Prófíll

  • Nafn: Frú Megabeib
  • Stađur: On the Kleik

Auglýsing

Prófíll

  • Nafn: Frú Megabeib
  • Stađur: On the Kleik

Prófíll

  • Nafn: Frú Megabeib
  • Stađur: On the Kleik

Ég

2 PK........ framhald

27. september 2008 klukkan 22:59
Einu sinni var ung stúlka (eða kannski ekki svo ung) sem fór í Bónus. Var hún að versla inn fyrir fjölskylduna sína almennar matvörur. Unga stúlkan er frekar ómeðvituð um matarverð almennt, en kann að bera saman verð og kíkir vel eftir þegar það eru auglýst tilboð og leggur oft á sig krók til að verða sér út um það sem virðast vera bestu tilboðin. Enda ekki vanþörf á því í þjóðfélagi þar sem þú borgar alveg örugglega ekki of lítið fyrir vörurnar sem þú ert að versla.

Þar sem unga stúlkan stóð í Bónus blasti við henni skilti sem á stóð: " 2 PK 198.-" Var þetta skilti einnig merkt: "tilboð". Fannst ungu stúlkunni þetta vera einstaklega gott tilboð og mundi hreinlega ekki eftir því að hafa nokkurntíman séð svona gott tilboð á Íslandinu góða. Var tilboðið á annars mjög óhollu Toffýpops kexi, en unga stúlkan gat ómögulega hamið sig, svo gott var tilboðið. Greip hún höndum tveim tvo pakka og skellti í innkaupavagninn hjá sér himinlifandi yfir að hafa loksins rekist á svona gott tilboð, þó það væri á vöru sem hún er ekkert sérlega hrifin af.
Unga stúlkan gekk af stað en fór svo að hugsa:"kannski getur þetta ekki verið. Pakkinn er jú tvöfaldur. Gæti verið að það sé bara verið að auglýsa að tvöfaldur pakki kosti 198.- kr."

Til að taka af allan vafa ákvað unga stúlkan að leita að starfsmanni til að fá úr þessu skorið svo hún stæði nú ekki í stappi þegar að kassanum væri komið. Því fátt er leiðinlegra en þegar það er vesen hjá kössunum.
Ungu stúlkunni til mikils happs fann hún starfsmann fljótt. Ekki spillti það fyrir að starfsmaðurinn var íslenskur í húð og hár, þó ungur væri að árum. Staðfesti hann við ungu stúlkuna að þetta væru tveir pakkar á 198.- kr.
Unga stúlkan var svo ánægð með að hafa landað þessu góða tilboði að hún sporaði varla. Þó svo að henni þyki kexið ekkert sérstaklega gott og hefur aldrei keypt sér svona kex áður.

Kláraði unga stúlkan innkaupin og sveif svo í röðina til að borga vörurnar og kexpakkana góðu sem kostuðu bara 198.- kr.
Við kassann var ung kassadama sem var af öðru þjóðerni en íslensku og talaði ekki íslensku eins og svo margir aðrir starfsmenn Bónusverslananna.
Þegar röðin kom að kexpökkunum tveimur renndi unga kassadaman pökkunum tvisvar í gegn! Sem sagt að hvor pakki um sig kostaði 198.- kr.

Það runnu tvær grímur á ungu stúlkuna. Var hún ekki búin að spyrja að því hvort þetta væri ekki rétt verðmerkt? Afhverju renndi hún þá pökkunum tvisvar í gegn? Unga stúlkan taldi bara að unga kassadaman hefði gert mistök og benti henni á að þetta væri ekki rétt hjá henni, það stæði inni í búð að það væru 2 pakkar á 198.- og brosti allann hringinn.
Neitaði kassadaman þessu, en eftir að unga stúlkan hafði sagt það aftur með bros á vör að þetta stæði nú samt inni í búð, þaut kassadaman af stað til að staðfesta frásögn ungu stúlkunnar.

Var unga stúlkan ánægð með þessi viðbrögð og vissi í hjarta sínu að þegar kassadaman kæmi til baka þá yrði þessum misskilning eytt og hún myndi borga 198.- kr. fyrir sína tvo pakka eins og stóð á skiltinu.
Það var öðru nær. Þegar kassadaman kom til baka þá sagði hún að það væri einn pakki á 198.-

Neitaði unga stúlkan þessu og brosti sínu blíðasta. Fór þá kassadaman aftur og náði í ungan íslenskan pilt sem virtist vera yfirmaður verslunarinnar þann daginn.

