Prófíll

  • Nafn: Frú Megabeib
  • Staður: On the Kleik

Auglýsing

Prófíll

  • Nafn: Frú Megabeib
  • Staður: On the Kleik

Prófíll

  • Nafn: Frú Megabeib
  • Staður: On the Kleik

Ég

11 dagar eftir!!!!!

20. ágúst 2008 klukkan 09:34
Þá er þessu alveg að verða lokið.

Alltaf nýtt drama á þessu blessaða hóteli......... veit eiginlega ekki hvað er í gangi.......... er mikið að íhuga að nú sé þetta komið nóg hjá mér og ég þurfi bara að drífa mig heim með börnunum á morgun....... ég er löngu búin að komast að því að ég var einstaklega illa búin undir þetta starf og hef þurft að læra alltof mikið af reynslunni....... og nú er bara komið nóg.

Ég er baráttukona og gefst ekki upp fyrr en í fulla hnefana, en nú er komið að síðustu lotunni í þessari hnefaleikakeppni hjá mér og finnst mér ég hafa verið undir nánast allann leikinn!!!! Ég finn að baráttuþrekið fer þverrandi og ekki er langt í að ég gefist upp og leggi boxhanskana á hilluna og þakki fyrir þennan leik.

Hvað ég eigi að gera í stöðunni sem komin er upp núna getur enginn svarað mér. Þrátt fyrir yndislegar vinkonur sem lánuðu mér eyrað sitt til að ég gæti röflað í það ......... þá hef ég ekki hugmynd um hvað ég á að gera núna!!! Vildi að Ási minn væri hérna hjá mér til að gefa mér ráð, hann var alltaf svo niðri á jörðinni og raunsær....... kannski ég þurfi hann núna til að segja við mig:"þegar fíflunum í kringum þig er farið að fjölga, þá er kominn tími til að líta í eigin barm!" eins og ég þoldi það ekki þegar hann sagði það, sakna hans......... eru það mest megnis tvö fífl sem eru í kringum mig núna........  vonandi fer þeim ekki fjölgandi........ finn eflaust einhverja lausn á þessu vandamáli núna....... tekst það nú alltaf að lokum......... hvort það sé svo góð lausn er svo annað mál!!!

Ísland komið í fjögurra liða úrslit........ minn maður hefði sko vaknað í morgun til að horfa á leikinn........ öskrað og æpt og klappað og stappað.......... í einu skiptin í rauninni sem hann virkilega skipti skapi ......... því hann var með alveg yndislegt jafnaðargeð........ hann var jinginn minn og ég jangið hans!!!!
Frú Megabeib
Stina skrifar ...
Elsku Linda.......er ekki bara eitt að gera í stöðunni....HALDA ÚT ?? ......á morgun verða bara 10 dagar eftir :o)
Þú átt örugglega eftir að finna einhverja lausn á þessu vandamáli.
Knús og baráttukveðjur Stína
20. ágúst 2008 klukkan 10:46
Össi skrifar ...
 
Upp með baráttuþrekið og bara byrja að telja niður 10, 9, 8......... og búið áður en þú veist af.
Þú ert frábær og klárar þetta með sóma.
Þú veist að "fíflin" vinna ekki til verðlauna, heldur eru það við hin sem vinnum :-)

Ég og mín fjölskylda vöknuðum í morgun til að horfa á leikinn, og það var vel látið í sér heyra
eða eins og frúin sagði, "það er eins gott að við búum ekki í fjölbýlishúsi"

Ætla að kíkja í kaffi til þín áður en þú kveður norðurlandið.
Sjáumst bráður og baráttu kveðjur síðustu dagana.
kv. Össi.
20. ágúst 2008 klukkan 14:16
Júlla skrifar ...
 
GO GIRL!!!!

Kveðja af skaganum.
21. ágúst 2008 klukkan 09:33
Begga Bauni skrifar ...
Mikið hlakka ég nú til, aðallega fyrir þína hönd, þegar þú kemst heim aftur. Greinilega mikið búið að ganga á hjá þér í sumar, en þú hefur pottþétt sankað að þér mikilli reynslu sem þú átt eftir að geta notast við í framtíðinni.
Miðað við allt sem hefur gengið á hjá þér í sumar og að þú stendur enn upprétt með smá baráttuvilja eftir þá hef ég nú fulla trú á því að hann Ásinn þinn hafi nú verið hjá ykkur og stutt ykkur eins vel og honum er unnt.
Knús og orkustraumar til þín til að hjálpa þér að halda þetta út í 10 daga í viðbót, Begga
21. ágúst 2008 klukkan 19:32
Alice skrifar ...
 
Kære Linda!
Jep,jep, til lykke med dine landsmænd i håndbold.... og så taler vi ikke højt om at europamestrene er slået ud. Her var jeg i stærkt undertal da "vi! mødtes i den indledende runde, havde nemmelig svigermekanikken på besøg. Ikke ringere end 6 voksne og 4 børn! Vi nød det og fik samtidig fejret Andreas´s fødselsdag med maner!
Det synes, at have været en rigtig øv-oplevelse turen til Hotellet. Håber de sidste dage vil flyve af sted.
21. ágúst 2008 klukkan 19:52

Skrifa athugasemd

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Klukkan

Leit

Innskráningar kubbur

Flokkar