Prófíll

  • Nafn: Frú Megabeib
  • Staður: On the Kleik

Auglýsing

Prófíll

  • Nafn: Frú Megabeib
  • Staður: On the Kleik

Prófíll

  • Nafn: Frú Megabeib
  • Staður: On the Kleik

Ég

Almenni lífeyrissjóðurinn.

10. september 2008 klukkan 16:46
Inn um lúguna hjá mér í dag duttu nokkur bréf. Í sjálfu sér ekki frásögu færandi..... það eiga það til að koma bréf hingað!!! Eins og á flest öll önnur heimili.

Á meðal bréfanna leyndist flott umslag. Var umslagið gegnsætt. Var þetta markpóstur, auglýsingapóstur frá Almenna lífeyrissjóðinum. Eflaust komið svona flott umslag inná mörg heimili í dag, þar sem öllum sjóðsfélögum Almenna lífeyrissjóðsins var sendur svona umslag.

Innan í gegnsæja umslaginu var annað blátt umslag þar sem mátti lesa stórum stöfum: "Lykill að góðri framtíð" og innan í bláa umslaginu leyndist glaðningur...... USB lykill með kynningarmyndbandi sem lýsir því að myndrænan hátt hvernig Lykillinn (að góðri framtíð) hjá Almenna lífeyrissjóðnum virkar.

Er þetta mjög persónulegt bréf þar sem þér er sagt frá hvernig þú notar þennan fína lykil að góðri framtíð og hverng þú getur nú fylgst með stöðu þinni hjá sjóðnum og þar getur þú séð hvort þú sért að spara nóg eða hvort þú sért að spara of lítið til að tryggja þér ásættanleg eftirlaun.

Þetta er mjög flott markaðssetning hjá Almenna lífeyrissjóðnum. Flott kynning á nýrri þjónustu við sjóðsfélaga.

Ég er alls ekki sjóðsfélagi!!!! Maðurinn minn var það!!!!

Veit eiginlega ekki alveg hvað mér á að finnast um það að lífeyrissjóðurinn, skuli senda svona markpóst á manninn minn sem er búinn að vera dáinn 10 mánuði með yfirskriftinni: Lykill að góðri framtíð!!!!!

Á umslaginu, sem var stílað á hann:  Ásgeir Einarsson, stóð ekki einusinni d.b. (dánarbú). Hef ég fengið mörg undarleg bréf stíluð á hann og er þá oftast held ég d.b. fyrir framan nafnið hans, en þetta er það undarlegasta bréf sem ég hef fengið.

Hringdi í Almenna Lífeyrissjóðinn. Talaði þar við deildarstjóra sem var ekkert annað en almennilegheitin. Þótti þetta mjög miður og gat alls ekki skilið hvernig þessi mistök hefðu getað átt sér stað, þar sem látnum sjóðsfélögum væri ekki einusinni send yfirlit yfir stöðu sína hjá sjóðnum. Sem að mínu mati er nokkuð skiljanlegt þar sem þeir eiga frekar erfitt með að lesa og fylgjast með yfirlitunum sínum. Engin yfirlit, en fá sendann lykil að góðri framtíð!!!!

Var að spá í hvort ég gæti ekki beðið þau um að segja mér hvernig ég ætti eiginlega að koma þessu til skila til hans Ása míns........ og beðið hann þá í leiðinni að koma aftur til mín.

Mistök geta gerst og er ekkert eðlilegra en það gerist, enda erum við öll mannleg. Vona bara að þetta bréf hafi verið eina bréfið sem var sent á látinn sjóðsfélaga. Væri ekki til í að vinna í Almenna Lífeyrissjóðnum ef þetta hefur farið á ALLA sjóðsfélaga, lifandi og dauða!!!!!

Finnst þetta hálf broslegt......... eða grátlegt......... eða veit eiginlega ekki hvað mér finnst......
Frú Megabeib
Beta skrifar ...
Vá hvað ég skil ekki svona vinnubrögð:o/
Ég segji eins og þú að ekki vildi ég vinna þarna ef allir hafa engið svona bréf...
Vonandi sjáumst við á laugardaginn
Kossar og knús Beta
11. september 2008 klukkan 15:06
Edda frænka skrifar ...
 
takk fyrir heimsóknina..
11. september 2008 klukkan 15:19
Alice skrifar ...
 
Egentlig synes jeg det er sjusk, at du får tilsendt sådan et brev. Mor fik en del af den slags breve efter far, og hun var bestemt ikke tilfreds med situationen! Det er at få rippet såret op igen og igen, fuldstændig uden mening. Kære Linda håber du ikke skal få sådanne breve igen.
11. september 2008 klukkan 19:49
MAGGA DROTTNING skrifar ...
 
Fundinum var frestað til kl 10.10 og er heima hjá mér.Við formenn verðum á staðnum en annars eru aðrir velkonmnir sem hafa eithvað um máið að segja.Mánudagur 15 sep kl 10.10. staðfestið.
Hilsen MAGGA
12. september 2008 klukkan 08:20
Begga Bauni skrifar ...
Mér finnst ekki skrítið að þú vitir ekki alveg hvað þér finnst um að fá svona bréf þ.e. broslegt eða grátlegt. Mér finnst þetta nú kannski frekar grátlegt samt.
En það er alla vega gaman að sjá að þú ert farin að fara á bloggrúntinn og skilja eftir þig spor þar sem þú kemur við.
Hafðu það nú sem allra best...
Kv. Begga
12. september 2008 klukkan 10:06
Guðrún Þorleifs skrifar ...
 
Humm...
Hefði ekki viljað þurfa að svara fyrir svona . . .
Vona að þú hafir það gott.

Kveðja frá SDB
14. september 2008 klukkan 14:53

Skrifa athugasemd

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Klukkan

Leit

Innskráningar kubbur

Flokkar