Prófíll

  • Nafn: Frú Megabeib
  • Staður: On the Kleik

Auglýsing

Prófíll

  • Nafn: Frú Megabeib
  • Staður: On the Kleik

Prófíll

  • Nafn: Frú Megabeib
  • Staður: On the Kleik

Ég

Stoltur bíleigandi!!!!

05. janúar 2009 klukkan 21:05
Ég eignaðist bíl í dag.......... reyndar er ég nú búin að aka um á honum í tæp 3 ár......... en í dag er ég loksins orðinn löglegur eigandi að bílnum!!!! Í dag eigum við Lýsing ekki bílinn saman lengur........ heldur á ég hann ALEIN!!!!

Er komin á námskeiðið......... þetta lítur bara vel út......... maður getur alltaf á sig blómum bætt, er það ekki annars??? Verst að nú get ég ekki sofið lengur á morgnana....... og ég hélt að þetta tæki bara eina viku....... ekki málið að halda það út....... en ......... svo er blessað námskeiðið bara heilar 2 vikur!!!!! Ég held það nú líka út ekki satt???? Því ég get ALLLLLLT!!!!

Þannig að framundan er að taka uppúr töskunum....... ekki eins og ég nenni því!!!! Þá þarf ég að fara að þvo og eins og allir vita sem þekkja mig, þá leiðist mér alveg einstaklega mikið að þvo!!!! En það er kannski alveg eins gott að gera það og koma þessu frá......... er bara virkilega ekki að nenna því!!!!

Pylsur í kvöldmatinn....... nenni heldur ekki að elda......... sérstaklega þar sem ég er ekki búin að elda í einar 3 vikur eða svo.......... afhverju getur ekki verið ódýrt að fara út að borða á Íslandi eins og víðast hvar annarsstaðar í heiminum??? Allavega þegar ég horfi á bíómyndir er þetta lið alltaf að fara út að borða og þá gildir einu hvort liðið sé sárfátækt eða vellauðugt!!!!

Annars líður mér eins og ég sé vellauðug........ fékk fullt af vöxtum frá bankanum mínum, skulda ekkert nema myndavélina (sem kostaði 140 evrur) eftir Kanarý ferðina og svo á ég yndisleg heilbrigð börn og þak yfir höfuðið og mat til að borða...........

............. og eitt stk. bíl!!!!!!
Frú Megabeib
Júlla skrifar ...
 
Velkomin heim!!! Gleðilegt árið og allt það. Frábært að heyra hvað þið eruð búin að hafa það gott, áttuð það svo sannarlega skilið.
Gangi þér vel að vakna á námskeiðið. Hugsaðu bara þegar þú liggur uppí rúmi kl 7 og nennir ekki frammúr, hvað þú ert nú heppinn að vera
ekki mætt út í kaldan bílinn og vera að keyra Kjalarnesið hihi. Gott að búa á skaganum.....eða....ekki???
Vonandi verður hittingur fljótlega. Missti af partý hjá Elmu og Gilsa 27:-( Það hefur nú örugglega ekkert verið gaman í því partýi, vantaði okkur hihi

Kveðja af skaganum
05. janúar 2009 klukkan 23:15
Júlla skrifar ...
 
OMG ég gleymdi að óska þér til hamingju með bílinn. Ég á einmitt eitt stk. með Lýsingu vinkonu minni :-(
05. janúar 2009 klukkan 23:16
VELKOMIN HEIM OG TIL HAMINGJU MEÐ AÐ VERA ORÐINN BÍLEIGANDI. Geri aðrir betur.

Ég er sammála þér; Þú getur allt!
05. janúar 2009 klukkan 23:28
Begga Bauni skrifar ...
Gleðilegt nýtt ár!!!
Til hamingju með að verða orðin bíleigandi!!!
Gangi þér vel að vakna á námskeiðið og auðvitað geturðu það, alveg eins og allt annað.
Drífðu þig svo að þvo þvottinn og hættu að velta þér upp úr því að ekki sé hægt að leyfa sér að fara út að borða alla daga á Íslandi, þetta með að elda matinn venst vonandi fljótlega, eftir þessar þrjár vikur í lúxusnum.
Kær kveðja, Begga
06. janúar 2009 klukkan 08:09
Guðrún Þorleifs skrifar ...
Hej du!
Hef heyrt að skynsamlegt sé að drífa frekar hlutina af en að eyða ómældum tíma í að nenna þeim ekki. Hef bara heyrt þetta ;o)
Hér er allt í rólegheitum, maður er bara að spá í hlutina. Annsi skemmtilegt ;o)
Þarf sam að fara að taka niður jólaskrautið ef ég skyldi nú fara eh.
Hvers konar námskeiði ertu nú á?
Knús
06. janúar 2009 klukkan 11:31
Elsa Dögg skrifar ...
 
Til lukku með bílinn.
kv.
Elsa Dögg
06. janúar 2009 klukkan 15:13
Edda frænka skrifar ...
 
Takk fyrir síðast og aðstoðina... og til hamingju með að eiga bíl, ég á minn ekki enn ;-/
kveðja
06. janúar 2009 klukkan 23:25

Skrifa athugasemd

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Klukkan

Leit

Innskráningar kubbur

Flokkar