Prófíll

  • Nafn: Frú Megabeib
  • Staður: On the Kleik

Auglýsing

Prófíll

  • Nafn: Frú Megabeib
  • Staður: On the Kleik

Prófíll

  • Nafn: Frú Megabeib
  • Staður: On the Kleik

Ég

Problem!!!

17. janúar 2009 klukkan 16:48
Ekki nóg með að konan verði að fara topplaus út að tjútta í kvöld....... heldur stefnir allt í að frúin verði að fara á inniskónum!!!!

Fór semsagt í ræktina í gær...... jú jú ferlega ábyggileg...... og gekk þar um á hlaupabretti í einn klukkutíma eða svo........ ætla nú að ná upp smá þoli áður en ég fer í að henda mér í einhverja tíma þar sem einhver annar en ég stjórnar ferðinni........ geri það í næstu viku..... eða þar næstu!!!!

nema hvað.......... þarna rölti ég um rösklega ........ og fékk hælsæri!!! Særð á vígvellinum....... stríðssár........ fannst það nú næstum því allt í lagi....... er vön að fá hælsæri frá því í gamla daga þegar ég gat ekki keypt á mig nógu stóra skó...... en sem betur fer er það orðið mikið breytt!!!

Fór því í dag og keypti þar til gerðann plástur til að setja á svona svöðusár........ setti hann samviskusamlega á........ fór í nælonsokkana...... því ég komst að því að sem minnstir sokkar, því mun minni snerting við skóna!!!

Þetta var ekki alvega að virka og eftir 10 mínútur á brettinu gafst ég upp......... gafst upp á að vera í skónum það er að segja........ gekk því áfram rösklega á nælonsokkunum á hlaupabrettinu.

Eftir nokkurn tíma........ eins og 10 mínútum seinna....... fann ég að ég var orðin dáldið aum undir táberginu og hælunum....... kannski ekki það gáfulegasta að vera í nælonsokkum á gúmmíbandi!!!!!

En ég var nú ekkert á því að gefast upp........ fór því bara á hjólið í staðinn........ og stóð mig bara vel......... með þessu áframhaldi verð ég höj og slank innan þriggja ára!!!!

Þegar ég skakklappaðist inn í búningsklefann, fann ég að iljarnar og hælarnir á mér væru ekki alveg eins og þeir ættu að vera!!!! Þegar betur var að gáð er frúin komin með þvílíkar blöðrur á iljarnar......... eina risastóra undir tábergið á hægri fæti og aðra ekki minni undir hælinn á þeirri vinstri!!!!!!

Sé ekki fram á annað en þetta verði áhugavert kvöld í kvöld....... á jullunum og í inniskóm!!!! Verst að það er svo erfitt að dansa í inniskóm!!!!
Frú Megabeib
Jóna Á. Gísladóttirhahahahahahahahahahahaha þetta hljómar svoooooooooo ég. gjörsamlega eitthvað sem ég myndi láta mér detta í hug og framkvæma. Skólaus á hlaupabretti...
Það má kannski segja að margar hugmyndir sem ég fæ og eiga að vera ''lausnir'' enda á að verða the vandamál í samhenginu. skiluru!

annars finnst mér þú ótrúlega dugleg að vera yfirhöfuð í ræktinni. Ég stefni á lífsstíls-breytingu, bæði hvað varðar hreyfingu og mataræði. Ég bara get ekki tekið ákvörðun um hvaða leið ég ætla að fara í þessu og á meðan ég tek ekki ákvörðun þá eykst matarlystin og öllum frítíma eyði ég með lappir upp í loft. ARG
ég vildi gjarnan koma með þér á djammið ef ég ætti huliðskápu (hulings??) æi svona sem gerir mann ósýnilegan.
Kannski upplifum við það seinna... að djamma saman
17. janúar 2009 klukkan 17:19
Björg frænka skrifar ...
 
Ég hlakka ekkert smá til að hitta þig á eftir, á inniskónum og systurnar alveg frjálsar.... bara gaman. Ég býð mig fram til að halda aðdáendunum frá þér mín kæra á dansgólfinu he he he svona líka berbrjósta.
Kv. kókosbollufrænkan
17. janúar 2009 klukkan 18:33
Anna aðalpæja skrifar ...
 
ÞÚ ert hetja.
Góða skemmtun á tjúttinu, hvernig sem þú ferð.
Knús og kossar
Ponslan
17. janúar 2009 klukkan 23:35
Jóna Á. GísladóttirHvar ertu? komin með blöðrur á puttana líka?
18. janúar 2009 klukkan 17:32
dagny sylvia skrifar ...
 
sko hvad sagdi eg.... ny færsla ;)
berdu krem a fæturnar.
k.kv.
18. janúar 2009 klukkan 21:50
Alice skrifar ...
 
jep, nu er det så helt slået fast, sport, idræt og motion ér FARLIGT!
19. janúar 2009 klukkan 07:12

Skrifa athugasemd

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Klukkan

Leit

Innskráningar kubbur

Flokkar