Hófst þá sami leikurinn að nýju. Ungi yfirmaðurinn fór inn í búð, kom til baka, sagði að pakkinn væri á 198.-, unga stúlkan neitaði og sagði að það stæði alls ekki heldur stæði að 2 pakkar væru á 198.-. Fór ungi yfirmaðurinn þá aftur í burtu, unga stúlkan taldi víst að hann væri að tala við sinn yfirmann.

Unga stúlkan brosti til annarra viðskiptavina sem stóðu í röðinni og tjáði þeim að þetta gæti tekið smá tíma, eflaust væri betra fyrir það að finna sér annan kassa.

Ungi yfirmaðurinn kom til baka og tjáði ungu stúlkunni að hann hefði talað við verslunarstjórann og sá hinn sami hafi sagt að verðið væri 198.- kr fyrir pakkann!!

Óskaði unga stúlkan þá eftir því að fá að tala við verslunarstjórann. Var verslunarstjórinn ekki við þennan dag en henni bauðst að tala við hann í síma sem hún þáði.

Samtalið við verslunarstjórann var langt. Voru unga stúlkan og verslunarstjórinn alls ekki á sama máli um hvað 2 pk 198.- þýddi.
Verslunarstjórinn fræddi ungu stúlkuna á því að á Íslandi væri aldrei svona tilboð. Það væri eitt verð fyrir eina vöru, aldrei tvær vörur. Unga stúlkan tjáði honum að þessir viðskiptahættir ættu sér stað víða um heim. Fannst honum það ekki skipta máli þar sem við værum á Íslandi og þetta væri aldrei gert hér. Hann tjáði henni jafnframt að auglýst verð væri´"tú pakk". Fannst ungu stúlkunni skrítið að það væri hægt að auglýsa á ensku á Íslandi. Verslunarstjóranum fannst það ekki.
Eftir því sem leið á samtalið fór að þykkna ansi mikð í ungu stúlkunni, því verslunarstjórinn virtist alls ekki starfi sínu vaxinn. Taldi unga stúlkan ef auglýst væri 2 pakkar af einhverju ættir þú undantekningarlaust að geta haldið á einum pakka í hvorri hendi. Fannst verslunarstjóranum þetta væri aukaatriði þar sem um væri að ræða tvöfaldann pakka. Var unga stúlkan hjartanlega sammála verslunarstjóranum að um væri að ræða tvöfaldan pakka og þar af leiðandi ætti tilboðið að hljóma uppá "tvöfaldur pakki á 198.- kr".
Spurði unga stúlkan hann þá hvort hægt væri að auglýsa hvað sem væri inni í búð og svo þegar á kassann væri komið væri bara eitthvað allt annað verð! Taldi verslunarstjórinn ekki að það væri gert. Væri þetta tilboð á kexinu búið að vera í meira en viku en unga stúlkan væri sú eina sem hefði misskilið þetta tilboð.
Þegar hér var komið sögu var verslunarstjórinn farinn að hlæja að ungu stúlkunni og fræða hana á því að tíminn sem hún hefði eytt í þetta klag væri meira virði en 198.- kr. Unga stúlkan svaraði því til að þetta væri prinsipp mál, hann ætti að auglýsa vöruna rétt!
Gerðist verslunarstjórinn dónalegur og spurði ungu stúlkuna að því hvort þetta væri falin myndavél eða eitthvað annað gabb. Þá fannst ungu stúlkunni fokið í flest skjól og óskaði eftir því við verslunarstjórann að hann gæfi henni nafnið sitt þar sem hún hyggðist tala við hans yfirmenn, hann hafði ekki haft fyrir því að kynna sig þegar samtal þeirra hófst, þrátt fyrir að unga stúlkan hefði kynnt sig með nafni.
Lok símtalsins varð á þá leið að verslunarstjórinn sagði:"ég skal bara gefa þér þennan pakka".

Unga stúlkan fór fram að kassanum þar sem kassadaman stóð og fékk sína 2 pk á verði eins!!!!

Unga stúlkan fór heim og fannst hún ekki hafa unnið sigur neytandans þar sem verslunarstjórinn var svo miskunnsamur að "gefa" henni pakka númer tvö.
Gerði unga stúlkan smá könnun á meðal fólks sem hún virðir skoðanir hjá og eru neytendur eins og hún.
Var algeng skoðun þeirra að 2 pk. þýddi að það stæði til boða að kaupa 2 pakka af vörunni á auglýstu verði.

Unga stúlkan sagði sögu sína víða og heyrði til baka margar sögur af því að í verslunum væri oft auglýst verð alls ekki það sama og það sem greiða ætti þegar á kassann væri komið.

