Prófíll

  • Nafn: Frú Megabeib
  • Staður: On the Kleik

Auglýsing

Prófíll

  • Nafn: Frú Megabeib
  • Staður: On the Kleik

Prófíll

  • Nafn: Frú Megabeib
  • Staður: On the Kleik

Ég

Þokkalega!!!!

08. desember 2008 klukkan 14:57
Tjúttið búið!!!!

Ég get svo svarið það ef ég vissi ekki betur þá myndi ég halda því fram að ég sé að verða gömul!!!!

Þetta er ekkert grín............ ég hreyfi mig ekki alla vikuna........ og svo er farið á tjúttið og þegar ég kemst á dansgólfið þá kemst ég bara ekki af því aftur!!!!

Það þýðir að það eru tveggja til þriggja tíma stanslaus hreyfing!!!! Mega erobic tími tekinn í nefið!!!

Ég komst að því um helgina að það er hörkupúl að dansa svona stanslaust........... ég tala nú ekki um þegar maður er búinn að brjóta annan hælinn á skónum sínum!!!!

Lenti sem sagt í því að brjóta hælinn.......... gerði það sko alveg sjálf......... var á pinnum........ örmjóum pinnum......... og þar sem ég var á dansgólfinu var þarna ungur drengur (hvað er þetta með þessa ungu drengi???) sem komst að því að það var eitthvað erfitt fyrir hann að hafa hendurnar á sér fyrir sig!!!! Allavega fannst honum meira spennandi að hafa hendurnar á sér á mínum prívat stöðum........ efri og neðir helmingi!!!

En þetta eru MÍNIR prívat staðir og kærði ég mig ekki um að hann væri endalaust með sínar hendur þar........ var ég búin að dansa frá honum...... var ég búin að ýta höndunum á honum all oft í burtu.......... var ég búin að ýta honum öllum í burtu frá mér ......... en ekkert gekk!!!

Fyrr má nú aldeilis fyrr vera!!!!

Endalaust káf......... ég endaði meira segja á því að slá hann utanundir.......... geri þetta ALDREI!!!!

Ekkert skildi ungi drengurinn........ svo ég tók mig til og trampaði ofan á fæturnar á honum....... á pinnunum...... í þeirri von að hann myndi kannski missa eins og eina tá eða svo og yrði þá óhæfur til frekari dans og káfs!!!!

En ........ það eina sem ég hafði uppúr því var að brjóta hælinn!!!!!

......... ætli ég geti farið til skósmiðs með skóinn????
Frú Megabeib
Guðrún Þorleifs skrifar ...
He he he .... og ekki fara sögur af örlögum (endalokum)unga drengsins.

Já, já , farðu bara með skóna til skósmiðs en ekki segja afhverju þetta gerðist, svona ef ske kynni að skósmiðurinn væri faðir eða afi "unga drengsins"
Þú er ótrúleg!!!


Knús frá snjólausri SDB
08. desember 2008 klukkan 16:52
Anna 5 skrifar ...
 
Það er nú skítt ef maður þarf að hafa með sér piparúða á dansiball ............... hvað er þetta með þig og Unga drengi ?????
Er þetta nú ekki staðfesting á að þú ert langt frá því að verða gömul ........... eða kannski vill ungdómurinn þroskaðar konur með sögu ?????
kvitt kveðjur og þessi vanalegu knús / kiss
Nú fer ég í mína leikfimi ..... með tónlist og öllu !!!
Anna5
08. desember 2008 klukkan 17:10
Torsteinn Runar skrifar ...
Hae, hae. Kiktu endilega a nyjustu frettir af mer. Tad er svo sannarlega stud herna, hehe. Verd allavega med minn islenska sima a morgun.
Kv. Broi
08. desember 2008 klukkan 21:35
Dísa skrifar ...
Þú ert alveg yndisleg Linda....það verður seint frá þér tekið. Þú ert greinilega vel gjaldgeng á kjötmarkaðnum ennþá..að minsta kosti hjá þeim í yngri kantinum he he. Ég vona að það sé hægt að laga fína skóinn þinn.
Knús og kram
Dísa
09. desember 2008 klukkan 07:00
Hrund skrifar ...
 
ha ha ha! en þrátt fyrir að þetta sé nú alveg óþolandi ágengni, hlýtur það að sama skapi að hafa verið ákveðin styrkur fyrir sjálfstraustið!!! já og svo hljómar þú ekkert gömul. frekar ung af þessari færslu að dæma!!! gömlu konurnar hreyfa sig daglega... niðrí apótek og heim aftur og þegar þær slysast á dansleik, kemur engin ungur piltur til þeirra að reyna við þær!!!
09. desember 2008 klukkan 10:03
Edda frænka skrifar ...
 
hehehe... það er nú ekki amalegt að eiga unga aðdáendur... og kannski óþarfi að brjóta á þeim tærnar.. !!!! nema þær og hann hafi verið svakalega ljótt á að líta...
ég kalla þig líka góða að endast í 2 tíma á gólfinu, úfff hugsa að ég kæmist kannski í gegnum eitt lag... verðum að halda labbinu áfram, sýnist samt að það verði ekki fyrr en eftir jól, og þá er BANNAÐ að skrópa...
kveðja
09. desember 2008 klukkan 23:16
Hann hefur örugglega haldið að hann væri hrikalegt krútt.. ARGH.
Áttu hælinn ennþá eða situr hann fastur í ristinni á apa-barninu?
15. desember 2008 klukkan 22:33

Skrifa athugasemd

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Klukkan

Leit

Innskráningar kubbur

Flokkar