Er frúin að verða gömul???
Ég ætla nú ekki að halda því fram að ég sé þunn tvo daga í röð........... en ég er gjörsamlega lurkum lamin eftir helgina!!! ...... ég er kannski bara að verða gömul........... tékka á því næstu helgi ....... ef ég verð svona lurkum lamin þá líka......... þá er ég orðin gömul, engar afsakanir með það lengur!!!!
En það verður erfitt að toppa þessa helgi....... sem endaði í hreindýrasteik og 15.000.- króna rauðvíni í 6 manna partýi klukkan 7 að morgni í blokk í Breiðholtinu!!!!!
Ó mæ god hvað það var gaman!!!!!
Fór ekki nakin........ he he he..... ætti að prófa það einn daginn....... geri það kannski bara um næstu helgi, get ómögulega farið í bæinn tvær helgar í röð, í sömu fötunum!!!!!
Nú er ég gjörsamlega andlaus ..... held ég verði að leggjast í sófann ......... þarf samt að finna út hvað ég á að gefa blessuðum börnunum mínum að borða í kvöldmatinn......... er ekki að nenna því!!!!
Er búin að komast að því að uppáhalds maturinn minn er matur sem einhver annar eldar handa mér!!!!
......... þó það sé klukkan 7 að morgni!!!

Veit um a.m.k. einn sem finnst ókeypis matur bestur ;) Það er sko dani ;)
Knús
Annars finnst mér líka bestur matur sem ég þarf ekki að elda sjálf, ég skal alveg borga fyrir hann, en það má einhver annar gjarnan taka það að sér að elda hann.
Kv. Begga
Mér finnst líka popp sem annar poppar alltaf betra en það sem ég poppa. Poppedípopp....
Auðvitað geturðu ekki farið tvisvar í sömu fötunum í bæinn ;o)
Til hamingju með vel heppnað námskeið. Mér veitti nú ekkert að því að skipuleggja líf mitt betur.