Prófíll

  • Nafn: Frú Megabeib
  • Staður: On the Kleik

Auglýsing

Prófíll

  • Nafn: Frú Megabeib
  • Staður: On the Kleik

Prófíll

  • Nafn: Frú Megabeib
  • Staður: On the Kleik

Ég

Uppskrift........... já já já!!!

16. desember 2008 klukkan 12:03

Ég get svo svarið það.......... mér líður eins og svakalega ábyggilegri húsmóður í austurbænum!!! Sem er búin að fara í gegnum öll 5 stig húsmæðraskólans og búin að útskrifast með miklum sóma!!!!

Ég að fara að gefa uppskriftir!!!! Aldrei vitað annað eins!!!!

En hér kemur hún........... ykkur til mikillar gleða:

Fyrirfram aðvörun, það eru undarleg málin í þessari uppskrift, ég reyni nú oftast að halda mig við þau, en verð að játa að oft slumpa ég bara á þetta!!!!

Hnetu og súkkulaðibitakökur a´la Linda;

190 gr smjörlíki
170 gr sykur
170 gr púðursykur
2 egg
340 gr hveiti
1tsk salt (það er semsagt henni sem er sleppt þegar maður notar salthnetur!!!)
1 tsk matarsódi
100 gr hnetur
1 1/2 (150 gr) suðusúkkulaði.

Hrærið öllu nema hnetunum og súkkulaðinu, vel og vandlega saman.
Allar ábyggilegar húsmæður byrja á að þeyta smjörlíki og sykur, bæta því næst eggjunum í (gott ef þau eru við stofuhita) og að lokum hveitinu og matarsódanum. Nei elskurnar mínar........ bara slumpa þessu í ....... það geri ég!!!

Hneturnar og súkkulaðið saxað - ég saxa þetta alltaf stórt, því ég er svo löt að ég nenni ekki að eyða tíma í að saxa hnetur og súkkulaði, svo er það bara miklu betra í kökunum!!!!

Svo er þessu skellt á plötu - með teskeið - með millibili því þær renna út og verða alveg flatar!!! ........og svaka góðar!!! Þær eru linar þegar þær koma úr ofninum en um leið og þær kólna verða þær stökkar og góðar!

Hitinn??? Svona 175°c - þangað til þær eru tilbúnar!!!!!

Borðaðar stanslaust fram að jólum........ og ekkert auðveldara en henda í eina uppskrift í viðbót!!!!

Njótið vel og lengi.......

.................. ég er farin að þvo, pakka, versla, fara í jarðaför og þrífa!!!!

Frú Megabeib
Guðrún Þorleifs skrifar ...
Takk fyrir uppskriftina, en ég verð að segja að mér hefði þótt þægilegra að fá þetta fullbakað til mín. Ég verð að segja það.

Gott gengi í dag.
16. desember 2008 klukkan 12:45
það fer líklega svo að ég mun baka eina smákökusort fyrir þessi jól.
Hafið það ofsalega ofsalega gott elskan mín þarna úti. Njótið vel og slappið af. Mun sakna þín samt. Í alvöru! Skrítið.
Verðið þið fram yfir áramót í burtu?

Gleðileg jól. knús og kossar
16. desember 2008 klukkan 16:15
Anna 5 skrifar ...
 
Takk sömuleiðis vinkonan mín.
Alveg frábær dagur og svakalega gómsætar smákökur í ábæti. Farin að sakna þín strax og veit að við komum okkur saman um marga svona daga á nýju ári.
Svakalega skemmtilega og góða ferð, njótið jólanna á nýjum stað.
Sóla - jóla kveðjur
Anna og strákarnir.
16. desember 2008 klukkan 22:14
Þóra Sig. skrifar ...
 
Takk fyrir að eyða tíma í að setja inn uppskriftina (eins og þú hafir ekki nóg annað að gera:) ), þessi verður bökuð hér í ár, ekkert smá girnileg og en og aftur góða ferð í sólarlandið og god jul !
16. desember 2008 klukkan 22:30
Hafdís skrifar ...
 
Mér varð svo mikið hugsað til þín/ykkar....svona meira en gengur og gerist, sennilega er það árstíminn, langaði bara að segja þér það. Mér finnst þú ótrúlega dugleg og börnin þín meiga vera stolt af því að eiga þig að móður, langaði líka að segja þér það.
Vona svo sannarlega að þú hafir það gott.
Kveðja og knús frá Sønderborg.
Hafdís
16. desember 2008 klukkan 23:30
Hafdís skrifar ...
 
P.s flott mynd af þér.
16. desember 2008 klukkan 23:31
Edda frænka skrifar ...
 
takk fyrir uppskriftina og góða ferð í sólina....
Gleðileg Jól
17. desember 2008 klukkan 00:19
dagny sylvia skrifar ...
 
takk ædislega f uppskriftina :) hun var algjørlega skotheld... klikkadi alls ekki... ummm smakkst frabærlega :)
enn og aftur takk :)
og goda ferd i solina.
k.kv.
17. desember 2008 klukkan 07:12

Skrifa athugasemd

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Klukkan

Leit

Innskráningar kubbur

Flokkar