Hvar endar þetta???
Þjófur að nóttu???
Nei segi nú bara svona!!!
Alltaf nóg að gera hjá frúnni............ styttist í Kanarý og ég er ekki ennþá búin að kaupa gjaldeyri eða fara í ljós!!!! Hmmmm.......... er ekki að verða kominn tími á það ......... svona áður en ég verð farin!!!
Það var hringt í mig um daginn frá ferðaskrifstofunni.......... þegar konan kynnti sig fékk ég smá áfall......... shit var búið að aflýsa ferðinni minni???
Nei nei hjúkkitt sem betur fer!!! Bara búið að breyta flugtímanum þar sem flugfélagið sem ætlaði að fljúga með okkur í sólina er farið á hausinn!!!! Nýtt flugfélag....... nýr flugtími!!!! Við förum!!!!
Elsku amman mín dó í nótt........ mikið er ég sátt fyrir hennar hönd........ hennar tími var kominn.
Það vekur upp blendnar tilfinningar....... fara í jarðarför, seinasta jarðarför sem ég fór í var hjá manninum mínum......... kistulagning........ kirkja........ erfidrykkja......... þetta er skrítið.........
Geri ekkert annað þessa dagana en naga á mér neglurnar........... og mér er svooooo illt í puttunum!!!!
Átti að fara á fund í gær til að sækja um stuðningsfjölskyldu fyrir okkur fjölskylduna......... steingleymdi því!!!! Svaf bara........ enda þreytt kona!!!! Er ennþá að bíða eftir að konan hringi í mig til að gefa mér nýjann tíma!!! Ætli hún sé farin úr vinnunni núna????
Hef ekkert heyrt af atvinnuviðtalinu......... hann er náttla ennþá að jafna sig maðurinn á að hafa hitt mig!!! Nei segi nú bara svona...........
En það var hringt í mig í dag og mér boðin vinna!!!!
Jú jú þetta gerist á Íslandi í dag....... og ég spurði ofur varlega:"hvenær byrjar sú vinna???" "í gær" svaraði konan!!! Wów sá þetta sko alls ekki fyrir!!!!
Ég varð frekar vandræðaleg og sagði henni að ég væri að fara erlendis og ég gæti ekki byrjað fyrr en eftir áramót!!!! Heldur þú að það sé!!!
En ég ætla að fara á föstudaginn og tala við konuna og finna út hvort það henti bara ekki súper dúper vel að ég byrji bara strax eftir áramótin, sólbrún og sæt!!!! Efa það ekki eitt sekúndubrot að það mun hafa mestu áhrifin að ég verði sólbrún og sæt!!!! Þá vilja þau fá mig........ ekki spurning!!!!!
Erum byrjuð að gera lista yfir hluti sem við ætlum að taka með okkur á Kanarý........... frétti reyndar af einni sem hafði tekið með sér dúnsængina sína og þakkaði því að hafa hreinlega ekki dáið úr kulda yfir nóttina því hún hafði dúnsængina sína!!!!
Ég ætla ekki að pakka dúnsæng....... hvorki einni eða fleirum!!!
.............. eða háhæluðum pinnaskóm!!!!!

Samhryggist þér með ömmuna þína.
Er sko alveg viss um að þessi með vinnuna handa þér bíður þar til þú kemur til baka sólbrún og söd(sætust). Ætli þetta sé eitthvað spennó vinna. Hvernær er það sem þið farið, náum við ekki að hittast áður !!
Knús í krús
Maggan
Er ekki málið aðtaka ofnæmistöflur? Virkar fínt á Ingunni pingunni, hún er með sólarexem. Í apótekum á Kanary færðu allskonar gott stöff vegna sóraexemis. Byrjaðu á eh fyrirbyggjandi. Hjálpar meira en að ætla að bjarga málaunum þegar allt er komið í "voða".
Ef stuðningsfjölskyldukonan hringir ekki þá hringir þú og segir að þú hafir sofið þetta af þér vegna þreytu og þurfir því hjálp hið fyrsta.
Trúi ekki öðru en að þú sannfærir konuna með vinnuna, með sjarmanum þínum.
Þegar ég var að fara til Kanarý í denn (þegar ég bjó á Ísl. þá þurfti maður á því að halda) þá tók ég með mér viskustykki. Það var aldrei svoleiðis í þessum hótelíbúðum. Þegar við vorum þar um jól þá tók ég með okkur jólamat til að hafa á aðfangadagskvöld og svo var ég með einn jólalegan hlut. Það var alveg nóg, jólin voru í huga okkar og hjörtum. Mjög gaman.
Knús
Heppin. vinnan. Eða hvað? Eitthvað skemmtilegt?
Getur verið að þú hafir sofið ómeðvitað viljandi yfir þig? Kannski hrædd við að taka þetta skref núna?