Prófíll

  • Nafn: Frú Megabeib
  • Stađur: On the Kleik

Auglýsing

Prófíll

  • Nafn: Frú Megabeib
  • Stađur: On the Kleik

Prófíll

  • Nafn: Frú Megabeib
  • Stađur: On the Kleik

Ég

Helgin liđin........

03. nóvember 2008 klukkan 16:21

Var ég alveg ákveðin í því á föstudaginn þegar ég slökkti á tölvunni að ég myndi ekki kveikja á henni fyrr en í morgun!!!!

Tókst það eiginlega alveg næstum því!!!! Þurfti bara að tékka á því hvort ekki væri næg innistæða á reikningum svo ég gæti boðið börnunum mínum í bíó!!!

Ferlega er erfitt að vera án tölvu - netsins og Facebook????  Hvernig fór maður að hérna áður fyrr?????

En þetta gerði það að verkum að ég hamaðist við að sauma allt sem ég hef ekki haft tíma til að sauma undanfarin ár sökum þess hversu upptekin ég hef verið að því að rúnta um á netinu!!!!

Brjálað að gera hjá frúnni......... var í góðum gír við að sauma húfu á einkadótturina þegar nálin tók uppá því að brotna!!!! Þetta er nú óforskammað........ verð að segja það......... hef aldrei fyrr brotið nál í þessari saumavél......... hef lent í því að brjóta nálar í öðrum saumavélum..... jafnvel saumað í fingurinn á mér og brotið nálina þar á eftir.......... en ekki brotið nál í þessari vél fyrr!!!!

Vissi sko alveg hvar ný nál var geymd....... inní kompu/saumaherbergi/strauherbergi/skógeymslu (varð að færa saumaaðstöðuna inn í stofu sökum gífurlegs plássleysis í saumaherberginu!!! þarf að fá stærri saumaaðstöðu)......... en málið var nú bara það að ég fann alls ekki neina nál!!!! ........ eða sko ég fann ekki kassann sem nálin er geymd í........

Mér er þá spurn: hver er tilgangurinn í því að geyma alla skapaða hluti til að nota þá einhverntímann þegar maður gæti haft þörf á því...... þegar maður hefur svo loksins þörf á hlutnum þá finnur maður hann ekki fyrir öllum hinum hlutunum sem maður þurfti nauðsynlega að geyma af því að það gæti komið að því að maður þyrfti kannski á honum að halda einhvern daginn......... er sko ekki alveg að skilja þetta!!!!

Tók mér því penna (eða blýant reyndar, það hljómar bara betur þegar maður segir penna) og blað í hönd og gerði framkvæmdarlista!!!! Legg ekki meira á ykkur!!!!!

Gerði plan yfir hvað ég ætlaði að gera í dag, og þar stóð sko ekki að ég ætti að fara aftur upp í rúm og kúra þegar ég væri búin að koma börnunum í skólann........ nei nei nei..........

- börnin í skólann
- pilates við sjónvarpstækið (jú keypti einhverntímann fyrir löööööööngu svona svaka fína Pilates CD, til að maður geti nú bara tekið ræktina heima....... það var einhverntíman í stundarbrjálæði þegar ég taldi sjálfri mér trú um að þetta væri eina hindrunin í lífi mínu fyrir því að ég væri ekki höj og slank, og jú svo var hann á svo svakalega góðu tilboði í sjónvarpsmarkaðnum)
- sturta
- morgunkaffi í næsta bæ
- heim áður en börnin koma heim
- stoppa í saumabúðinni og kaupa nýjar nálar
- sauma húfuna og bikiníið (eða allavega setja nýjann lás á bikikníið....... ætla sko ekki að lenda í því að liggja á ströndinni á Kanarý og vera búin að brjóta smelluna aftur og þurfa bara að vera þar á jullunum!!! Er búin að prófa það einusinni........ hef ekki áhuga á því að gera það aftur!!!!)
- elda mat (það verður reyndar auðvelt........ afgangur frá því í gær!!! Langaði svo svakalega í pörusteik að ég fór og keypti eitt stk. í Bónus. 2,7 kíló, legg ekki meira á ykkur!!!! Ætlaði nú að bjóða einhverjum í mat, en komst þá að því að ef ég myndi bjóða einhverjum í mat, þá væri engin leið að komast hjá því að taka til...... og því nennti ég sko ekki, heldur eldaði ég bara 2,7 kílóa pörusteikina handa mér og einkasyninum..... einadóttirin var að heiman í enn einu Hrekkjavökupartýinu!!! Þannig að það er sko nægur afgangur hér á þessum bæ.......... verð að finna einhverjar uppskriftir sem innihalda pörusteik........ svo við getum dundað okkur við að borða pörusteik út vikuna!!!!)
- hlusta á einkadótturina lesa
- horfa smá á sjónvarpið
- fara á skynsamlegum tíma í rúmið (og þá meina ég áður en það verður komið miðnætti í New York!!!!!)

Enn sem komið er gengur planið bara nokkuð vel ........... man reyndar ekki eftir að hafa skrifað neitt um að ég ætti að blogga í dag............. en skelli því inn á listann fyrir morgundaginn........ því frá og með núna verður sko gerður svona listi fyrir hvern einasta dag!!!!!!

......ég get svo svarið það........ maður gæti haldið að ég sé haldin slæmri puttræpu????

Frú Megabeib
Guđrún Ţorleifs skrifar ...
 
Kraftur í konunni svona á fótum og á fullu!!! Svaka ánægð með þig ;)
Gangi þe´r vel og mikið skil ég að þú þurfir stærra saumapláss. Ertu ekki með allr fimm í gangi ???

Kær kveðja á þig
03. nóvember 2008 klukkan 19:21
Alice skrifar ...
 
uhmmmmmm Flæskesteg - har svar på dit problem med al for stor steg. Du inviterer da bare os. Vi ææææælsker flæskesteg og gider heller ikke rydde op, så en hjemligt rod gererer ikke os, hæ,hæ. Ellers er det jo mortensaften snart. Men jeg tror nu nok vi vil vente med anden til den efterfølgende week-end. Et i din lange jeg bloggerellersikkeidagfordidet ikkestårpåminliste historie undrer mig. Kunne du ikke bare bruge én af de andre symaskiner? Må læse, læse, læse så over and out.
03. nóvember 2008 klukkan 21:23
Begga Bauni skrifar ...
Ég þyrfti nú eiginlega að fá þig í heimsókn til mín til að smita mig smá af saumavélanotkuninni. Ég þarf nefninleg að sauma "poka" utan um bílstólinn hans Knúts þar sem húsbóndinn er farinn að kvarta yfir því að hann skammist sín fyrir að vera á bílnum með stólinn svona útlítandi. En ég bara kem mér ekki í þetta verkefni :-S Ætti kannski bara að setja upp svona þarfaðgeralista og troða þessu þar inn, kannski það virki.
Það verður nú spennandi að sjá hvort þetta virki hjá þér að gera svona lista á hverjum degi OG fylgja honum líka ;o)
Kv. Begga bauni
04. nóvember 2008 klukkan 11:24
Edda frćnka skrifar ...
 
Sko, hættu bara að reyna að geyma eitthvað dót sem þú "gætir" þurft að nota seinna... því einmitt, það yfirfyllist allt af einhverju drasli sem enginn veit hvað á að gera við... betra að gera bara eins og ég, henda, henda og henda....
kveðja og gangi þér vel með plönin...
04. nóvember 2008 klukkan 21:54

Skrifa athugasemd

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Ţennan mánuđ: ...
  • Frá upphafi: ...

Klukkan

Leit

Innskráningar kubbur

Flokkar