Prófíll

  • Nafn: Frú Megabeib
  • Staður: On the Kleik

Auglýsing

Prófíll

  • Nafn: Frú Megabeib
  • Staður: On the Kleik

Prófíll

  • Nafn: Frú Megabeib
  • Staður: On the Kleik

Ég

Millett-úlpur!!!!!

15. október 2008 klukkan 01:15
Er að missa mig þessa dagana í að skanna inn myndir frá þvi maður var í skóla hérna í gamla daga!!!!

Man hvað ég þurfti NAUÐSYNLEGA að fá Millett-úlpu.......... það áttu ALLIR í skólanum svona úlpu og ég VARÐ að sjálfsögðu að eiga svona úlpu líka!!!!!

Að sjálfsögðu áttu ekki alveg ALLIR svona úlpu........ en eiginlega næstum því!!!!

Vá hvað ég er fegin að vera búin með þennan aldur í lífshlaupinu hjá mér........ fannst þetta leiðindar tími......... gott að hann kemur ekki aftur!!!! Man mest lítið eftir honum.......... man bara að mér leið illa og var að hamast við að finna sjálfa mig........ gekk ekkert voðalega vel!!!!

En þið vitið þetta með heilann.......... hann er útbúinn alveg stórkostlegum varnaraðferðum........... t.d. man ég ekki eftir ýmsu og tel ég það vera hollt og gott að muna ekki eftir öllu.......

Man t.d. ekki eftir því að hafa nokkru sinni verið vikið úr tíma!!!! Enda fyrirmyndar unglingur!!!! Í minni minningu.......... mamma segir þó að mér hafi verið vikið úr skóla í heila viku........... man það ekki þó svo mér væri borgað fyrir það!!!!

Hvað átti ég að hafa gert heima í heila viku????? Þetta er algert rugl!!!!! Auðvitað mundi ég muna eftir því!!!!!

Ein vinkona mín man ALLT og njótum við hinar vinkonurnar góðs af því ........... þá spyrjum við hana bara ef við þurfum að fá upplýsingar............ hún man ekki eftir að mér hafi verið vikið úr skóla!!!!

Önnur vinkona mín man EKKERT......... og hún man eftir því að mér hafi verið vikið úr skóla!!!!!

Held að hún og mamma séu bara að rugla!!!!

En ég átti Millett-úlpu!!!!!!
Frú Megabeib
Guðrún Þorleifs skrifar ...
 
Ég átti ekki Millett úlpu, en Álafossúlpu átti ég og svo elskaði ég lopaspeysuna mina. Humm . . . sé það á þessu kvitti að ég hef verið sérlega íslensk í vali sem unglingur, því einu sinni átti ég líka leðurstígvél sem voru framleidd í skóverksmiðju á Akureyri og peysur úr Iðunn á Seltjarnarnesi og buxur saumaðar á saumastofum á Íslandi ;) En Íslendingar hættu að velja íslenskt . . . nema flíspeysur
15. október 2008 klukkan 04:37
Begga Bauni skrifar ...
Millet-úlpu varð maður náttúrulega að eiga, meira að segja í sveitinni austur á landi og þá brá maður bara á það ráð að panta sér eitt stykki úr útilíf ;o) Sveitaliðið ekki í vandræðum með að redda tískuvörunum til ná að vera svolítið "cool".
En segðu mér nú annað, fylgir það ekki sögunni af hverju þér var vikið úr skóla í heila viku, ég væri nú alveg til í að vita það, eheh
Endilega skelltu svo einni millet-úlpu-mynd af þér hingað inn (",)
Kv. Begga
15. október 2008 klukkan 10:44
dagny sylvia skrifar ...
 
hehe Millet.. var einmitt ad reyna d rifja upp nafnid um daginn.
man ekki hvort eg átti svoleidis... held samt... eina ljosgráa med svørtu á øxlunum... passar thad?
15. október 2008 klukkan 12:51
Beta skrifar ...
Þær hljóta að vera að plata...þér var ekkert vikið úr skólanum.:O).annars verð ég að segja að ég yrði ekki hissa ef þetta er satt:O)...man ekki aftir þessum Millet úlpum..enda er ég orðin svo gömul...:O( knús og kossar Beta
15. október 2008 klukkan 13:10
Alice skrifar ...
 
Hjemme hos mig lød mors sang altid "Bare fordi de andre har/må/skal................... udfyld selv resten, så er det ikke ensbetydende med, at du også ......... udfyld selv resten!". Øv, øv og øv! Er den dag i dag helt uvidende og tøjmærker og den slags, eller i hvert fald næsten. Mindes heller ikke denne tid i mit liv med glæde og er bare glad for, at man ikke spole tiden tilbage.
15. október 2008 klukkan 16:31
MAGGA DROTTNING skrifar ...
 
Millet er málið,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,og var málið.
Ég átti Don Cano og fékk svo loksins dökkbláa millet,,,hún var ógeð dýr örugglega að andvirði 66 norður í dag 36 þús( fínt já sæll) sá hana síðast inní skáp hjá mömmu í october sl þegar mamma flutti,,,,,,,,,,sumir geyma allt. En adidas körfuboltaskórnir eða hvítu með svörtu röndunum,, hvað segið þið um það.Ég var allavega hent útúr dönskutíma hjá Bjössa og látin sitja á ruslatunnu úti horni fyrir blaður.Gleymi því ekki.
15. október 2008 klukkan 19:39
Edda frænka skrifar ...
 
Ég átti aldrei Millet úlpu ;-(
Get ekki bloggað ... helv.. blog drasl síðan alltaf biluð hjá mér...pirrrr
kveðja í blogheima
15. október 2008 klukkan 22:57
Anna Aðalpæja skrifar ...
Anna AðalpæjaÓ já, ég borðaði hafragraut og soðinn fisk í HEILA VIKU til þess að eiga möguleika á 'Millet' úlpu, mamma mín fann það erfiðasta sem hún gat hugsað sér að láta mig gera...... svo að ég gerði mér grein fyrir hversu dýr þessi flík væri nú eiginlega !!!! Það er ekki langt síðan ég henti blessaðri úlpunni með heftiplástri í kross yfir einu gati.

Ég get alls ekki munað eftir þessari brottvikningu, né hvað þú áttir að hafa gert af þér til að verðskulda slíka refsingu....... En að þetta tengist Bjössa Dönskukennara kæmi mér ekki á óvart !!!! ég aftur á móti fékk 11með slaufu í einkunn hjá honum í dönsku !!!!

nananana na
Anna 5
17. október 2008 klukkan 10:54
Ósk Laufey skrifar ...
 
Sko loksins þegar ég eignaðist Millett- úlpu þá voru þær eiginlega komnar úr tísku :-) En ég var svo lengi að safna fyrir henni.........
En ég er alveg viss um að brottvikning þín snúist um þig og Bjössa kennara..........er eiginlega alveg viss.........eða næstum því,,,,,,,,,
knús ég.
17. október 2008 klukkan 19:07

Skrifa athugasemd

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Klukkan

Leit

Innskráningar kubbur

Flokkar