Kitchen Aid - blandarinn góði!!!!!
14. janúar 2009 klukkan 17:29
Ég er þeirrar trúar að suma hluti eigi maður að velja af gaumgæfni og kaupa gæða/merkja vöru ef maður telur að það sé betra.
Flesta hluti .......... sama hvort um er að ræða föt, húsbúnað eða bíl....... kaup ég af því að mér finnast þeir flottir og gildir þá einu hvort þeir eru merkjavara eða ekki!!!
Þegar Ási minn veiktist lét ég gamlan draum rætast og keypti mér Kitchen Aid blandara!!! Hefði svo oft getað farið út í búð og keypt mér ódýran blandara...... en mig langaði bara í svona Kitchen Aid blandara....... mér finnast þeir flottastir!!!! Svo ég beið í mööööörg ár eftir að geta eignast hann!!!!
Þeir eru heldur ekki gefins........ hefði getað keypt um það bil 3 til 5 ódýra blandara ef ég hefði frekar viljað það ........ heldur en Kitchen Aidinn en mig langaði bara í Benzinn í blöndurum.
Þar sem mikil heilsusveifla fór í gang á heimilinu þegar Ási veiktist....... komst ég að því að ekkert minna dygði en kaupa það besta, handa besta manninum í heimi......... og fór því og keypti Kitchen Aid blandara til að geta bruggað ofan í hann hina ýmsu drykki....... með og án hvítlauks!!!
Sællar minningar braut ég einhvern dims þarna sem nauðsynlegur er til að snúa spöðunum ......... Ási minn fór af stað og fékk nýjann með það sama....... þurfti að sjálfsögðu að borga fyrir það......... og þau skilaboð að maður yrði að fara varlega og ekki mætti kannan hoppa ........ eins og hún hafði gert hjá mér....... því þá myndi stykkið brotna!!!
Eins mátti ekki setja könnuna í uppþvottavélina því þá færi olía og eitthvað jada jada bla bla bla og ég veit ekki hvað og hvað........ þannig að konan sem alltaf setur ALLT í uppþvottavélina er búin að þvo könnuna samviskusamlega upp síðan!!!! Það eina sem þvegið er upp í höndunum á þessu heimili er blandarinn og skurðarbrettið frá IKEA ....... það má heldur ekki fara í uppþvottavélina!!!
Mér er mjög annt um blandarann minn....... mér finnst hann flottur og ferlega góður........ svo er hann líka það síðasta sem við hjónin keyptum inn á heimilið okkar saman!!!!
Svo gerðist það um daginn að ég var að þrífa blandarann........ laggði hann á hvolf til að koma snúrunni betur fyrir undir honum að þegar ég snéri honum við .......... þá var þetta dims þarna aftur brotið!!!!
Skil ég nú ekki hvernig það gat skeð........ ég er búin að fara ofur varlega með blandarann minn síðan ég braut þetta síðast og ekki hefur kannan hoppað í eitt einasta skipti síðan þá........ ætlaði sko ekki að lenda í þessu aftur!!!!!
Vantaði svo mikið að geta sent Ása minn aftur niður í Einar Farestveit & Co.hf. til að fá nýjann dims..... en að sjálfsögðu var það ekki hægt........ get þá bara farið með hann sjálf....... ekki málið...... en hvert??? Vantaði bara að spyrja hann að: Fórstu bara í afgreiðsluna? Hvað sagðir þú við starfsfólkið? Kostaði þetta ekki 850 kall??? ..... en auðvitað veit ég að ég fæ engin svör!!! Pirr pirr....... eitt af svona smáum pirr pirr hlutum sem koma upp í dagligdagen!!!
Nema hvað að ég skunda þarna niður í Einar Farestveit & Co.hf. í Borgartúninu.......... verð að segja að mér hefur alltaf leiðst þessi verslun........ veit ekki afhverju........ en það er bara eitthvað við hana get ekki sett fingur á það....... en ég ákvað nú samt að kaupa blandarann minn þarna á sínum tíma, frekar en Elko...... eingöngu sökum þess að þetta er umboðið fyrir Kitchen Aid!!!
Ég kem inn og tek blandarann úr pokanum og segi að þetta hafi brotnað.
Afgreiðslukonan byrjar á því að spyrja mig að því hvort að ég setji könnuna í uppþvottavélina..... ég var fljót að svara....... því ég vissi að hún myndi spyrja....... hún náði varla að sleppa orðinu!!! Auðvitað ekki....... það má ekki!!!!
Hún spurði hvort ég setti ekki alveg örugglega frosna ávexti niður um litla gatið á toppnum...... ég svaraði já...... en einn í einu!!!
Hún spurði hvort ég setti möndlur í blandarann!!! Ég svaraði já....... því ég geri það oft og iðulega ..... því það er svo gott og hollt........
Jáááá ....... sagði búðarkonan...... setur þú einhvern vökva með???
Ég horfði í forundran á hana því auðvitað set ég ekki vökva með möndlunum...... þá hakkast þær ekki!!!!
Það er það sem hefur skeð hjá þér, sagði þá búðarkonan, þú verður alltaf að setja vökva með!!!!
Á vélinni er þar til gerður takki til að hakka niður ...... hvað á að hakka niður veit ég ekki en alla vega ekki möndlur!!!!
