Hef ekkert ađ segja.........
........ en langar samt svo óskaplega að tjá mig um eitthvað!!!!
Nenni sko ekki að ræða stjórnmálin....... þau eru nú eins og veðrið breytist og gengur á með skini og skúrum hagli og roki alveg sama hvort ég æsi mig yfir þeim eða ekki....... þannig að ég ætla bara pent að láta það eiga sig að tjá mig eitthvað um þau........ EN verð þó aðeins að segja eitt.....hmmmmmmmmmm jú jú ....... er svo FEGIN að eiga ekki hlutabréf í neinum banka núna!!!!
Gott að Ísland kemst í fréttirnar...... orðið viðburðarríkt ár hjá litla Íslandi........ við í nánast hverjum fréttatíma hjá erlendu sjónvarpsstöðvunum vegna þess að við erum að fara á hausinn........ í sumar vorum við í öllum fréttum um allann heim af því að við unnum næstum því Ólympíugullið í handbolta......... getum við ekki hent inn eins og einni fegurðardrottningu - ungfrú alheimur - til að kóróna þetta allt saman, höfum nú gert það áður....... ætti ekki að vera mikið mál!!!!
Þá erum við með besta íþróttafólkið, mesta fjármálavitið og fallegustu konurnar........ engin furða að við skulum ekki vera fleiri en 300.000.- eins og úthverfi í New York!!!!! Það er bara ekki pláss fyrir fleiri hérna!!!!
Talandi um handboltalandsliðið........ var ég búin að segja ykkur að ég sef hjá öllu liðinu eins og það leggur sig!!!! Eða þannig...... eða eiginlega já bara alveg þannig!!!!
Börnunum mínum áskotnaðist áritað plakat af handboltalandsliðinu og voru þau himinlifandi með það, vitandi hversu mikill handbolta unnandi faðir þeirra var nú......... Sérstaklega var einkadóttirin ánægð með það og vildi hún alveg ólm og uppvæg hengja það upp fyrir föður sinn....... og enginn annar staður var eðlilegri í hennar huga en á höfðagaflinn Ása megin í rúminu!!!! Hans staður, hans handbolti, hans "strákar". Gat ég ómögulega sett mig upp á móti þessu enda er mér eiginlega alveg sama þó ég sofi hjá þeim "strákunum".
Mér finnst bara fyndið að segja að ég sofi hjá landsliði Íslands í handbolta!!!!

sjáumst á morgun
Edda
knús og kossar Beta
Knús og kram
Dísa
Kvitt og kveðjur, Begga