Prófíll

  • Nafn: Frú Megabeib
  • Staður: On the Kleik

Auglýsing

Prófíll

  • Nafn: Frú Megabeib
  • Staður: On the Kleik

Prófíll

  • Nafn: Frú Megabeib
  • Staður: On the Kleik

Ég

Sofa - sefur - sófir - seifum

05. nóvember 2008 klukkan 10:42
Það er alltof gott að sofa!!!!

Það er að segja á morgnana............... ekki á kvöldin og ekki á nóttunni.......... fyrr en seint............ gott að sofa á morgnana og á daginn!!!

Ekkert plan gengur upp þessa dagana!!!!

Er að fara að út að borða með vinum mínum í kvöld.......... er líka búin að bjóða fólki í mat í kvöld........ hvernig á þetta að ganga upp????  Ekki hægt að fresta hvorugu!!!!

Þoli ekki sjálfa mig....... finnst ég alveg ómöguleg......... vonlaus.......... óábyrg........... löt......... já fullt af öðrum hlutum sem ég ætla nú ekkert að vera að setja á blað!!!!

..................er að fara á eitthvað vefsíðugerðarnámskeið á vegum VMST........... get alveg sagt það í hreinskilni að ég nenni því sko ekki!!!!!  En maður getur víst alltaf á sig blómum bætt!!!!

Er farin til tannlæknis...............
Frú Megabeib
Begga Bauni skrifar ...
vona að tannsi hafi verið góður við þig... svo vona ég líka að þú hafir fundið lausn á þessu með tvíbókunina, svona er að vera vinsæll og þá getur nú verið erfitt að henda reiður á því hvort maður var búinn að bóka ákveðinn tíma eða ekki ;o)
Orkustraumar og kærar kveðjur til þín yfir hafið
Begga bauni
05. nóvember 2008 klukkan 21:12
Stina skrifar ...
Elsku Linda - fékk tár í augun þegar ég las bloggið þitt í dag - þú ert sko ekkert að upptöldu....ekki dæma þig svona hart.
Mundu hvað okkur hinum finnst þú vera yndisleg persóna, hvorki ómöguleg, vonlaus, óábyrg né löt - og hvað okkur þykir vænt um þig.
Vildi óska þess að ég gæti eitthvað gert til að bæta líðan þína.......enn og aftur mundu hvað þú ert FRÁBÆR- alla þína kosti (sem ég nenni nú ómögulega að fara
að lista hér upp) . Óska þess svo oft að það væri ekki svona langt á milli okkar.
Baráttukveðjur til þín elskan mín - góða skemmtun á námskeiðinu......Knús Stína
06. nóvember 2008 klukkan 06:42
Guðrún Þorleifs skrifar ...
 
Var að spá í hvort það hafi verið prenvillupúki í þessu bloggi þínu. Allavega finnst mér að þú hafir átt að skrifa:
Þoli ekki sjálfa mig....... = þoli mig ( frábær )
finnst ég alveg ómöguleg......... = finnst ég geta allt mögulegt
vonlaus.......... = von
óábyrg........... = ábyrg
löt = flöt ( samanber flatur magi )

Frábært að þú skulir geta farið á þetta námskeið!!!

Kærar kveðjur frá þessari sem ætti að vera að læra ;)
06. nóvember 2008 klukkan 07:48

Skrifa athugasemd

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Klukkan

Leit

Innskráningar kubbur

Flokkar