Hún sagði við mig að þetta væri BLANDARI ekki MATVINNSLUVÉL......... hmmmmmm
Ég svaraði henni nú bara að ég myndi ekki kaupa þennan BLANDARA í dag ef ég væri að kaupa mér blandara.... ég hefði talið að ég væri að kaupa gæðavöru...... en mér fyndist það alls ekki vera svo!!!!
Hún snéri uppá sig og fór með tækið á bak við og á leiðinni sagði hún að BLANDARINN væri notaður víða á veitingarhúsum og ekki væri það neitt vandamál!!!
Well......... ég er ekki veitingahús ...... ég er ekki kokkur..... ég er ekki framleiðandi BLANDARA........ en mér finnst bara algert lágmark að það sé hægt að nota tækið í það sem ég keypti það í upphafi!!!!!
Ekki fékk ég að vita neitt um þessa annmarka BLANDARANS við kaupin!!!
Hún kom til baka og rétti mér blandarann og sagði: þetta gera 1450.- krónur!!! Ég spurði ertu ekki að grínast í mér??? Þetta stykki kostaði 850.- krónur fyrir ári síðan!!!
Þegar hér var komið sögu voru fleiri starfsmenn komnir á leiksviðið...... tveir karlmenn sem stóðu og töluðu saman og ein kona sem fylgdist með samskiptum mínum og búðarkonunnar!!!
Þær snéru sér hvor að annarri og sögðu ..... þetta er ekki búið að hækka lengi, bara ekki síðan þær byrjuðu!!!!
Já já allt í lagi með það.......... ég borgaði og á leiðinni út sá ég að þeir eru með ísskápa...... þar sem ísskápurinn minn er að gefa upp öndina ákvað ég að kanna það hvort ekki væri ísskápur þarna sem ég gæti hugsað mér .........
Ég rölti um búðina...... opnaði ísskápa......... leitaði að verði........ opnaði fleiri ísskápa........ á meðan var starfsfólkið að spjalla saman og fylgjast með hverri hreyfingu minni!!!! Ekki einn af starfsmönnunum svo mikið sem talaði við mig eða sýndi því minnsta áhuga að aðstoða mig við að finna verð eða reyna að selja mér ísskáp!!!! Mér fannst þetta athyglisvert......... ég er kannski svona ófýsilegur viðskiptavinur!!!! En þar sem mér tekst nú að eyðileggja hluti og þarf að borga fyrir varahlutina........ getur það þá verið svo slæmt!!!!??? Maður spyr sig!!!
Vildi núna að ég hefði bara keypt blandara eins og ein vinkona mín á........ það má allavega setja hann í uppþvottavélina........ og hann kostaði ekki nema helminginn af því sem minn fíni Kitchen Aid BLANDARI kostaði!!!! ........ og það má hakka í honum möndlur!!!!!!
Nú ætla ég að fara ofurvarlega með BLANDARANN minn og í mesta lagi þurrka af honum rykið....... svo ég brjóti ekki þennan helv..... dims aftur!!!! Því ekki langar mig að fara niður í Einar Farestveit & Co.hf. neitt á næstunni!!!!......... helst bara ALDREI aftur!!!!
....... en hann lítur vel út á borði!!!!!

Frú Megabeib

það er þetta með blandarann.. Mig langaði svo rosalega í svona eðalblandara eins og þú talar um en var alltaf að bíða eftir jólunum. Enda fór hann inn á óskalistann. Annars er bara þrennt sem ég nota blandara í hér heima: herba (þegar ég er dugleg), búa til shake handa krökkunum og að mauka niðursoðna tómata í lasagne.
Ég fékk einn ágætis blandara í jólagjöf og hann verður að duga í bili. Fjárhagurinn leyfir ekki annað.
Einar Farestveit er einfaldlega asnalegt nafn á fyrirtæki og greinilega starfsfólkið þar líka. Yfirheyrslan hjá kellu minnir mig á fake miðil sem reynir að veiða viðskiptavininn (fórnarlambið) til að gefa upplýsingar um sjálfan sig.
blablablabla
og ertu enn med dønsk ordatiltæki.... snidugt :)
Og ég sem reifst við manninn minn í gær og óskaði honum út í hafsauga. Og ég sé sat og kvartaði yfir hversdagsleikanum við vinkonu mína um daginn. Þessum hversdagsleika sem þú lýsir af ást og þakklæti.
Ég er fegin að ég nennti ekki að setja á mig maskara í morgun en ég er ekki alveg viss hvað það er sem grætir mig í augnablikinu. Kannski örlítil skömm.
Knúsaðu ungana þína og sjálfa þig frá mér
hvenær eigum við að hittast ?
Ponslan
Bara nota ódýrt úr Aldi og þegar hann stútast, þá kaupir maður nýjan, kostar ekki marga peninga ;)
Lýst ekkert á lýsinguna á þessu fyrirtæki og auðvitað kauðir þú ekki ísskáp hjá þeim. Ullar bara á svona lið og kaupir þar sem þú færð þjónustu og góðar upplýsingar. Jeee ræt. . . finnum þannig búð;)
Nú er ég komin og til í hitting. Ertu ekki með númerið mitt?
Knús
Vona að þið Guðrún finnið góða verslun saman til að versla ísskápinn í ;o)
Kv. Begga
Knús og kram í bæinn....
Dísa
knus