Prófíll

  • Nafn: Frú Megabeib
  • Staður: On the Kleik

Auglýsing

Prófíll

  • Nafn: Frú Megabeib
  • Staður: On the Kleik

Prófíll

  • Nafn: Frú Megabeib
  • Staður: On the Kleik

Ég

Simply the best!!!!

19. janúar 2009 klukkan 16:53

Partýið gekk eins og það átti að gera......... það var alveg eins gaman að dansa og venjulega........ fann ekkert fyrir öllum blöðrunum á fótunum fyrr en ég skakklappaðist út í leit að leigubíl........ eftir að hafa slökkt ljósin og skellt í lás á eftir mér eins og venjulega!!!!! Tekur því ekki að fara út fyrir neitt minna!!!!

Nú er komin pása hjá frúnni......... þangað til næst!!!!

Kitchen Aid BLANDARINN er vel nothæfur til að blanda hina ýmsu drykki........ enda eru ekki sett í þá möndlur eða frosnir ávextir!!!! Fullt af klaka og ekki gleyma fullt af vökva og þá er þetta að gera sig....... veit ekki hvort framleiðendur tækisins hafi haft það í huga að það eigi einungis að blanda drykki í tækinu.......... en það fúnkar!!!!

Nú finnst öllum í kringum mig að það sé hið eðlilegasta mál að ég haldi eins og eitt stykki partý í mars þegar frúin ætlar að verða 32 í 9. skiptið!!!!

Veit ekki hvort mig langar það........ en það er laaaaaaaangt í mars!!!!

Langar til dæmis ekki að hafa partý fyrir pör....... veit ég er klikkuð ....... en langar samt að bjóða vinafólki mínu....... á fullt af vinafólki/hjónum......... en mér finnst bara alveg ferlega vont að fara í partý ef það eru pör og ég veit að þar hefði maðurinn minn verið fremstur í flokki ........ eða aftast að kjafta.... því aldrei vorum við "saman" þegar við vorum að skemmta okkur...... við töluðum náttúrlega saman alla vikuna þannig að það var bara fínt að fara og hitta annað fólk og þess vegna enginn tilgangur í að hanga ofan í hvort öðru þegar við fórum á meðal fólks!!!! En samt sem áður finnst mér það ekkert gaman og finnst það eiginlega vont að fara þar sem eru pör........ vitandi það að hann er ekki á staðnum!!!!!

Kannski er þetta bara ein brekkan enn sem ég þarf að klífa í þessu ferli ......... og ég stefni að því að verða góð fjallgöngukona........ því ég er sigurvegari!!!!!

Mæli með því að gera markmiðsplön......... það virkar!!!!

Frú Megabeib
Björg frænka skrifar ...
 
Takk fyrir síðast yfirpæjan þín, verð að viðurkenna að síðasta setningin fékk mig til að hlæja upphátt! Mér finnst að þú eigir að halda upp á afmælið þitt...þrjátíu og eitthvað... sama hvort bara konum eða körlum verði boðið, það er svoooo gaman að hitta þig.
19. janúar 2009 klukkan 17:03
Jóna Á. GísladóttirAuðvitað ertu sigurvegari elskan mín. Löngu löngu búin að sýna það og sanna.
Gott að heyra að þú skemmtir þér. Og þú ert ekki rugluð. Pottþétt eðlilegasti hlutur í heimi.

Mælirðu þá með að markmiðsplönin séu skrifleg? því þau virðast ekki virka í hausnum á mér.

Ég hló yfir síðasta kommenti frá þér. Jú jú einelti væri sennilega rétta orðið. En það er þá á báða bóga.
Annars gerðist svolítið skrítið rétt áðan. Ég fór inn á fésbókina til að samþykkja þig sem vin. Var búin að sjá þessa Lindu í gær og var að spá í: hver er þetta eiginlega.
Svo skrollaði ég upp og niður og var orðin nett pirruð að finna þig ekki þegar það rann upp fyrir mér að ég hefði ekki hugmynd um hvað þú hétir. Og mér fannst það fáránlegasti hlutur í heimi. Hvernig gat ég ekki vitað nafnið þitt!!! En það var staðreynd og það var Bretinn sem benti mér á að upphafsstafirnir hjá þessari Lindu pössuðu við undirskriftina þína í kommentunum.
Hæ Linda. Nice to meet you


20. janúar 2009 klukkan 00:13
Guðrún Þorleifs skrifar ...
Flott að klífa fjöll ;) Gott útsýni þar og oft sól og gott veður þar þegar veður er gott ;)

Sjáumst :)
20. janúar 2009 klukkan 08:47
Begga Bauni skrifar ...
Það er greinilega nóg að gera í djamminu og meira að segja farið að huga að einhverju djammi í mars líka. En það verður örugglega stuð í afmælispartýinu, hvernig sem þú velur að útfæra það ;o)
Þú stendur þig með prýði í fjallaklifrinu þó að það séu nú trúlega nokkur fjöll/brekkur eftir ennþá, þá áttu örugglega eftir að ná upp á toppinn í góðum gír.
Knús og kærar kveðjur og þig og þína, Begga
20. janúar 2009 klukkan 11:10
dagny sylvia skrifar ...
 
åhh hvad ég kannast við þetta... er svo fín í fótunum inn á stöðunum... en vá þegar maður kemur út... ái...
Vertu nú vel skóuð í fjallgöngunni... skiptir miklu máli :)
20. janúar 2009 klukkan 20:54

Skrifa athugasemd

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Klukkan

Leit

Innskráningar kubbur

Flokkar