Prófíll

  • Nafn: Frú Megabeib
  • Staður: On the Kleik

Auglýsing

Prófíll

  • Nafn: Frú Megabeib
  • Staður: On the Kleik

Prófíll

  • Nafn: Frú Megabeib
  • Staður: On the Kleik

Ég

Er ekki að meika þetta!!!!

03. júlí 2008 klukkan 11:10
Mér finnst ég ekki gera neitt nema einhverjar vitleysur hérna.

Þoli það ekki hvað ég er illa undir þetta starf búin.

Dagurinn byrjaði ekki vel...... ein af þernunum mínum hætti........ sagði að þetta væri of mikil vinna fyrir hana........  hvað er fólk að spá....... hún var hérna í fyrra og ætti alveg að vita hvað hún er að fara út í!!!!

Svo hringdi hin sem hætti um daginn, það var líka allt í lagi að hún hætti....... ég hefði rekið hana ef hún hefði ekki hætt......... og vildi fá uppsagnarfrestinn borgaðann...........!!!! Sem hún á að sjálfsögðu rétt á....... en ef ég væri betur undir þetta búin að einhver hefði getað sagt mér að hún ætti að fá hann greiddann........ hefði ég sko látið hana vinna uppsagnarfrestinn!!!!

Og klukkan er ekki einu sinni orðin hádegi!!!!! Var þetta allt saman búið að ganga á fyrir klukkan 9:30 í morgun.

Núna langar mig allra allra allra ALLRA mest að skríða upp í rúm og hágráta!!!!

Hef enga orku, er þreytt, og finnst VIRKIKLEGA ekkert vera að ganga upp!!!!

Hafði það á tilfinningunni í fyrradag að þetta væri nú allt að koma og ég væri að botna í djúpu lauginni......... það var dásamleg tilfinning......... hún er ekki til staðar lengur!!!!

Ég veit að ég er neikvæð ........... get ekkert að því gert og langað að tjá mig og koma þessu frá mér í þeirri von að ég yrði skárri í skapinu!!!
Frú Megabeib
Alice skrifar ...
 
Er du blevet i bedre humør efter dangens blogg? Det håber jeg!!! Denne person som sagde lyder ikke som en "rigtig" islænding, thi rigtige islændinge ved, så som du selv, at det er gennem hårdt arbejde der tjenes til dagen og vejen! Ved, at du snart vil få ansat de rigtige arbejdsvillige på dit hotel!
03. júlí 2008 klukkan 12:56
Elsa Dögg skrifar ...
 
Elsku Linda! Hvaða hvaða, ekki láta stelpuskjátur koma þér í þetta uppnám. Haltu bara áfram á þinni braut, það er ekki meðfætt að kunna að reka hótel en öll svona áskorun er af hinu góða og mér finnst frábært að þú takir svona áskorun, þetta verður flott í CVið þitt. Í haust áttu eftir að vera stolt af þér ég veit það. Svava Grönfeld, rektor við HR sagði að konur ættu að taka öllum svona tækifærum sem gæfust og læra á þeim, þá komast þær langt.
Ég held með þér,
Elsa Dögg
03. júlí 2008 klukkan 18:46
Þóra Sig. skrifar ...
 
Hæ Linda mín, ég þekki svona tilfinningu vel. en maður er búinn að læra að það kemur dagur eftir þennan dag og þá gengur allt betur, eins og ég segi stundum við krakkana mína, hvíldu þig, þú ert bara þreytt(ur) það gengur betur á morgun.
Það birtir alltaf til um síðir þetta er bara lífsreynsla, keep on... ;)
Baráttukveðjur, Þóra Sig. líka í nýju jobbi :)
03. júlí 2008 klukkan 19:32
Olga skrifar ...
 
Ég eyddi 4 árum í að læra mína vinnu, það líður eki sá dagur að ég geri ekki mistök...... finnst ég alveg ótrúlega heimsk á köflum að geta ekki fundið út úr þessu en líður betur að sjá að vinnufélagarnir eru að fá sömu villur í hausinn....
03. júlí 2008 klukkan 20:13
Anna fimma skrifar ...
 
Elsku Lindan mín.
Nýtt starf krefst aðlögunar í að minnsta kosti 3 mán. og maður getur búist við að finna öryggi í starfinu eftir 6 mánuði............ það er þessi venjulegi gangur.............og oft getur maður leitað til sér reyndari starfsmanna um stuðning...... Ekki gera of miklar kröfur til þín, mér finnst þú svakalega dugleg og mikill kraftur í þér að takast á við þetta verkefni. Það sagði víst enginn að þetta jarðlíf yrði auðvelt......... en það skiptast á skin og skúrir, og núna fer sólin að skína :) vittu til.
Kærar kveðjur
frá Önnunnin þinni sem verður á Skaganum á Írskum Dögum um helgina, og að styðja kallinn í rallýinu á Snæfellsnesinu á laugardaginn...... sem betur fer er þetta á sama landshlutanum !!!!!!
03. júlí 2008 klukkan 23:13

Skrifa athugasemd

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Klukkan

Leit

Innskráningar kubbur

Flokkar