Prófíll

  • Nafn: Frú Megabeib
  • Staður: On the Kleik

Auglýsing

Prófíll

  • Nafn: Frú Megabeib
  • Staður: On the Kleik

Prófíll

  • Nafn: Frú Megabeib
  • Staður: On the Kleik

Ég

Vinir eru gimsteinar lífsins

10. október 2008 klukkan 13:23
Ætla bara að setja inn eina vísu sem ég rakst á.
Á vel við núna.

Vísan er eftir Hjálmar Freysteinsson lækni á Akurreyri.

Gulli og perlum að safna sér,
sumir endalaust reyna,
vita ekki að vináttan er,
verðmætust eðalsteina.

Gull á ég ekki að gefa þér
og gimsteina ekki neina.
En viltu muna að vináttan er,
verðmætust eðalsteina.

Njótið lífsins, vinanna og helgarinnar!
Frú Megabeib
Beta skrifar ...
Þetta er sko flott og svo satt....góða skemmtun um helgina....sjáumst fljótlega....kossar og knús Beta
10. október 2008 klukkan 13:30
Begga Bauni skrifar ...
Falleg vísa og einmitt vert að minna fólk á hvað það á mikið ef það á vin/vini.
Góða fimmuhelgi.
Kv. Begga
11. október 2008 klukkan 06:58
Billi Bauni skrifar ...
 
Þetta er falleg vísa.
Ég vil gjarnan heyra hana aftur,
eins og Mikki refur sagði forðum.

En þetta passar kanski við ástandið eins og það er núna.

Ef ég man það ekki skakt
engan vil þó styggja.
En Kristur hefur sjálfur sagt,
sælla er að gefa en þiggja.

En þegar kraftur orðsins þverr
á andans huldu brautum,
gefa á kjaftin verðum vér
vorum skuldu nautum.
KN
11. október 2008 klukkan 11:59

Skrifa athugasemd

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Klukkan

Leit

Innskráningar kubbur

Flokkar