Prófíll

  • Nafn: Frú Megabeib
  • Staður: On the Kleik

Auglýsing

Prófíll

  • Nafn: Frú Megabeib
  • Staður: On the Kleik

Prófíll

  • Nafn: Frú Megabeib
  • Staður: On the Kleik

Ég

Skil ekki RÚV!!!!!!!!!

10. nóvember 2008 klukkan 15:51
Það er gjörsamlega ofvaxið mínum skilningi þetta RÍKISÚTVARP/SJÓNVARP!!!!!

Skil ekki afhverju það er ekki hægt að hafa neytendaþátt í þessum miðli allra landsmanna!!!!

Er búin að skrifa Þórhalli og einhverjum fleirum þarna í RÚV en það virðist ekki vera neinn vilji fyrir hendi!!!! Einu svörin sem ég fæ eru þau að svona þáttur krefjist mikils undirbúnings!!!! Dísús, eru þetta ekki allt vant fólk sem er að vinna þarna hjá RÚV??? Það ætti ekki að vera mikið mál að hrista einn svona þátt framúr erminni....... ég á frekar erfitt með að sjá það. Með allt þetta starfsfólk, alla þessa tækni, allt þetta aðgengi að neytendum........ er ekki að skilja þetta!!!!

Ég skrifaði Þórhalli bréf.
Hann var snöggur að svara (samdægurs).
Ég skrifaði til baka hugmyndir mínar.
Hann svaraði ekki.
Geir Haarde kom í sjónvarpið og sagði "góðir Íslendingar"
Hélt ég að Þórhallur væri að jafna sig.
Beið þolinmóð.
Skrifaði aftur bréf til að minna á mig.
Skrifaði aftur og aftur og aftur bréf.
Bjó til nokkrar auglýsingar til að vekja meiri áhuga.
Samtalst skrifaði ég 8 bréf.
Þórhalli tókst að svara mér þegar ég sendi bréfið á hann og útvarpsstjóra og einhverja fleiri hjá RÚV sem ég pikkaði út af netfangalistanum þeirra.
Sagði hann hugmyndina góða en hún krefðist mikils undirbúnings.
Skrifaði ég til baka að mér þættu það fátækleg svör.
Hef ekki heyrt í honum síðan.
Hef ekki séð neytendaþátt auglýstann í sjónvarpinu!!!!

Við skulum átta okkur á því að ég er ekki að finna upp hjólið............. það var byrjað á því fyrir 4 árum að reyna að láta þennan bolta rúlla, ekki ég heldur aðrir ............ þannig að RÚV er búið að hafa í það minnsta 3-4 ár til að undirbúa, skipuleggja og hanna eitt stk. neytendaþátt!!!!!

Þarf meiri undirbúningstíma???? Ég bara spyr????

Asnar!!!!!

Eins og hinn ofvirki bróðir minn segði: "þetta eru allt fífl og fávitar, nema ég og........ "

Takk fyrir kveðjurnar og kvittin........... eru mér ómetanlega mikils virði.......... bara svo þið vitið það!!!!
Frú Megabeib
Anna 5 skrifar ...
 
Já, jæja, nú .......
Nú tökum við höndum saman við sem komum hér við og lesum pistla Frú Megabeib........ nú skrifum við hvert og eitt 8 stykki bréf á alla yfiirmenn íslenskrar dagskrárgerðar RÚV......... og krefjumst þess að á þessum síðustu og verstu kr... tímum verði gert eitthvað fyrir neytendur svo að krónan dugi sem best ...... þar til annar gjaldmiðill verði tekinn upp.
Sameinuð stöndum vér .......sundruð föllum vér ( enn lengra niður )
10. nóvember 2008 klukkan 17:29
Lára María skrifar ...
Sendu bréf á stöð 2 ;)

knus til ykkar
11. nóvember 2008 klukkan 09:15
Beta skrifar ...
Já samála Láru...sendu á stöð 2...vertu ekki að eyða tímanum í svona fífl...
Knús á þig frá mér:O)
11. nóvember 2008 klukkan 13:43
Guðrún Þorleifs skrifar ...
 
Er Skjár 1 "dauður"?

Asnar eru þetta hjá RUV!!!

En að skrifa í blöðin og segja að RUV hafi ekki áhuga á að fara af stað með neytenda þátt.
Humm... opnaðu moggablogg og notaðu það...
ha ha ha ha . . .
Gætu komið viðbrögð .þar erf þú linkar við kr....fréttir ;)

KNÚS
12. nóvember 2008 klukkan 07:25
Alice skrifar ...
 
Jep, konkurrence er altid godt skriv til Stöd 2.
12. nóvember 2008 klukkan 07:26
Þóra beibí skrifar ...
 
Já eða skjá 1.
Þá geta allir horft án þess að borga fo....ing 5500 á mán.
Þá var nú RUV óheppið að hafa ekki viljað setja Næturvaktina í loftið, þeir sjá ábyggilega eftir því .
Sæll þegar það eru bara böns af guggum sem horfa alltaf á .
Láta þá bara fá annað sem þeir sjá eftir að að hafa ekki viljað sýna.

Hilsen Þóran
12. nóvember 2008 klukkan 20:22

Skrifa athugasemd

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Klukkan

Leit

Innskráningar kubbur

Flokkar