalag, nýr kafli í lífinu að byrja.......eini stóri munurinn var sá að þá hafði ég Ása minn mér við hlið..... og ég var sannfærð um að ég hefði hann mér við hlið það sem eftir væri ævinnar....... búin að gulltryggja það!!!

Sem sagt á morgun/dag eru 14 ár síðan ég gekk í heilagt hjónaband með ástinni minni einu, alveg eins og kleinu ......... vá hvað ég sakna hans mikið!!!

Ég var svo hamingjusöm og ánægð..... komin í örugga höfn í faðminum á honum..... sem elskaði mig út af lífinu og ég hann........ mikið er ég heppin að hafa fengið að eiga með honum öll þessi ár, þó svo að ég óski þess daglega að við hefðum getað fengið að verða gömul saman, við tvö.

Ég óska þess daglega að hann gangi inn um dyrnar og við getum gert einfalda hversdagslega hluti eins og að borða saman kvöldmat með börnunum okkar........ hlegið saman og tuðað í hvort öðru....... velt fyrir okkur lífinu og tilverunni og merkilegum og ómerkilegum hlutum........ gert upp daginn, hvað gerðist í vinnunni, þjóðfélaginu, fjölskyldunni!!!! Ósköp einfaldir hversdagslegir hlutir eins og að fara og versla eða elda eða bara sitja og kjafta........ sakna þess....... sakna hans....... alveg óhugnalega mikið!!!!

Sakna morgnana um helgar þegar við lágum og kúrðum þangað til annað okkar fór oftar en ekki í bakaríið á meðan hitt gerði klárt morgunverðarborðið.
Sakna þess þegar við sátum og lásum blöðin saman og borðuðum rúnstykkin úr bakaríinu ....... ræddum fyrirsagnir og þjóðfélagið á meðan að börnin horfðu á barnaefnið í sjónvarpinu.

14 ár!!!!

Ég man hvað ég var óendanlega hamingjusöm og gat varla haft augun af þessum flotta manni sem hafði viljað eiga mig sem konu....... mikið átti ég ekki von á því að fá ekki að hafa hann hjá mér þegar við ættum 14 ára brúðkaupsafmæli. Ég sakna hans!!!

Á morgun/dag hefst nýtt ferðalag....... verð ég að segja að mér finnst það vera dálítil meiri óvissa í þessu ferðalagi en því sem hófst fyrir 14 árum...... tilhlökkunin er ekki alveg sú sama....... og ég er líka ein....... eða þannig....... er reyndar svo ofboðslega heppin að ég á alveg yndisleg börn sem ætla að ferðast með mér, þannig að ég er ekki alein!!!

Finnst mér þetta ferðalag núna vera meira eins og óvissuferð....... og ég hef alltaf hatað óvissuferðir!!!!  En þegar þeim er lokið, hefur alltaf verið mjög gaman í þeim, sem sagt óvissuferðunum!!!

Hef ég þá trú að þetta ferðalag verði lærdómsríkt, krefjandi en jafnframt skemmtilegt og gefandi.

Er því viðeigandi að hefja það á þessari dagsetningu sem virðist vera orðin tímamóta dagsetning í lífi mínu!!! 28. maí!!!
Frú Megabeib
Begga Bauni skrifar ...
Elsku Linda!!!
Innilega til hamingju með daginn ykkar Ása!!!
Farðu svo varlega í umferðinni norður yfir heiðar.
Brúðkaupsafmælisknús frá mér til þín, Begga
28. maí 2008 klukkan 07:34
Guðrún Þorleifs skrifar ...
 
Sannarlega góður dagur hjá þér 28 maí. Til hamingju með hann.
Ómetanlegt að fá að kynnast ást og hamingju. Það verður aldrei frá þér tekið. Mun fylgja þér í öllu sem þú ert og gerir.
Gangi ykkur vel norður og megi tíminn þar gefa ykkur fleirri perlur í minningasjóðinn.

Kært knús,
Guðrún Þorleifs
28. maí 2008 klukkan 07:58
dagny sylvia skrifar ...
 
