Prófíll

  • Nafn: Frú Megabeib
  • Staður: On the Kleik

Auglýsing

Prófíll

  • Nafn: Frú Megabeib
  • Staður: On the Kleik

Prófíll

  • Nafn: Frú Megabeib
  • Staður: On the Kleik

Ég

Blogg dagsins..............

15. janúar 2009 klukkan 20:39
Er í nettu sjokki!!!!

Ákvað nú að fara og tékka á því hvort það væru engar leiðbeiningar með blessuðum BLANDARANUM mínum á netinu........ finn hann ekki alveg hérna heima hjá mér.......... eða reyndar nenni ég ekki að leita að bæklingnum!!!! Er ekki alveg að kaupa það að það megi ekki hakka í honum möndlur!!!!

Fór þá inná síðuna hjá Einar Farestveit & Co.hf.!

VITIÐ ÞIÐ HVAÐ BLANDARINN MINN KOSTAR Í DAG?????? 31.900.- alíslenskar krónur!!!! Vá!!!! Er semsagt í nettu sjokki!!!!

Var ekki að tíma að kaupa mér hann fyrir einu og hálfu ári síðan á 17.900.- og kostaði hann þúsundkalli meira en alveg hvítur....... ég vildi nebblega kremaðann!!!

Mér prívat og persónulega finnst þetta dáldið mikil hækkun á ekki lengri tíma........ pottþétt núna að ég geri lítið annað en þurrka af honum ........ þetta eru orðin stór verðmæti!!!!

Settist í gær og las ALLT bloggið mitt......... alveg frá fyrsta bloggi hérna þangað til dagsins í dag.... eða gær!!!

Mikið var það erfitt...... sat og felldi tár og grét ......... og hló ... sérstaklega Ken Lee!!!!

Bloggvinkona gaf mér hugmyndina........ og þó svo að ég hafi ekki farið að sofa fyrr en um 3 í nótt ...... verð ég að segja að þetta var gott ferðalag!!! 

Ég komst að því að mér er farið að líða miklu mun betur en mér leið fyrir ári síðan..... það er gott að blogga!!!
Tíminn virðist lækna öll sár......... ekki að mitt sár sé gróið........ en ég finn að það er komin góð skorpa á það og brúnirnar eru ekki eins skarpar!!!! Er fegin að ég hætti ekki að blogga eins og hvarflaði oft að mér!!!

Sonurinn var ekkert sérstaklega ánægður með ítalsk inspereraða kvöldmatinn í gær!!! Hann horfði á það sem var borið á borð fyrir hann ....... horfði á mig og sagði: er þetta kvöldmaturinn??? Hann var ekki ýkja hrifinn á svipinn!!!! ...... og hálf hryllti við að þurfa að borða þetta!!!!

Heldur þú að þetta hafi verið súrsaðir hrútspungar??? Nei ó nei...... enda eru þeir ekki ítalskir hehehe

........ soðið spaghettí með tómatsósu!!!!

Ég gerði samloku handa þessari ellllllsku og hann fór saddur og sæll á glímuæfingu!!!!
Frú Megabeib
Jóna Á. GísladóttirObbvíoslí Benz blandaranna, segi ekki annað. je dúdda mía þvílík verðhækkun.

ég er fegin að heyra að lesturinn þinn hafði góð áhrif á þig en ekki öfugt. Hefði varla getað fyrirgefið sjálfri mér ef það hefði verið á hinn veginn.
Það er skrítið þetta líf, ekki satt? Skrítið hversu satt það er að tíminn lækni öll sár... eða allavega deyfi sársaukann. Ég trúi því auðvitað að þannig séum við akkúrat sköpuð. Ég meina... ef ekki þá væri lífið og allt sem því fylgir óbærilegt.

haha ekki hefur prinsinum þótt mikið til næringargjafar koma. Samloka reddar ansi oft hlutunum hér líka.
16. janúar 2009 klukkan 00:43
Guðrún Þorleifs skrifar ...
Mér finnst nú eins og þetta sé flott verð á blandaranum.
Sko, ef ég væri að kaupa hann á mínu danska korti þá væru þetta réttar 14000 ísl. krónur síðan fengi ég taxfree og þá væri þetta skid og ingen ting ;)
Held nú að þeir séu dýrari baunalandinu.
Sammála um að það getur verið fínt að blogga, líta til baka og átta sig. Ég er samt ekki búin að opna hurðina hjá mér.
Man eftir tímabili í mínu lífi þar sem ég tók í hendina á Billa, fékk stuðning og sagði svo: krakkar, gerið svo vel, það er komín matur (ekki svona hress eins og Stella í orlofi) og svo komu þessar elskur að borðinu, hnusuðu smá og sögðu svo: ojjjj hvað er í matinn. :/ Gríðarlega skemmtilegur pakki ;) Eitt af því sem mér finnst fyndið eftir á. Þegar mjöööög langt er um liðið ;)
Knús
16. janúar 2009 klukkan 01:14
Gunnar H skrifar ...
 
Ég bauð mínum elskum upp á svið í gærkveldi. Mikið eiga dætur mína vondann pabba.
Mikið rosa var nú gott að fá LOKSINS svið. Man bara ekki hvenær ég fékk svið sýðast.
Þessar elskur borðuðu sviðin með verstu list og góðu augnarráði til foreldrana sinna.
Þetta verður í matinn aftur að ári ásamt öðrum innmat.
16. janúar 2009 klukkan 13:49
Jóna Á. GísladóttirARGH mig vantar hjálp.
það sem heitir Daglegur rúntur hjá þér, er það textakubbur? eða undirsíðukubbur.
hvernig í fjandanum skrifarðu inn í þessa kubba. Ég minni mig á ömmu núna. Svolítið confused í tækni unga fólksins
16. janúar 2009 klukkan 15:29
dagny sylvia skrifar ...
 
þetta er svona "Fúsa" matur... eins einfalt og hægt er og vitaminin skipta engu máli ;)
máttu hakka spaghetti í blandaranum???

btw vorum ad kaupa setu á wc-ið... svona softclose sem klemmir ekki typpið!
16. janúar 2009 klukkan 17:12

Skrifa athugasemd

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Klukkan

Leit

Innskráningar kubbur

Flokkar