Veltir unga stúlkan því fyrir sér hvort það geti verið að íslenskir neytendur séu virkilega svona heimskir að þeim finnist allt í lagi að láta hafa svona af sér peningana. Kannski eiga bara allir nóg af peningum og er bara alveg sama þó þeir borgi meira en þeir eiga að gera samkvæmt tilboðum og auglýstu verði. Unga stúlkan er ekki í þeim hópi.

Þar sem unga stúlkan hefur ekki hug á að sýna sig í þessari Bónusverslun á næstunni, fór hún í aðra nokkrum dögum síðar.
Þar var tilboð á Toffýpops kexi.
Þar stóð:
Tilboð!
Toffypops
stór pakki
139.-
Bónus raunhæf kjarabót fyrir alla.
Frú Megabeib
Alice skrifar ...
 
Måske kom der alligevel noget ud af den unge kvindes besvær? Tilbuddet blev da forståeligt og prisen nedsat!
28. september 2008 klukkan 15:08
Júlla skrifar ...
 
hehe ég lenti einmitt í svona fáránlegu í Krónunni um daginn. Þar er auglýstur kjúklingur, 2l af kók og salat á 998 kr eða eitthvað svoleiðis. Ég ákvað að skella mér á þetta góða tilboð, tók kjúlla og
2l af kók, en ákvað að sleppa salatinu því mér finnst það vont. Þegar ég kem á kassan þá rennir kassadaman kjúllanum í gegn á 998kr og svo kók flöskunni á 178kr. Ég stoppana af og spyr hvort
að þetta hafi ekki verið tilboð kjúlli, kók og salat á 998kr, en ég hafi ekki tekið salatið því ég vilji ekki fá það með. Þá segir hún að salatið sé inní tilboðinu og ég verði að kaupa það líka. En þar
sem mig langaði ekki í salatið þá mátti ég borga fullt verð fyrir kjúllan og kókið því mig langaði ekki í salatið. Ég horfði bara á ungu stúlkuna, sem á örugglega fermingarpeningana sína alveg
glóðvolga inná bankabók frá því í vor, brosti og borgaði fullt verð fyrir allt draslið, gott tilboð, þarna græddi Krónan á því að ég var ekki í sama stuði og unga stúlkan í Bónus. Ég vildi að ég
hefði haft orku í að fá mínu framgengt í þetta skiptið, þá væri ég þessum krónum ríkari, þó þær eru ekki margar, þá hefði ég sennilega getað keypt salatið sem mig langaði ekki í !!
28. september 2008 klukkan 22:29
Anna fimma skrifar ...
 
Ég vildi að ég hefði úthaldið þitt......... lendi oft (alltof oft) í slíkum aðstæðum !!!!!!! Svo má alveg deila um hver sé "fíflið" í þessu dæmi ........ er það ég sem læt hafa mig að fífli þegar ég læt valta yfir mig, ....... eða er það unga stúlkan sem að er staðföst á sínu prinsipp máli "og röflar yfir smámunum" ............. eða er það verslunarstjórinn sem hlær að "heimsku" viðskiptavinarins og finnst allt í lagi að auglýsa vörur í íslenskum búðum á erlendri tungu ?????
Ég veit ekki .............
knús í krús og lús í mús !!!!
Anna 5
29. september 2008 klukkan 16:42
Einar Runarsson skrifar ...
Þú ert ekki í lagi ;-) Hey kvitta svo á mit líka!
ER er og verður -líka í ólagi
30. september 2008 klukkan 14:32
Hafdís skrifar ...
 
Gott hjá þér Linda Björk!!!!..........láta ekki bara vaða yfir sig á sítugum skónum PUNKTUR
30. september 2008 klukkan 19:39
Hrund skrifar ...
 
Ég dáist af þér að gera þetta! við þyrftum fleiri að standa upp og láta í okkur heyra þegar okkur finnst brotið á okkur.Á einn hátt eða annan. Gaman væri samt að vtia hvort þessi tiltekna búð hafi breytt skilti sínu eftir þetta.
Kveðja úr Syðri Borg
30. september 2008 klukkan 20:57
dagny sylvia skrifar ...
 
á aglastødum er 14 barn ad vinna a kassanum i bónus!!!
30. september 2008 klukkan 22:36
Hvað er að fólki? Maður skilur þetta ekki? Tek ofan fyrir þér, þörf frásögn og ekki spillir fyrir að frásagnarstíllinn er skemmtilegur hjá þér
28. október 2008 klukkan 22:05

Skrifa athugasemd

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Ţennan mánuđ: ...
  • Frá upphafi: ...

Klukkan

Leit

Innskráningar kubbur

Flokkar