Fóruð þið í guldbageren?
innilega til hamingju með daginn...
góða ferð norður og gangi þér hrikalega vel í sumar...
er alveg viss um að þetta verður enn eitt stóra stökkið í þinni persónulegu "udviklingu" sem gerir þig enn sterkari fyrir vikið.
enn og aftur... hafið það rosalega gott.
knus DSS
28. maí 2008 klukkan 09:02
Beta skrifar ...
Elsku LInda mín...til hamingju með þennan dag ykkar Ása
Það er gott að eiga góðu minningarnar...gott að eiga góðar minningar um góðan mann:o)
Snati:o)
Gangi þér rosalega vel í sumar á Dalvík...á eftir að sakna þín hrikalega mikið
en við verðum nú í bandi...
Love you..
Fullt af kossum og risaknús til þín
Beta vinkona úr efri byggðum
28. maí 2008 klukkan 13:53
Dísa í SønderborgElsku Linda. Til hamingju með daginn ykkar Ása í dag. Ég vildi svo sannarlega óska þess að þú hefir hann hjá þér enn til að njóta allra þessara hverstakslegu hluta sem þú minntist á. Það eru eiginlega þeir sem skifta mestu máli! Ég veit líka að þú saknar hans óendanlega mikið og varðveitir vel í mynningunni hvert andartak sem þú áttir með honum. Ég er líka handviss um að þessi nýji kafli sem þú ert að hefja núna verður góður. Því hann Ási ykkar er örugglega að fylgjast með ykkur brosmildur að vanda, og beinir ykkur rétta leið. Hann er í þínu hjarta og þú skalt hlusta á það.
Mér finst nú eiginlega hálf asnalegt að þið skuluð ekki vera heima í sumar þegar við komum á klakann. Hvað á ég að gera við einkasoninn allan tímann? Sem betur fer er strembin dagskrá þó svo að heimsókn til ykkar hefði svo sannalega verið ofarlega á listanum ef þið hefðuð verið heima. Góða ferð út í óvissuna. Finnst þú ótrúlega hugrökk, dugleg og mögnuð að taka þessa ákvörðun sem og svo margar aðrar. Trúðu á sjálfa þig elsku Linda! Ég geri það!
Knús og aftur knús...
Dísa
28. maí 2008 klukkan 15:41
Alice skrifar ...
 
Kæreste Linda!
Mærkeligt (måske i den islandske betydning denne gang) som datoer kan gå igen i vores liv. Din sorg berører mig dybt. Har dog håbet, at du med tiden har glæde af alle de gode minder og sorgen med tiden vil midste sin dominans og visne.
Sender dig mine kærligste tanker og ønsker for en god sommer og en positiv start på dette nye kapitel i dit liv.
Knus fra Alice
28. maí 2008 klukkan 17:45
Anna Aðalpæja skrifar ...
Anna AðalpæjaElllllllllsku vinkonan mín :)
Til hamingju með daginn ykkar Ása....skil það afskaplega vel að þú saknir hans hrikalega mikið....... það er ekki sanngjarnt að þíð fenguð ekki lengri tíma saman......... en sem betur fer áttu yndislegar minningar sem að ylja og gleðja :) það er blessun að fá að kynnast hreinni og heilbrigðri ást, en allir góðir hlutir taka á endanum enda !!!!! ( vá þetta var djúpt hjá mér) .... og manni finnst það alltaf alltof stutt sem það varir..... En vel við hæfi að hefja nýja kafla í dag.
ég hugsa mikið , mikið til þín og þú veist að þú getur alltaf hringt í persónulega númerið þitt......... það eru nú ekki margir sem eiga svona rauða einka símalínu,,,,,,, forsetar stærstu ríkjanna og ÞÚ !!!
Það var dásamlegt að fá aukaknús hjá ykkur og ég vona að glaðningurinn hafi glatt þig á leiðinni (og í allt sumar).....
Saknaðarkveðjur úr dreifbýlinu,
frá Önnu pönnu sem að var að rifja upp stórglæsileg brúðhjón að kjósa í Laugarn.skóla og snyrtipinninn sem fylgdi í kjölfarið með púðrið á lofti !!!!
28. maí 2008 klukkan 18:08
Þóra Sig. skrifar ...
 
Elsku Linda mín
Til hamingju með daginn ykkar Ása, gangi þér alveg rosalega vel í nýju óvissuferðinni þinni og hafið það öll alveg rosa gott í sumar, þú ert BARA dugleg.
Knus úr Frederiksgaard
Þóra Sig.
28. maí 2008 klukkan 20:57
Edda pedda í Englandi skrifar ...
 
Ég táraðist þegar ég las bloggið þitt í dag...
En ég veit líka að þú átt eftir að plumma þig vel sem hótelstýra.. getur allt... gangi þér vel i nýja ferðalaginu ...
heyrumst kleina
28. maí 2008 klukkan 23:38
Steinunn Braga skrifar ...
 
til hamingju með daginn elsku Linda mín, og takk fyrir að minna okkur á hvað allt það
"hversdagslega" er yndislegt. Það er gott að eiga lúfar mnningar það er það sem gefur lífinu gildi.
Gangi ykkur vel með næsta skref, það er ekki hægt annað en að dást af þér þú er köggull.
sjáumst í haust
kv Steina
28. maí 2008 klukkan 23:53
Elísa Henný skrifar ...
 
Elsku vinkona.
Minningin lifir.
Hann Ási þinn var frábær maður. Þið voruð æðisleg saman.
Gangi þér vel fyrir norðan.
Þú ert hetja í mínum augum.
Knúss og kossar frá mér til þín
29. maí 2008 klukkan 12:22
Þóra beibí skrifar ...
Til hamingju með daginn elsku Linda....
Þú ert ótrúlega dugleg....
Gangi ykkur vel fyrir norðan...
Ég veit að hann Ási verður með ykkur þar allan tímann...
Kveðja úr jarðskjálftanum....
Þóra beibí
29. maí 2008 klukkan 17:48

Skrifa athugasemd

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Klukkan

Leit

Innskráningar kubbur

Flokkar