Prófíll

  • Nafn: Frú Megabeib
  • Staður: On the Kleik

Auglýsing

Prófíll

  • Nafn: Frú Megabeib
  • Staður: On the Kleik

Prófíll

  • Nafn: Frú Megabeib
  • Staður: On the Kleik

Ég

Undarlegur dagur.

08. nóvember 2008 klukkan 02:00
Langaði sko ekkert að blogga í dag.
Í dag var mjög undarlegur dagur.
Gat ekki varist því að hugsa um hvað ég hefði verið að gera fyrir ári síðan.
Hrikalega er þetta leiðindar líf.
Búin að gera leiðið snyrtilegt og setti niður um 60 túlipanalauka með börnunum í dag.
Fáránlegt að vera með börnunum sínum í því að gróðursetja túlipana og snyrta leiði föður þeirra.
Væri skárra ef börnin væru eldri en 10 og 13......... kannski nær 40 og 43.
Söknuðurinn er ekkert minni og undarlegt að hugsa til þess að það skuli vera liðið heilt ár!!

Elsku ástin mín eina

Sakna þín................
Frú Megabeib
Guðrún Þorleifs skrifar ...
 
Æ... það er margt öðruvísi en gott væri.
En frábært hjá ykkur að setja lauka á leiðið. Verður fallegt þegar þeir springa út.
Kærar kveðjur
08. nóvember 2008 klukkan 07:11
Anna 5 skrifar ...
 
Svindl, svik og prettir
08. nóvember 2008 klukkan 08:43
Alice skrifar ...
 
"Den største Sorg i Verden her, Er dog at miste den, man har kjer".
St.St. Blicher, forfatter fra 1800-tallet

Ønsker så inderligt at der var bare et eller andet som kunne få din og børnenes sorg til at forsvinde med et enkelt lille bitte trylleslag!
08. nóvember 2008 klukkan 09:42
Magga fimma skrifar ...
 
Risaknús til ykkar, dúllurnar mínar
08. nóvember 2008 klukkan 09:47
Guðný skrifar ...
 
Elsku Linda

Hugsaði mikið til ykkar í gær.

Guðný x
08. nóvember 2008 klukkan 10:44
Beta skrifar ...
Hugsa mikið til þín þessa dagana...vildi að allt væri öðruvísi...
fullt af risaknúsum og kossum til þín og krakkana
Beta
08. nóvember 2008 klukkan 20:08
Auður Þorgeirs skrifar ...
 
Sæl Linda.. fæ oft tár í augun þegar ég les bloggið þitt. Lífið er oft ósanngjarnt við okkur og litlu sem við fáum ráðið.
Hugsið vel hvert um annað þið og börnin og njótið þess að vera saman.
Kveðjur austan af fjörðum, Auður fyrrum Sönderborgarbúi.
08. nóvember 2008 klukkan 22:43
Gígja skrifar ...
 
Á föstudaginn fann ég fyrir einhverjum miklum straumum... en var ekki viss af hverju....
Fór að sofa og þá kom Ásgeir...gerði mér ekki grein fyrir því að það var eitt ár liðið...
Þetta er erfitt og ég skil þig vel að það er erfitt að blogga á föstudaginn sem og aðra daga......

Risaknús til þín og til barnanna...
09. nóvember 2008 klukkan 08:18
Begga Bauni skrifar ...
Knús á ykkur öll.
Kv. Begga
10. nóvember 2008 klukkan 07:50

Skrifa athugasemd

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Klukkan

Leit

Innskráningar kubbur

Flokkar