Heima er best!!!!
Mikið er nú gott að vera heima hjá sér!!! Alltaf best!!!
Búin að sofa og slappa af og horfa á sjónvarpið út í eitt!!! Bara yndislegt!!!
Nú er bara að koma lagi á heimilislífið........ ganga frá ferðatöskunum og öllu dótinu sem kom með frá Dalvík..... svo að þrífa heimilið og mála.......... og henda og henda og henda.........!!!!!
Er að spá í að fara með allt þetta blessaða dót mitt sem ég nota nákvæmlega ALDREI í Kolaportið og selja það!!!! Eða gefa það nauðstöddum..... heheheheee ....... það vill kannski enginn nota þetta frekar en ég!!!!
Annars er ég búin að bóka eitt stk. ferð fyrir mig og börnin mín til Kanarí um jólin!!!! Geðveikt!!!! Verður eflaust skrítið að vera ekki á Íslandi um jólin........ ég jólabarnið sjálft....... þekki ekki marga sem eiga meira jólaskraut en ég........ en það er allt svo skrítið hvort sem er þannig að það verður eflaust ekkert verra að vera um jólin einhversstaðar allt annarsstaðar en heima hjá mér.........
....... kannski er þetta bara flóttatilraun frá raunveruleikanum....... hvað veit ég........ er ekki sálfræðingur........
...............dóttirin er búin að panta að hafa pizzu í matinn á aðfangadag!!!!

Já hafðu það bara yndislegt, þú átt það sannarlega skilið.
Og frábært hjá þér að fara til Kanarí um jólin.
kv. Örn.
p.s. kærar þakkir fyrir kaffið og spjallið á Dallas um daginn :-)
Knús til þín og þinna, Begga
Þetta er góð ákvörðun hjá þér elskan...
Kveðja Þóran
Frábært hjá þér að skreppa út um jólin....pizza er sko ekkert slæmur jólamatur:o)
kossar og knús Beta
knús, knús
Anna5